Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 32
VIÐTAL
FYRIRTÆKI ÁHUGASÖM
UM VINNUAFL FRÁ VIRK
TELMA DÖGG GUÐLAUGSDÓTTIR atvinnulífstengill hjá VIRK
Á MIÐVIKUDÖGUM ER TELMA
DÖGG GUÐLAUGSDÓTTIR
ATVINNULÍFSTENGILL YFIRLEITT AÐ
STÖRFUM Í HÚSAKYNNUM VIRK Í
BORGARTÚNI OG ÞAR HITTUM HANA
FYRIR. HENNAR VINNUSTAÐUR ER
ÞÓ Í REYKJANESBÆ ÞAR SEM HÚN
AÐSTOÐAR ÞJÓNUSTUÞEGA VIRK Á
SUÐURNESJUM Í ATVINNULEIT.
„Ég byrjaði að vinna sem atvinnulífstengill hjá VIRK í miðjum kóvíd-
faraldrinum. Fyrsta árið var óneitanlega ansi dauflegt á Suðurnesjum
– ýmis starfsemi þar var þá meira og minna lömuð. Keflavíkurflugvöllur
er mjög stór vinnustaður á þessu svæði en líka þar var fátt að frétta
hvað atvinnu snerti,“ segir Telma Dögg.
„Ég nýtti því þennan erfiða tíma til að hringja eða heimsækja
fyrirtækin á svæðinu og mynda tengsl. Ég lagði mig fram um að kynna
starf atvinnulífstengils VIRK og athuga jafnframt hjá fyrirtækjum hvort
samstarf væri mögulegt, einnig skráði ég þau inn í gagnagrunn VIRK.
Það kom sér vel að ég er fædd og uppalin í Keflavík og þekki því
svæðið vel. Ég bjó um tíma í Bandaríkjunum og tók þar BS-próf í
viðskiptafræði og síðar MBA-próf. Áður en ég hóf störf hjá VIRK var
ég í átta ár mannauðsstjóri á Keflavíkurflugvelli hjá Airport Associates,
sem þjónustar flest flugfélög önnur en Icelandair. Síðar starfaði ég
sem útibússtjóri hjá Securitas. Ég hef því ágætar tengingar á þessu
svæði og þekkti marga.“
Atvinnumál hafa breyst mikið
á Suðurnesjum síðustu áratugi
Hefur mikið breyst í atvinnulegu tilliti frá
því þú varst að alast upp í Keflavík?
„Ég er fædd 1980 og sannarlega hefur mikið
breyst á Suðurnesjum á mínum líftíma. Ekki síst
urðu stórfelldar breytingar þar eftir að herinn
fór árið 2006. Ég man að þá var mjög mikið
atvinnuleysi á svæðinu. Svo kom bankahrunið
2008. Í millitíðinni hafði ferðaþjónustan verið
að byggjast upp og mikið að gera á Keflavíkur-
flugvelli. Þegar kóvíd-19 faraldurinn, sá stóri
skellur, brast á lamast meira og minna allt á
svæðinu.“
Aðstoðaðir þú marga þjónustuþega VIRK í
atvinnuleit á því tímabili?
„Fyrst á kóvíd-tímanum var ég með þetta tólf
til þrettán manns í atvinnuleit hverju sinni. Ég
var þá í fimmtíu prósent starfi enda hafði ég
þá nýlega lokið starfsendurhæfingu sjálf hjá
VIRK. Sú reynsla hefur verið mér dýrmæt í starfi.
Hlutastarfið reyndist mér fjölskylduvænt og ég
gat sem fyrr sagði nýtt mér vel tengsl og reynslu
úr fyrri störfum. Fljótlega var ég komin í sjötíu
prósent vinnu og svo fór ég í fullt starf.
Reyndar var ég ótrúlega heppin á kóvídtímanum
af því ég var ein á skrifstofu og gat ég tekið á
móti fólki þótt samkomutakmaknir væru með
því að fylgja settum reglum hverju sinni, svo sem
grímuskyldu og fjarlægðartakmörkum. Hingað
í Borgartún kem ég vikulega til þess að sækja
fundi og laga mig að því sem er að gerast innan
starfsemi VIRK hverju sinni en skrifstofan mín er
í húsnæði VR í Reykjanesbæ.
Langflestir sem til mín hafa leitað vilja komast
sem fyrst út á vinnumarkaðinn. Almennt veit
fólk vel að það hefur það betra úti á vinnu-
markaðinum, fjárhagslega, félagslega og and-
lega. Langflestir sem hafa komið til mín eru því
vinnumiðaðir.
Ástæða er til að taka fram að það er allt öðruvísi
að vera í atvinnutengingu hjá VIRK heldur en að
hitta ráðgjafana í sjálfu endurhæfingarferlinu.
Atvinnulífstengillinn hittir einstaklingana sem
hann er að aðstoða örar, svona einu sinni í viku
að jafnaði en ráðgjafa sína hittir fólk yfirleitt
svona einu sinni í mánuði nema í upphafi
ferlisins.
Ég hef þjónustað fólk á öllum aldri, allt frá saut-
ján ára og framundir sjötugt. Um þessar mundir
er ég að aðstoða sextíu og sjö ára einstakling,
einstaklega heilsuhraustan og hressan sem er
til í að vinna við hvað sem er. Okkur hefur ekki
gengið vel að finna vinnu fyrir viðkomandi en
ég er viss um að það mun ganga. Ég er þegar
búin að tala við nokkra vinnuveitendur og eftir
að hafa útskýrt málið fyrir þeim þá segja þeir
jafnan: „Endilega segðu viðkomandi að sækja
um, við erum ekki með aldursfordóma.“.
