Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 53
VIRK
ÞAÐ MÁ EKKERT LENGUR
Káfa | Stara | Segja klúra brandara | Halla sér of nálægt
fólki | Biðja um kynlíf | Senda myndir af kynfærum |
Hengja upp klámfengnar myndir og dagatöl | Slá, hrista
eða rassskella | Kyssa | Þrábiðja um stefnumót | Spyrja
út í kynlíf annarra | Taka myndir án leyfis | Gefa kyn-
ferðislegar gjafir | Strjúka | Athugasemdir varðandi
kynhneigð | Biðja um kynferðislegan greiða | Áreita á
samfélagsmiðlum | Sitja of nálægt | Klæmast, faðma og
knúsa án leyfis | Óvelkomin snerting | Kynferðislegar
hreyfingar og látbragð | Mæna ofan í hálsmál | Lýsa
eigin kynlífi eða blæti | Standa of nálægt | Athugasemdir
varðandi líkama og útlit | Króa fólk af | Kynferðisleg
ummæli um klæðaburð | Sýna eða senda öðrum klám |
Óumbeðið nudd | Athugasemdir varðandi kynvitund
v e l v i r k . i s
Staðan er ekki ósvipuð þeirri sem var um
tvítugt því nú gefst aftur færi á að skoða
hvað væri gaman að gera í lífinu. Hvort
hugurinn stefnir til þess að halda áfram að
vinna, leggjast í ferðalög, flytja á nýjan stað,
arka um fjöll, passa barnabörnin, skapa sér
nýjan starfsvettvang, rækta garðinn, skrifa
bók, gera upp gamla bílinn, mastera golfið
eða eitthvað allt annað.
Það er þegar upp er staðið í höndum hvers
og eins að veita draumum sínum athygli,
velja áhugaverð viðfangsefni og plana
ferðalag sitt inn í framtíðina. Ef hugmyndir
vantar má mögulega finna þær í þeim 200
hugmyndum sem settar eru fram á velvirk.is.
Stjórnendahjólið
Á árinu 2022 var hrint af stað vinnu við
gerð sérstaks stjórnendaefnis með að-
komu auglýsingastofunnar Hvíta hússins
til að minna á hvaða helstu þáttum í
vinnustaðamenningunni þurfi að huga að
að til að auka vellíðan starfsfólks og draga
úr streitu.
Verkefnið byggir á hugmyndafræði Christinu
Maslach, eins helsta fræðimanns heims á sviði
kulnunar. Niðurstaðan er „Stjórnendahjólið“
þar sem stjórnendur geta snúið pappírsskífu
Viðurkenning fyrir
Hver ert þú?
VIRK og Líney Árnadóttir, verkefna-
stjóri hjá VIRK fengu á árinu viður-
kenningu Félags náms- og starfs-
ráðgjafa fyrir lofsvert framlag til
náms- og starfsráðgjafar á Íslandi.
Viðurkenningin var veitt fyrir gagnvirka
sjálfshjálparefnið Hver ert þú?
Um er að ræða verkfæri sem ein-
staklingar geta notað til að finna
leið að framtíðardraumum sínum út
frá styrkleikum, færni, áhugasviði,
viðhorfum, reynslu og menntun. Þetta
er nýstárlegt, stafrænt efni sem er
sjálfsstyrkjandi og nýtist fólki á öllum
aldri við starfsþróun og starfsval.
Hver ert þú? er aðgengilegt öllum
á síðunni „Aftur í vinnu“ á virk.is
sem gerir notendum kleift að vinna
að eigin starfsframa í rólegheitum
heima í stofu, eða raunar hvar og
hvenær sem er.
og séð stutta umfjöllun um hvern af þeim
sex þáttum sem taldir eru grunnforsendur
fyrir vellíðan á vinnustað.
Hægt er að nálgast stjórnendahjólið í höfuð-
stöðvum VIRK í Borgartúni 18 og lesa má
um það á velvirk.is.
Það má ekkert lengur vakti fólk til
umhugsunar
Í byrjun ársins 2022 lauk vitundarvakn-
ingunni Virkjum góð samskipti sem var mjög
vel heppnuð.
Strax var farið að huga að næstu vitundar-
vakningu um kynferðislega áreitni á vinnu-
stöðum. Mikil vinna fór í að finna rétta nálgun
á svo viðkvæmu efni og fundað ítrekað með
aðilum á borð við Vinnueftirlitinu, Stíga-
mótum og fulltrúum kynjafræða við HÍ auk
Hvíta hússins. Loks fannst rétta nálgunin og
ákveðið að nýta Það má ekkert lengur sem
slagorð.
Eftir mikla yfirlegu og fjölda funda hófst
framleiðsla á efninu á haustmánuðum 2022
og efnið var frumsýnt í október. Vakningin
hefur lifað síðan með mismikilli keyrslu og
áherslum. Eins og í öðrum vakningum var
stuðningsefni sett inn á velvirk síðuna og
var um töluvert mikla vinnu að ræða með
tilheyrandi lestri á rannsóknum o.fl.
Í lok árs voru viðbrögð við vakningunni
könnuð af EMC rannsóknum að beiðni VIRK
og töldu nærri 9 af hverjum tíu aðspurðra að
vakningin veki athygli á mikilvægu málefni.
87% svarenda höfðu séð auglýsinguna
og ¾ líkaði hún vel. 45% aðspurðra höfðu
rætt auglýsinguna eða kynferðislega áreitni
á vinnustöðum við fólk eftir að hafa séð
auglýsinguna.
Í tengslum við vakninguna voru hönnuð
veggspjöld, kort og servíettur og er enn verið
að dreifa þeim og geta áhugasamir nálgast
efnið í þjónustuveri VIRK í Borgartúni 18.
52 53virk.is virk.is