Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 11
VIRK
Það er algengt að einstaklingar sem leita
til VIRK glími bæði við andlegan vanda og
stoðkerfisvanda. Þetta má t.d. sjá á mynd 3
sem inniheldur upplýsingar um það hvernig
einstaklingar meta eðli þess heilsubrests
sem þeir glíma við þegar þeir leita til VIRK.
Heilsufarslegur vandi einstaklinga sem
leita til VIRK er síðan oft margþættur og
flókinn. Þetta kemur t.d. mjög skýrt fram
í rannsókn sem Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands gerði fyrir VIRK í sam-
starfi við sjúkrasjóði stéttarfélaga. Mynd
4 inniheldur upplýsingar úr þessari rann-
sókn. Þarna voru einstaklingar sem fá
sjúkradagpeninga frá sjúkrasjóðum stétt-
arfélaga spurðir út í eðli veikinda sinna og
þátttöku í starfsendurhæfingu hjá VIRK.
Í ljós kom að þeir einstaklingar sem eru í
starfsendurhæfingu hjá VIRK haka við fleiri
sjúkdómaflokka og glíma frekar við andleg
veikindi samanborið við þá sem ekki fóru í
starfsendurhæfingu. Nánari umfjöllun um
þessa rannsókn má finna á bls. 84.
Fjárhagsleg staða einstaklinga sem leita
til VIRK er oft á tíðum erfið. Þannig telja
um 40% þjónustuþega VIRK sig eiga erfitt
með að ná endum saman samanborið við
11% almennings. Um helmingur þeirra
einstaklinga sem leita til VIRK telja að
fjárhagsstaða fjölskyldu sinnar sé verri en
fjárhagsstaða annarra fjölskyldna á Íslandi,
þetta má sjá á mynd 5.
Mikilvægi vinnu
Þó einstaklingar sem leita til VIRK glími
oft við margþættan heilsubrest og flókinn
vanda þá telja þeir almennt mjög mikilvægt
að vera í vinnu og atvinnuþátttaka skiptir þá
miklu máli. Mynd 6 sýnir svör einstaklinga
sem leitað hafa til VIRK og mat þeirra á
mikilvægi þess að vera í vinnu en sam-
kvæmt henni þá skiptir atvinnuþátttaka
miklu máli í öllum aldurshópum. Þetta er í
takt við reynslu og upplifun bæði ráðgjafa og
sérfræðinga VIRK. Þrátt fyrir að einstaklingar
sem leita til VIRK glími við margþættan og
flókinn vanda þá er vinnumarkaðsþátttaka
þeim mjög mikilvæg og með þátttöku í
þjónustu VIRK þá stefna þeir markvisst að
því að auka þátttöku sína og lífsgæði.
Góður árangur VIRK á árinu 2022
Sjá má í umfjöllun og gögnum hér að fram-
an að einstaklingar sem leita til VIRK glíma
oft við flókinn og erfiðan vanda. En þrátt
fyrir það þá hafa þeir mikinn vilja til að auka
þátttöku sína á vinnumarkaði og flestir
einstaklingar sem ljúka þjónustu hjá VIRK
ná miklum árangri í starfsendurhæfingu
og ná að verða aftur virkir þátttakendur á
vinnumarkaði.
Árangur af starfsemi VIRK á árinu 2022 var
mjög góður og 85% einstaklinga sem luku
þjónustu hjá VIRK fóru að einhverju leyti í
vinnu, í atvinnuleit eða í nám við útskrift.
Þetta hlutfall hefur aldrei verið svona hátt en
það hefur oftast verið í kringum 79%. Aðrir
mælikvarðar svo sem hlutfall stöðugilda
með laun á vinnumarkaði benda einnig til
þess að starfsemi VIRK hafi skilað miklum
árangri á árinu 2022.
Ástæður þessa góða árangurs eru
margþættar. Nefna má gott ástand á
vinnumarkaði en einstaklingum sem ljúka
þjónustu VIRK hefur gengið betur að finna
vinnu við lok þjónustu. Einnig er rétt að
benda á það að hærra hlutfall einstaklinga
sem kom til VIRK á árinu 2022 var ennþá
á veikindalaunum hjá atvinnurekanda og
því enn með vinnusamband við upphaf
þjónustu sem bendir til þess að hærra
hlutfall einstaklinga kemur fyrr til VIRK
samanborið við fyrri ár. Almennt næst
betri árangur í starfsendurhæfingu ef ein-
staklingar koma fyrr í þjónustu og ná að
halda vinnusambandinu á meðan þeir eru
í þjónustu. Hér aftar í ársritinu má sjá yfirlit
yfir ýmsa árangursmælikvarða á starfsemi
VIRK.
Rannsóknir og þróun
Hjá VIRK er lögð mikil áhersla á faglega
þróun og rannsóknir sem styðja við hana.
Auk þess hefur VIRK bæði haft frumkvæði
að og styrkt rannsóknir á sviði forvarna
með það að markmiði að benda á aðferðir
og leiðir sem geta komið í veg fyrir að
einstaklingar þurfi á starfsendurhæfingu
að halda. Hér aftar í ársritinu er fjallað
um ýmsar rannsóknir sem VIRK hefur
komið að í samstarfi við bæði fagaðila og
sjúkrasjóði víða um landið. Þetta er þó
aðeins brot af þeim verkefnum sem VIRK
tekur þátt í.
Innan VIRK er síðan stöðugt verið að
leita leiða til að tryggja að þjónusta VIRK
sé í takt við það sem best gerist bæði
hérlendis og erlendis. Sérfræðingar VIRK
eru duglegir að viðhalda þekkingu sinni og
viða að sér þekkingu og reynslu víða að.
