Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 67
VIÐTAL
næmari fyrir líðan annarra og aukið því
þrautseigju gegn erfiðleikum. Oft stríða þeir
sem alast upp við erfiðleika í æsku samt við
ofurárverkni og eiga erfitt með að treysta
fólki.
Áföll geta birtst í forðun – til dæmis að
forðast ákveðnar aðstæður. Þá höndlar
fólk ekki aðstæðurnar vegna þess að þær
minna á eitthvað sem það hefur gengið í
gegnum í æsku, meðvitað eða ómeðvitað.
Alla jafna viljum við öll forðast sársauka
eða upplifa hann hvort sem er líkamlega
eða andlega. Ekki síst á þetta við um börn
sem geta ekki forðað sér úr aðstæðum
sem þau ráða ekki við. Þá eru viðbrögðin
gjarnan að aftengja sig tilfinningalega og
líkamlega. Það kallast á ensku dissociation.
Þá aftengir barnið sig aðstæðum. Það er
stundum eina bjargráðið sem það hefur til
að geta lifað af erfiðar aðstæður.“
Hvernig hefur reynst að hafa saman í hóp
fólk sem stríðir við margvíslegan vanda?
„Bara vel. Við höfum skipulagt þetta með-
ferðarúrræði og rannsókn því tengdu áður
í samvinnu við VIRK. Þá fóru tveir hópar frá
VIRK í gegnum svona námskeið, annar var
fyrir konur og hinn fyrir karla. Árangurinn
hefur reynst góður. Sérfræðingar hjá VIRK
völdu í hópana. Áður fór fram ákveðið mat
á einstaklingum hjá VIRK og einnig hér –
inntökuviðtöl. Við matið var skoðað hvort
viðkomandi ætti erindi inn í svona hóp. Ef
svo var var honum boðið að taka þátt ef
hann hafði áhuga. Árangur þeirra hópa
reyndist góður og því erum við að halda
áfram. Það hefur gengið ágætlega að safna
í nýja hópa.“
Þurfa sálfræðingar að aftengja sig eigin
minningum við aðstæður sem þessar?
„Hver og einn tengir við mismunandi
reynslu. Hjá sálfræðingi er þetta að vissu
leyti eins og að ganga inn í hlutverk. Að
sjálfsögðu finnur maður til með fólki sem
á að baki erfiða æsku en mitt hlutverk er
að reyna að hjálpa einstaklingum og ég geri
það ekki ef ég fer inn í sorgina með þeim.
Sem sálfræðingur hefur maður uppi það
hugarfar að vera ljósið í myrkrinu. Í þessu
starfi þarf að hafa fræðin í forgrunni.“
Markmiðið að draga úr áhrifum
erfiðra æskuára
Styðjið þið ykkur við erlenda fyrirmynd í
svona námskeiði?
„Þetta námskeið var í upphafi byggt upp
hjá Oxford Cognitive Therapy Center
í Bretlandi og ætlað átján ára fólki og
eldra sem hefur upplifað þungbær áföll
í æsku og er að takast á við langvarandi
sálrænan vanda. Í gegnum árin hefur verið
byggt á fagþekkingu og gagnreyndum
áfallamiðuðum aðferðum hugrænnar
atferlismeðferðar (HAM). Einnig því sem
þátttakendur námskeiðs hafa sagt og
faglegri þekkingu þeirra meðferðaraðila
sem hafa séð um námskeiðið hverju sinni.
Þetta hefur komið meðferðinni í það form
sem hún er í núna. Það hefur verið slípað til,
bæði erlendis og hér.
Sem dæmi munum við á næsta námskeiði
nýta okkur þá þekkingu sem við öðluðumst
á síðasta námskeiði þar sem eingöngu
voru þjónustuþegar frá VIRK. Eitt af því
sem þátttakendur á báðum fyrrgreindu
námskeiðum nefndu var að þeir vildu hafa
einstaklingstíma um miðbik meðferðar.
Næsta námskeið verður því átján
meðferðartímar og einn einstaklingstími.
Í einstaklingstímunum mun fólkið fara
dýpra í sín mál en í hópmeðferðinni. Ræða
atriði sem það vildi ekki endilega tala um
í hópnum – skoða líðan sína og sýn á
æskuna og afleiðingar hennar. Hópurinn
vinnur saman við ákveðna hluti og því ekki
hægt að einblína á aðstæður hvers og eins.
En ef þátttakandi fær einstaklingstíma þá
er sjónarhornið á honum í fimmtíu mínútur.
Við tökum mest tíu manns í hóp sem tveir
sálfræðingar sjá um. Tímarnir eru 90
mínútur í senn, tvisvar í viku.“
Vinnið þið verkefni í þessari meðferð?
