Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 50
VIRK
FORVARNAVERKEFNI
VIRK
Heilsueflandi vinnustaður
Samstarfsverkefni Embættis landlæknis,
Vinnueftirlitsins og VIRK
Árið 2022 var viðburðaríkt hvað varðar Heilsueflandi vinnustað og í
haust lauk vinnu við nýja lendingarsíðu fyrir verkefnið, www.vinnustadir.
heilsueflandi.is, sem gerir verkfærið mun aðgengilegra fyrir fyrirtæki
landsins. Þessa dagana er unnið að gerð fræðslumyndbanda sem fara á
vefsíðuna fyrir vorið.
Tveir morgunfundir voru haldnir í samstarfinu á sl. ári, sá fyrri var um
Heilsueflandi forystu og vellíðan í starfi og aðalfyrirlesari var Sigrún
VIRK HEFUR LAGT ÁHERSLU Á
FJÖLBREYTT VERKEFNI Á SVIÐI
FORVARNA UNDANFARIN ÁR.
ÞESSI VERKEFNI SKIPTAST Í
FJÓRA FLOKKA; HEILSUEFLANDI
VINNUSTAÐUR, RANNSÓKNIR,
VELVIRK.IS OG VITUNDAR-
VAKNINGAR.
INGIBJÖRG LOFTSDÓTTIR sviðsstjóri hjá VIRK
LÍNEY ÁRNADÓTTIR sérfræðingur hjá VIRK
Þá var bætt við töluverðu efni á vefinn fyrir
stjórnendur og starfsfólk. Má þar helst nefna
efni um kynferðislega áreitni í tengslum við
vitundarvakninguna „Það má ekkert lengur“,
efni tengdu streitu og breytingarskeiði og
nýju efni tengdu streitu, samskiptum og
kulnun sem styður enn frekar þær kenningar
að við þurfum að huga betur að stjórnun og
hegðun á vinnustöðum.
Einnig var bætt við áhugaverðu efni um verki
ásamt nýju starfsþróunarefni með sérstakri
umfjöllun um starfslok. Þá var unnið að nýju
forvarnaefni fyrir starfsfólk og stjórnendur á
vinnustöðum sem hefur verið kallað Velvirk
í starfi.
Velvirk í starfi
VIRK býður starfsfólki og stjórnendum nýja þjónustu sem kallast Velvirk í
starfi. Um er að ræða stuðning í forvarnaskyni til að styrkja starfsfólk og efla
vinnustaði í þeim tilgangi að auka vellíðan og draga úr veikindaforföllum.
Hugmyndin er að mæta þörf starfsfólks og stjórnenda í atvinnulífinu fyrir
ráðgjöf um mögulegar leiðir þegar því sjálfu eða samstarfsfólki líður ekki vel
í vinnunni af heilsufarsástæðum eða vegna annarra aðstæðna sem hafa
áhrif á framgang þess í starfi.
Góð ráð og verkfæri fyrir starfsfólk og stjórnendur
Á síðunni Velvirk í starfi – Starfsfólk getur starfsfólk nálgast góð verkfæri og
ráð til að þróa sig áfram í starfi og finna leiðir til að takast á við erfiðleika og
úrlausnarefni sem það mætir í starfi sínu. Þar er fjallað um hvernig starfsfólk
geti aukið starfsánægju sína, unnið með eigin starfsþróun, fundið leiðir til
að takast á við streitu og kulnun, bætt samskipti og tekist á við orkuleysi. Þá
eru gefin ráð um hvernig við getum mögulega stundað vinnu þrátt fyrir verki
eða skerta starfsgetu.
Á síðunni Velvirk í starfi – Leiðtogar geta stjórnendur og mannauðsstjórar
nálgast góð ráð og verkfæri tengd mannauðsmálum í þeim tilgangi að skapa
vinnustaðamenningu sem eykur vellíðan starfsfólks og styrkir vinnustaðinn.
Þar er bent á árangursríka stjórnunarstíla, mikilvægi trausts og virðingar í
samskiptum og gagnlegar upplýsingar fyrir nýja stjórnendur. Einnig eru lögð
til myndræn og gagnvirk verkfæri sem taka á streitu, kulnun og starfsþróun.
Samband við sérfræðing
Þá geta nú bæði starfsfólk og stjórnendur haft samband með því að hringja
til VIRK eða senda erindi og óska eftir að sérfræðingur hafi samband til að
ræða málin þegar þörf er á ráðgjöf eða leiðbeiningum.
Er það von VIRK að þessi viðbót við starfsemina komi vinnustöðum að
góðum notum og geti orðið til að auðvelda starfsfólki og stjórnendum að
sinna störfum sínum.
Gunnarsdóttir, prófessor í Viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands og formaður
Þekkingarseturs um þjónandi forystu.
Síðari morunfundurinn var um streitu í
starfi og aðalfyrirlesari var Marie Kingston,
vinnusálfræðingur og höfundur Streitu-
stigans. Báðir þessir viðburðir voru vel sóttir.
Í haust voru síðan haldnar tvær vel
heppnaðar vinnustofur fyrir virka notendur
verkfærisins. Fleiri morgunfundir eru á
döfinni á þessu ári.
Rannsókn VIRK og
stéttarfélaganna
Í samvinnu við sjúkrasjóði ellefu stéttar-
félaga og Félagsvísindastofnun HÍ var á
vormánuðum 2022 sendur út spurningalisti
til rúmlega 5.000 einstaklinga sem höfðu
þegið bætur frá sjúkrasjóðunum árin 2018
og 2019.
Spurningalistinn var sendur út vegna rann-
sóknar á forvarnasviðinu á þeim þáttum
sem geta mögulega haft áhrif á veikindaleyfi
og endurkomu einstaklinga til starfa eftir
veikindaleyfi.
Heimtur voru í takt við það sem tíðkast hvað
varðar heimtur í könnunum almennt þessa
dagana og var svarthlutfall um 32%. Fyrstu
niðurstöður voru kynntar í lok febrúar og má
lesa nánar um þær á bls. 84 í ársritinu.
Yfirferð og endurnýjun efnis
á velvirk.is
Á árinu 2022 var ráðist í umfangsmikla
yfirferð á öllu efni á velvirk.is með það í
huga að laga til, endurnýja eða skipta út
efni á síðunni. Bætt var við myndböndum
og verkfærum fyrir bæði starfsfólk og stjórn-
endur í tengslum við Streitustigann sem
er mjög vinsælt efni á vefsíðunni enda er
Streitustiginn myndrænn og auðveldur í
notkun.
Yfir 200 leiðir til að velja úr
við starfslok
Á velvirk.is hefur forvarnasviðið jafnframt
tekið saman gagnlegt efni um starfsþróun
allt frá leitinni að fyrsta starfinu til starfsloka.
Stórir árgangar nálgast nú hinn svokallaða
„starfslokaaldur“.
Með bættri heilsu og betra lífi getur fólk
gert ráð fyrir að á þessum tímamótum séu
framundan kannski 10 – 20 ár við góða
heilsu sem gefa færi á innihaldsríku lífi.
Það á enginn að láta það koma sér á óvart
að breytingar séu framundan og að eðlilegt
sé að verja tíma í að finna verðug verkefni,
tilgang og hamingju á þessu tímabili lífsins.
50 51virk.is virk.is