Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 68
VIÐTAL
LÍFIÐ ER STRÖGGL
RÚNAR HELGI ANDRASON sálfræðingur
Við hittum Rúnar Helga fyrir í viðtalsherbergi hans í Garðabæ til að
fræðast um þetta meðferðarúrræði – hvað ACT sé í raun.
„ACT stendur fyrir Acceptance and Commitment Therapy.
Acceptance felur í sér að gangast við hlutum sem er annað en
að sætta sig við hluti. Fólk reynir oft að sætta sig við ýmislegt sem
gerst hefur en það gengur oft ekki vel. Nálgun er að gangast við
stöðunni eins og hún er – horfast í augu við raunveruleikann.
RÚNAR HELGI ANDRASON, SÁLFRÆÐINGUR,
ER SÉRFRÆÐINGUR Í KLÍNÍSKRI SÁLFRÆÐI
OG STARFAR SEM YFIRSÁLFRÆÐINGUR
Á REYKJALUNDI. HANN HEFUR
EINNIG Í NOKKURN TÍMA VERIÐ MEÐ
ACT-HÓPMEÐFERÐ, ÞANGAÐ SEM
ÞJÓNUSTUÞEGAR VIRK HAFA LEITAÐ.
Reynslan hefur
sýnt að þegar fólk
er langt komið í
bataferli og hugsar
til að fara út á
vinnumarkaðinn
þá er það tilbúið
til að taka við
þeim verkfærum
sem það fær á
námskeiðinu.
Commitment felur í sér að skapa sér
innihaldsríkt líf þrátt fyrir missi eða
heilsufarsvanda af andlegum eða
líkamlegum toga. Therapy er svo
meðferðarúrræðið sjálft,“ segir Rúnar Helgi.
Hvernig hagar þú hópmeðferðinni ACT?
„Mér finnst heppilegast að hafa svona
um það bil tíu til tólf manns í hverjum hóp.
Fólk sem mætir á þessi námskeið hjá mér
hefur yfirleitt ríkan áhuga á að fá bata en
er oft á mismunandi stöðum í bataferli
og starfsendurhæfingu. Ekki hefur verið
skilgreint hvort þetta úrræði sé heppilegt
í upphafi bataferils, í miðju þess eða í lok
endurhæfingar. Reynslan hefur sýnt að
þegar fólk er langt komið í bataferli og
hugsar til að fara út á vinnumarkaðinn þá er
það tilbúið til að taka við þeim verkfærum
sem það fær á námskeiðinu. Það er mín
tilfinning fyrir þessu en hún byggist ekki á
fræðilegri rannsókn.“
Hvetur fólk til að vinna með
líðan sína
Hvernig byrjar þú svona hópmeðferð?
„Hugsanir og tilfinningar hindra okkur
stundum frá því að lifa innihaldsríkara lífi
og námskeiðinu er ætlað að finna leiðir til
að yfirstíga það. Hvað er innihaldsríkt líf er
svo einstaklingsbundið og ég boða enga
uppskrift að slíku á námskeiðinu. Ég beini
fólki ekki í ákveðinn farveg heldur hvet það
til að vinna með líðan sína.
Ég set mér tvö markmið fyrir fyrsta tímann.
Annars vegar að fólki líði vel og það kynnist
hvert öðru. Hitt markmiðið er að það stígi
örlítið út fyrir þægindarammann.
Ég læt fólk gera verkefni og svara ákveðn-
um spurningum sem varða tilfinningar þess
og líðan. Ef vel tekst til að skapa góðan hóp
þá kemur fólk í annan tímann með opinn
huga. Mikilvægt er að ná góðu sambandi
við fólk í þessum tveimur tímum, þar er
lagður grunnur að þeirri dýpt sem kemur
svo í framhaldinu.“
Er betra að kljást við svona viðfangs-
efni í hóp en með einum í einu?
„Um er að ræða tvö ólík ferli. Ég legg til
fræðsluna, verkfærin og vettvang fyrir fólk
til að tjá sig – sjálfsvinnuna vinnur svo hver
útaf fyrir sig. Í einstaklingsmeðferð kafar
fólk dýpra. Sé fólk með áfallastreituröskun
þarf það stundum einstaklingsmeð-
ferð samhliða hópmeðferð. Slíkt getur
unnið mjög vel saman. En sé um að
ræða skakkaföll í lífi fólks en ekki áfalla-
streituröskun þá getur námskeiðið kannski
dugað eitt og sér.