„Já. Fólkið gerir verkefni eftir hvern
meðferðartíma. Markmið meðferðarinnar
er að draga úr áhrifum erfiðrar æsku á
daglegt líf þátttakenda og aðstoða þá við
að þróa uppbyggileg bjargráð. Við byrjum
meðferðina á að lýsa því hvernig hún á að
ganga fyrir sig en bjóðum jafnframt uppá
að breyta röð viðfangsefna ef ástæða
þykir til. Við erum einnig með matslista í
hverjum tíma. Við skilgreinum líka ákveðnar
hópreglur þar sem hópurinn ákveður
hvernig reglur hann vill setja varðandi
samveruna í hóptímum.
Við leggjum ríka áherslu á að enginn þarf
að tala meira en hann vill. Okkur finnst
skipta gríðarlegu máli að umhverfið
sé öruggt. Í lok hvers tíma er hverjum
og einum velkomið að eiga orð við
okkur fagaðilana ef þörf krefur. Sumir
þátttakendur eru auðvitað opnari en aðrir
en það tekur tíma fyrir fólk að átta sig hvert
á öðru. Fljótlega myndast þó góð samheldni
í hópunum. Það sama hefur gerst í hópum
þar sem hafa verið þátttakendur sem ekki
hafa komið frá VIRK.“
Er einhver munur á hópum sem koma frá
VIRK og öðrum þátttakendum?
„Þeir sem koma frá VIRK eru allir í starfs-
endurhæfingu. Greinilega var tölu-
verður léttir fyrir það fólk að byggja á
sama grunni. Fyrr en varði myndaðist
sameiginleg stemning í hópnum, skilningur
og samkennd ríkti milli fólks. Því leið vel
að finna að það er ekki eitt í heiminum.
Í hópum hjá okkur núna eru einungis
þjónustuþegar VIRK.“
Hvað er helst að hrjá þá sem koma á
áfalla-HAM námskeið hjá ykkur?
„Þungbær reynsla í æsku veldur því oft að
fólk finnur fyrir skömm og sjálfsmatið getur
verið bágborið. Þá er oft erfitt fyrir fólk að
vera ekki á vinnumarkaði. Íslendingar
spyrja yfirleitt hvern annan: „Hvað gerir
þú?“ – Eins og það sé mælikvarði á okkar
persónulegu gæði. Það er berskjaldandi að
ganga inn í hóp og vera með erfiða sögu að
baki, en á námskeiðunum sem við höldum í
Tilgangur
rannsóknarinnar
er að kanna nánar
árangur hópmeð-
ferðarúrræðisins
sem þróað var sér-
staklega fyrir fólk
með sögu um áföll
eða erfiða lífsreynslu
í æsku.
samstarfi við VIRK er sameiginlegur grunn-
ur og sameiginleg reynsla.“
Hvaða einstaklingum hentar þetta
námskeið?
„Þetta námskeið er fyrir fólk sem hefur
hlotið áföll eða erfiða lífsreynslu í æsku
af ýmsu tagi og glímir við hamlandi
áhrif þess á fullorðinsárum – svo sem
líkamlegu, andlegu eða kynferðislegu
ofbeldi, ástvinamissi, einelti, erfiðum
heimilisaðstæðum eða hafa búið við
einhvers konar aðrar bágbornar aðstæður
eða vanrækslu.“
En hvernig getur svona meðferð hjálpað
fólki í starfsendurhæfingu?
„Þetta er góð spurning en svarið er flókið.
Flest höfum við gott af því að þekkja
okkur sjálf aðeins betur og margir að efla
sjálfsmynd sína. Miðað við svörin sem gefin
voru á matslistum í fyrri rannsóknarhópum
þá batnaði sjálfsmynd fólks á námskeiðinu
og það skildi betur af hverju það bregst
við eins og það gerir á fullorðinsárum. Við
sáum athugasemdir einsog: „Palli er ekki
lengur einn í heiminum – núna skil ég hvað
kom fyrir mig og af hverju ég er svona – ég
er ekki sú klikkaða lengur – eða skrýtna.
Þeir sem hafa gengið í gegnum erfiða
reynslu í æsku skilja ekki endilega afleið-
ingarnar til fulls. Þolendur eru gjarnan
viðbrigðnir og geta jafnvel átt í erfiðum
samskiptum við aðra því þeir eiga erfitt
með traust. Allt getur þetta átt sér ákveðna
skýringu í sögulegu samhengi.“
Skoðum í rannsóknum hvað virkar
Hvernig hjálpar þetta námskeið fólki að
fara út á vinnumarkaðinn?
„Með því að skilja sjálft sig betur, líðan sína
og viðbrögð og setja í samhengi getur fólk
lært að takast á við vanda sinn á annan hátt
og höndla líðan sína betur. Við það getur
sjálfsmyndin aukist og fólk þá treyst sér
fremur út á vinnumarkaðinn aftur, ýmist í
sitt gamla starf, eða í meira krefjandi starf
en áður og sumir taka jafnvel það skref að
breyta um starfsvettvang.