Reglulega er síðan tölfræði innan VIRK
rýnd með það í huga að greina ný tækifæri
til þróunar og árangurs.
Þekkingarsetur um kulnun
hjá VIRK
Þær Berglind Stefánsdóttir og Guðrún
Rakel Eiríksdóttir sálfræðingar og verk-
efnastjórar hjá VIRK hafa frá árinu 2020
unnið að áhugaverðu rannsóknar- og
þróunarverkefni um kulnun. Þetta verkefni
er samstarfsverkefni VIRK og Háskólans í
Reykjavík. Fyrstu niðurstöður er varða
kulnun hjá þjónustuþegum VIRK út frá
skilgreiningu WHO (Alþjóðaheilbrigðismál
astofnunarinnar) hafa þegar verið kynntar
og hafa vakið mikla athygli. Þar hefur m.a.
komið í ljós að á meðan um 57% þeirra
sem sækja þjónustu VIRK telja sig vera
með einkenni kulnunar á árinu 2022 þá
eru það aðeins um 6% þjónustuþega sem
falla undir skilgreiningu WHO á kulnun
þar sem kulnun er skilgreind sem „....
heilkenni sem er afleiðing langvarandi
streitu á vinnustað sem ekki hefur tekist
á árangursríkan hátt að ná stjórn á.....“.
Þetta rannsóknar- og þróunarverkefni
hefur meðal annars það markmið að þróa
þjónustu VIRK þannig að við veitum öllum
einstaklingum viðeigandi og árangursríka
þjónustu út frá þeim aðstæðum sem þeir
eru í hverju sinni. Markmiðið er einnig
að hafa áhrif á umræðu um kulnun í
samfélaginu þannig að hún verði í meira
mæli fagleg og uppbyggileg.
Næsta skref í þessu verkefni er að gera
rannsókn á kulnun á vinnumarkaði út frá
skilgreiningu WHO og út frá þeim þáttum
sem hafa verið notaðir í rannsókninni innan
VIRK. Þessi rannsókn er í undirbúningi og
verður framkvæmd á þessu ári í samstarfi
við Háskólann í Reykjavík.
Það er óhætt að fullyrða að VIRK er í dag í
fararbroddi rannsóknar- og þróunarvinnu á
fyrirbærinu kulnun hér á landi og ákveðið
hefur verið að stofna „Þekkingarsetur
VIRK um kulnun“ sem er undir stjórn
ofangreindra verkefnastjóra hjá VIRK. Þetta
þekkingarsetur mun leiða alla umræðu og
þróa faglega þjónustu VIRK hvað varðar
kulnun allt frá forvörnum til starfsendur-
hæfingar og atvinnutengingar. Markmiðið er
að auka þekkingu, efla forvarnir, tryggja góða
og faglega starfsendurhæfingarþjónustu og
stuðla að faglegri og uppbyggilegri umræðu
á þessu sviði í samfélaginu.
Verkefni VIRK á sviði forvarna
VIRK hefur hlutverk í forvörnum sam-
kvæmt skipulagsskrá og hefur verið að
efla þjónustu á því sviði undanfarin ár
með ýmsum verkefnum, oft í samstarfi
við aðrar stofnanir svo sem Vinnueftirlitið
og Landlæknisembættið. Verkefni VIRK
á þessu sviði hafa verið fjölbreytt og
munu þróast og breytast til framtíðar eftir
þörfum samfélagsins á hverjum tíma. Hér
aftar í ársritinu er gerð nánari grein fyrir
þeim forvarnaverkefnum sem voru í gangi
á árinu 2022.
„Það má ekkert lengur“
Eitt af þeim verkefnum sem VIRK fór inn
í af fullum þunga á árinu 2022 var mótun
vitundarvakningar vegna kynferðislegrar
Mynd 6
Mikilvægi vinnu hjá einstaklingum sem leita til VIRK
Spurningin: Hversu mikilvægt er fyrir þig að vera í vinnu, ef 0 þýðir
alls ekki mikilvægt og 10 mjög mikilvægt?
10
8
6
4
2
0
2021 2022 2023
Yngri en 30 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára
7,9
8,4
8,7 8,6
8,07,8
8,3
8,6 8,4
7,6
8,2 8,4
8,8
8,5
7,8
Mynd 4
Ástæður fjarveru frá vinnu vegna veikinda
Úr rannsókn Félagsvísindastofnunar í samstarfi VIRK og sjúkrasjóða nokkurra stéttarfélaga
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Voru í starfsendurhæfingu
hjá VIRK
Voru ekki í starfsendurhæfingu
hjá VIRK
Fjölveikindi (haka við
a.m.k. 2 sjúkdómafl.)
Haka við andlegan
vanda / geðraskanir
eingöngu
Haka við aðra
sjúkdóma
eingöngu
Haka við stoðkerfis-
vanda eingöngu
71%
33%
64%
21%
29%
67%
36%
79%
Mynd 3
Eðli heilsubrests einstaklinga
sem leituðu til VIRK á árinu 2022
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Já, en ekki staðfestur af lækni /
heilbrigðisstarfsmanni
Já, staðfestur af lækni /
heilbrigðisstarfsmanni
Stoðkerfisvandi Aðrir sjúkdómarAndlegur vandi/ geðraskanir
12%
50%
69%
11%
39%
5%
Mynd 5
Fjárhagsstaða einstaklinga sem leita til VIRK
Svör einstaklinga sem leita til VIRK við eftirfarandi spurningu: Hversu vel eða illa fjárhagslega stæð
telur þú að fjölskylda þín (þú og aðrir á heimilinu ef við á) sé miðað við aðrar fjölskyldur á Íslandi?
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2021 2022
Verr stæð Betur stæðÁlíka stæð
51% 51%
35%36%
14%13%
10 11virk.is virk.is