Ég er búinn að vera með svona námskeið
síðan 2021 og ég segi gjarnan í upphafi:
„Ég veit hvað ég er að fara að gera en
X-faktorinn – það eru þið. Og ykkar framlag
skiptir ekki minna máli en mitt.“. Ég gef
þannig boltann á þátttakendur, ef svo má
segja.“
Hvernig gagnast ACT hópmeðferð í
starfsendurhæfingu?
„Fólk sem kemur í hópmeðferð hjá mér
er hugsanlega með depurð og þunglyndi,
kvíða, áfallasögu eða lágt sjálfsmat, svo
eitthvað sé nefnt. Þessi meðferðarnálgun
nýtist við ólíkum röskunum og hentar því
vel í starfsendurhæfingu. Í hópnum er fólk
með ólík vandamál en við erum jú öll ólík
og það er gott að geta deilt því með öðrum,
fundið að annað fólk er líka að kljást við
vanda. Það hefur mikil áhrif á fólk að geta
ekki lengur framfleytt sér á eigin vinnu.
Slíkt er í eðli sínu áfall fyrir mannskepnuna.
Þetta kemur berlega fram í öllum hópum.“
Hvað gerist ef fólk endurheimtir ekki
starfsgetu sína?
„Fyrir kemur að heilsufarsvandi fólks er það
flókinn og erfiður að það kemst ekki aftur til
vinnu. Eigi að síður skiptir svona námskeið
viðkomandi miklu máli. Fólk fer þá út í lífið
með þau verkfæri sem það hefur fengið í
hendur í meðferðinni og getur tekist á við
erfiðar hugsanir og tilfinningar.“
ACT-nálgunin almennt mann-
bætandi
Fyrir hverja virkar þetta úrræði best?
„Ég get aldrei fyrirfram vitað hverjir í hópn-
um grípa boltann og hverjir ekki. Mér er
minnisstæð kona sem virtist afskaplega
hlédræg allt námskeiðið og tók sjaldan
þátt í virkum umræðum. En svo sá ég í
lokin á matslistum að hún hafði bætt sig
langmest. Þetta er flókið fyrirbrigði. Ég
get því ekki svarað þeirri spurningu fyrir
hverja þetta henti best. Hins vegar er
ACT-nálgunin almennt mannbætandi.
Þeir sem koma og vinna verkefnin sem ég
legg upp með fá mest út úr námskeiðinu,
almennt. Mín reynsla er sú að flestir taki vel
við. Ég reyni að beita vingjarnlegri nálgun
og upplýsingarnar séu þannig að það sé
auðvelt að taka þær inn í líf sitt.“
Hjá VIRK er stefnt að því að efla tækifæri
til rannsókna og hvetja úrræðaaðila til
að mæla framvindu meðferða í auknu
samstarfi. Hvernig líst þér á það?
„Ég er hlynntur þeirri stefnu og stend
sjálfur fyrir rannsókn um þessar mundir.
Ég hef rætt við fólk hjá VIRK og mér finnst
þar ríkja skynsamleg stefna hvað varðar
rannsóknir. Oft er erfitt að mæla úrræði
en jafnframt nauðsynlegt. Mér finnst að
þeir matslistar sem ég legg fyrir fólkið sem
sækir námskeið hjá mér séu ekki endilega
að mæla þetta nægilega. Ég myndi því vilja
sjá sambland af matslistum og eigindlegum
rannsóknum, þar sem er rætt við fólk líka.
Eðlilega vill endurhæfingaraðili eins og
VIRK fá yfirsýn yfir það hvað er að nýtast í
endurhæfingarferli.“
Kennir fólki að bera kennsl á
tilfinningar sínar
Skipta rannsóknir máli í klínísku starfi að
þínu mati?
„Almennt skipta rannsóknir í klínisku
starfi miklu máli til að greina gagnreyndar
aðferðir frá öðru sem er í boði.
Á námskeiðinu kenni ég fólki að takast
á við ef það þyrmir yfir það. Við köllum
það; að varpa akkeri, sem er aðferð til að
hjálpa fólki að ná áttum. Ég kenni líka fólki
að skilgreina gildin sín, persónulega út frá
fjölskylduaðstæðum og öðrum sviðum. Ég
legg áherslu á að fólk sé í núinu en ekki
með hugann of mikið í fortíð eða framtíð.
Í lokin hvet ég fólk til að sýna sjálfu sér
mildi og bæta þannig sjálfsmynd sína.
68 69virk.is virk.is