Við höfum sem fyrr sagði gert rannsóknir á
tveimur hópum og auk VIRK voru þar með
okkur tveir mastersnemar frá Háskólanum
í Reykjavík. Niðurstöður þeirra rannsókna
lofuðu góðu og nú viljum við halda áfram,
það er Áfalla- og sálfræðimiðstöðin í
samstarfi við VIRK. Þar hugsum við okkur
að nýta þær niðurstöður sem fengust í
fyrrgreindum námskeiðum. Ég var og er
ábyrgðarmaður þessara rannsókna og við
viljum safna frekari gögnum til að sjá hvort
þessi meðferð sé í raun að bera árangur í
starfsendurhæfingu. Skoða hvað virkar
og hvað má bæta. Í hinni fyrirhuguðu nýju
rannsókn ætlum við meðal annars að skoða
hvort einstaklingsviðtölin geti jafnvel gefið
okkur enn betri niðurstöðu.“
Hvernig eru svona námskeið byggð upp?
„Í fyrstu tímunum erum við mikið í að
byggja upp færni en þegar frá líður förum
við í þyngri málefni. Þetta er því samvinna
og svo heimavinna á milli tíma. Markmiðið
er að draga úr hamlandi áhrifum þung-
bærrar lífsreynslu í æsku og gefa fólki tæki
og tól til að takast á við framhaldið og loks
að „skila skömminni“. Eitt af því sem við til
dæmis gerum á námskeiðunum er að tala
um sorg. Mörgum fannst það gagnlegt á
fyrri námskeiðum – það að geta syrgt æsku
sem aldrei var – syrgt barnið sem aldrei
fékk að blómstra. Sorgin og skömmin yfir
því að lífið hafi verið svona í æsku getur
verið gríðarlega mikil en fólk áttar sig ekki
alltaf á tengingunni nema í svona samtali.
Skömmin og forðunin getur valdið því að
fólk áttar sig ekki á því að á þessu skeiði
var viðkomandi bara barn og ábyrgðin var
ekki þess. Það er áhugavert, eins mikið og
við höfum talað um áföll, þá kemur alltaf
upp í þessum hópum sem ég hef verið
með þessi setning: „Já – ég hef bara ekki
áttað mig á þessu!“. Okkur finnst ýmislegt
Samstarf okkar
við VIRK hefur
gengið mjög vel
og rannsóknin
sem við gerðum
með VIRK og
mastersnemunum
gaf þýðingarmiklar
upplýsingar um
hvað í okkar
meðferð er að virka.
rökrétt þegar við horfum á aðra en sjáum
hið sama hjá okkur ekki fyrr en við lítum inn
á við og náum að setja æskuna í samhengi.
Fólk er kannski orðið vant því að telja sig
ómögulegt, að það hafi á einhvern hátt
verið „rangt“. Barn sem elst upp við að
ekki er hlúð að því, hefur verið beitt ofbeldi
eða lagt í einelti – hvernig á það að fá þá
hugmynd um sjálft sig að það sé mikils
virði?
Sem betur fer ná flestir bata eftir áföll, en
þegar þau eru langvarandi, eins og þegar
um er að ræða flókna áfallastreituröskun,
þá er þetta orðið víðtækara. Hvernig
börn taka áföllum fer eftir aldri og ýmsum
aðstæðum. Við erum með mjög færa
barnasálfræðinga hér á landi en það er
spurning hvort nógu fljótt sé gripið inn í,
hvort samfélagið sé nægilega vakandi. Og
svo eru það tilvikin þar sem börn átta sig
ekki á ofbeldinu eða segja ekki frá og fá
þar af leiðandi enga hjálp – þau þurfa þá
gjarnan að vinna úr áföllum æskuáranna á
fullorðinsárum. Það koma alltaf einhverjir úr
öllum þessum hópum á svona námskeið.“
Mikilvæg stefna VIRK að auka
rannsóknir
Nú er VIRK að stórefla rannsóknir í
samráði við þjónustuaðila. Hvernig líst þér
á þá stefnu?
„Mér finnst þetta gríðarlega mikilvæg
stefna. Samstarf okkar við VIRK hefur
gengið mjög vel og rannsóknin sem við
gerðum með VIRK og mastersnemunum
gaf þýðingarmiklar upplýsingar um hvað
í okkar meðferð er að virka. Þar gafst
okkur líka tækifæri til þess að líta inn á
við og efla starfsemi okkar. Við viljum
starfa á faglegum grunni og byggja á
gagnreyndum aðferðum. Komast að því
hvað þátttakendum finnst gagnlegt og
þannig hvað sé að bera árangur.“
Sjáið þið fyrir ykkur svona rannsóknarstarf
í auknum mæli?
„Já, við höfum þegar sótt um styrki til
frekari rannsókna og erum með fleiri
meðferðarúrræði sem okkur langar að
skoða með íslensku þýði og sem gæti líka
gagnast fólki sem er í starfsendurhæfingu.
Fjöldi úrræða eru í boði hér á landi en
við verðum að vita hvort þau eru hjálpleg
og það fáum við ekki að vita nema með
faglegum rannsóknum.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
66 67virk.is virk.is