Aldursfordómar virðast vera að
minnka
Eru aldursfordómar áberandi hjá
fyrirtækjum, að þínu mati?
„Það er að breytast. Maður sér að fyrirtæki
eru í auknum mæli að setja inn í auglýsingar
merkingar þar sem starfið er sagt henta
ágætlega eldra fólki og líka birtast auglýsingar
þar sem fólk á öllum aldri er hvatt til að sækja
um viðkomandi starf. Stærsti hópurinn sem ég
hef þjónustað er þó líklega á aldrinum tuttugu
og fimm til fimmtíu og fimm ára.“
Hvort er auðveldara að finna vinnu fyrir
karla eða konur?
„Ég hef verið með fleiri konur í þjónustu
einfaldlega af því að það koma fleiri konur
en karlar í þjónustu hjá VIRK. Mín reynsla er
að það sé ekkert auðveldara fyrir karla en
konur að finna sér starf. Það fólk sem ég fæ
til mín er ekki endilega ekki mikið menntað. Á
höfuðborgarsvæðinu er algengara að ráðgjafar
VIRK aðstoði fólk í atvinnuleit sem hefur hærra
menntunarstig.“
Hvernig taka fyrirtæki því þegar þú hringir
og ert að athuga með störf?
„Ég hlusta á hvað þeir sem ég þjónusta eru
sjálfir að hugsa varðandi atvinnu og hef
samband við fyrirtæki sem eru á svipaðri línu.
En ef þjónustuþegi VIRK sér auglýsingu og vill
sækja um þá aðstoða ég hann við það.
Í langflestum tilfellum eru undirtektir jákvæðar
hjá fyrirtækum en ekki þó þannig að um skuld-
bindingar sé að ræða, fremur má segja að þeir
sem ráða fólk séu tilbúnir til að skoða málið
og taka viðkomandi þjónustuþega í viðtal. Að
komast í viðtal er stórt og jákvætt skref fyrir fólk
í atvinnuleit.
Fyrirtæki viljug að taka fólk frá
VIRK í vinnuprófun
Einnig hef ég gjarnan samband við fyrirtæki
til að koma fólki í svokallaða vinnuprófun. Það
gengur vel að fá fyrirtæki til að taka fólk í vinnu-
prófun sem stendur yfirleitt í svona sex til átta
vikur. Almennt er það svo að það er óvissa
um vinnugetu þeirra sem fara í vinnuprófun.
Þar kemur svo í ljós hvað fólk treystir sér til og
getur. Áður en vinnuprófun hefst set ég upp
plan með viðkomandi einstaklingi og vinnu-
veitanda. Þjónustuþegi fær ekki laun á þessu
tímabili, enda flestir í þeirri stöðu að vera á
endurhæfingarlífeyri. Fyrrnefnd þrenning
setur svo upp plan fyrir hverja viku fyrir sig.
Yfirleitt er byrjað með fimmtán til tuttugu
prósenta starfshlutfalli fyrstu vikuna sem fer
svo stigvaxandi þar til komið er upp í fimmtíu
prósent síðustu vikuna.“
Og hvernig gengur fólki í svona
vinnuprófun?
„Yfirleitt gengur þetta ágætlega og stundum
leiðir vinnuprófun til ráðninga. Stöku sinnum
gerist þó að einstaklingur þarf að hætta og þá
yfirleitt vegna heilsubrests. Þá standa honum
önnur úrræði til boða.“
Er eitthvað um að fólk frá VIRK í
atvinnuleit á Suðurnesjum fari í nám?
„Já, það er talsvert um það. Við erum vel stödd
í skólamálum hér. Fjölbrautaskóli Suðurnesja
er í Keflavík og svo höfum við Keili á Ásbrú. Til
dæmis er einn þeirra sem ég er með í þjónustu
núna í hlutanámi í Keili. Reyndar er það svo
að þeir sem eru á endurhæfingarlífeyri mega
ekki vera í fullu námi. Litið er svo á að ef fólk
geti verið í fullu námi þá þurfi það ekki á neinni
endurhæfingu að halda.“
Hvernig gengur að finna fólki atvinnu á
flugvellinum, þessum stærsta vinnustað
Suðurnesja?
„Það hefur gengið ágætlega en það eru samt
ekki sérlega margir sem ég hef þjónustað sem
hafa endað í starfi uppi í flugstöð.“
Stundum þarf að leiðbeina fólki
Hefur þú verið með marga útlendinga í
þjónustu?
„Yfirleitt svona einn til tvo í einu. Samstarfið við
erlenda þjónustuþega VIRK gengur almennt vel
ef viðkomandi talar ensku en hægar ef fólk talar
eitthvert annað tungumál. Þá hef ég fengið túlk
til aðstoðar og einnig notast ég við tölvuþýðingar
Ég hef þjónustað
fólk á öllum aldri,
allt frá sautján
ára og framundir
sjötugt. Um þessar
mundir er ég að
aðstoða sextíu og
sjö ára einstakling,
einstaklega
heilsuhraustan og
hressan sem er til
í að vinna við hvað
sem er.
32 33virk.is virk.is