Bókasafnið - 01.01.2000, Page 53
safns- og upplýsingafræðiskor). Rafrænn póstur og heima-
síður mynda uppistöður námskeiða og eru jafnframt nýtt til að
dreifa upplýsingum um dagskrá' kennslustunda í tölvuveri. í
fyrsta tölvutíma hvers námskeiðs var stuttur spurningalisti
sendur nemendum í rafrænum pósti. Var þetta gert til að
meta Internetleikni þátttakenda í upphafi námskeiðs sem
síðan væri hægt að nota sem grunn fyrir frekara skipulag
námskeiðsins og mat. Nemendur voru beðnir að svara
spurningalistanum með Reply skípuninni í kennslustund. Þeim
var sagt að niðurstöður frumgreiningarinnar yrðu gerðar að-
gengilegar á heimasíðu námskeiðsins þannig að allir nem-
endur bekkjarins
hefðu aðgang að
upplýsingunum '(sjá
Clyde, 1998;
Clyde, 1999),
Heimasíðan var
síðan notuð 1 í
næsta fyrirlestra-
tíma ásamt niður-
stöðum annarra al-
þjóðlegra rann-
sókna (til dæmis
þeim sem eru
skráðar hjá NUA)
sem umræðu-
grundvöllur fyrir
spurninguna „Who
is on the Net?".
Upplýsingar sem
fengust frá nem-
endum voru einnig
notaðar til að skipuleggja næstu kennslustundir.
Samkvæmt samanburði á fjölda endursendra spurningalista
og fjölda nemenda sem mættu í fyrsta tíma samkvæmt við-
vistarskrá virðist um það bil helmingur þeirra sem mættu í tím-
ann hafa svarað, Fylgni var á milli fjölda svara og fjölda skráðra
nemenda í námskeiðið miðað við sjöttu viku þess (þegar átti
að skila fyrsta verkefni námskeiðsins), Alls svöruðu 58 þátt-
takendur spurningalistanum árið 1998 en 53 árið 1999 (ath
að sumir svöruðu ekki öllum spurningum), Þegar búið var að
fjarlægja allar persónugreinanlegar upplýsingar úr skilaboð-
unum, var gerð tölfræðileg greining á gögnunum, og eru
sumar niðurstöður birtar í töflum 3 til 5,
í samantekt reyndist Internetnotkun fyrir námskeiðið meiri
meðal þátttakenda árið 1999 heldur en 1998. Árið 1999
höfðu 92,3 prósent notað Internetið áður, í samanburði við
70,7 prósent árið 1998. Þetta sýnir töluverða (og marktæka)
auknjngu á einungis tólf mánaða tímabili, Töluverð og mark-
tæk aukning var einnig á fjölda þeirra sem höfðu notað ver-
aldarvefinn áður (frá 67,2% til 90,4% svarenda) og frétta-
þjónustu (e, newsgroups) (frá 5,2% til 19,2%). Tíðni fyrri
notkunar Internetsins var einnig meiri meðal þeirra sem svör-
uðu árið 1999 en þeirra sem svöruðu árið 1998, Hlutfall milli
þess að hafa notað Internetið óreglulega og tiltölulega sjaldan
var svipað milli áranna, Árið 1999 var hlutfall þeirra sem höfðu
notað Internetið oft („næstum því á hverjum degi") orðið
talsvert hærra en þeirra sem höfðu ekki notað það. Að auki
komu árið 1999 í
fyrsta sinn nem-
endur sem höfðu
þegar búið til eigin
heimasíðu (2, eða
3,8%). Hlutfallsleg
aukning á notkun
Internetsins fyrir
námskeiðið, á milli
áranna 1998 og
1999, kom fram í
því að notkun raf-
ræns pósts fyrir
námskeiðið var
meiri. Þrátt fyrir að
ekki væri mark-
tækur munur á
hlutfalli þeirra sem
höfðu notað raf-
rænan póst áður
jókst tíðni fyrri notk-
unar þeirra marktækt (sjá töflu 5, chi-square = 15.283, df =
5, p < .01). Hærra hlutfall þátttakenda sagðist hafa notað
rafrænan póst oft, á meðan færri sögðust hafa notað hann
„eingöngu einu sinni eða tvisvar". Þriðjungur svarenda (34,0%)
sagðist hafa notað rafrænan póst „næstum daglega" árið
1999, í samanburði við 12,1 prósent árið 1998. Greining á
svörunum sýnir að í heildina hafi stærra hlutfall nemenda
notað Internetið áður en þeir byrjuðu á námskeiðinu auk þess
sem fyrri reynsla þeirra var víðtækari. Samt sem áður var enn
fólk á námskeiðinu sem hafði enga eða mjög litla reynslu af
Internetinu.
Gildi rannsóknar fyrir menntun og rannsókn
Eitt af því sem kemur einna skýrast fram í þessari rannsókn er
hraði þróunar nettengdra upplýsingakerfa (eins og til dæmis
Tafla 3:
Mælingar á Internetnotkun fyrir námskeið, 1998-1999
Þátttakendur 1998 Fjöldi.(%) Þátttakendur 1999 Fjöldi. (%) % Breytingar 1998 til 1999 z Mark tekt
Hefur notað Internetið áður 41 (70,7%) 48 (92,3%) 21,6% -2,9 Já
Notar Internetið næstum daglega 5 (8,6%) 12 (23,1%) 14,5% -2,0 Já
Hefur notað rafrænan póst áður 49 (84,5%) 48 (92,3%) 7,8% -1,2 Nei
Notar rafrænan póst næstum daglega 7(12,1%) 17 (32,7%) 20,6% -2,5 Já
Hefur notað WWW áður 39 (67,2%) 47 (90,4%) 23,1% -2,9 Já
Hefur notað spjallrásir áður 8 (13,8%) 9(17,3%) 3,5% -0,50 Nei
Hefur notað fréttaþjónustu áður 3 (5,2%) 10(19,2%) 14,1% -2,2 Já
Hefur notað póstlista áður 3 (5,2%) 3 (5,8%) 0,6% -0,13 Nei
Hefur verið á námskeiðum áður 3 (5,2%) 10 (19,2%) 14,1% -2,2 Já
Hefur aðgang að Intemetinu í vinnu 12(20,7%) 17(32,7%) 12,0% -1,4 Nei
Hefur aðgang að Intemetinu heima 29 (50,0%) 27 (51,9%) 1,9% -0,19 Nei
Heimasíður SAMTALS 0 (0,0%) 58 (100,0%) 2 (3,8%) 52 (100,0%) 3,8% _
Bókasafnið 24. árg. 2000
51