Á vakt fyrir Ísland - Jun 2018, Page 4

Á vakt fyrir Ísland - Jun 2018, Page 4
Á vakt fyrir Ísland4 Ný stjórn LSS Ný stjórn var kjörin á þinginu. Stefán Pétursson sjúkra- flutningamaður HSU og núverandi formaður LSS var sjálfkjörinn sem formaður LSS og mun því gegna sínu öðru tímabili sem formaður félagsins. Aðrir í stjórn eru: • Magnús Smári Smárason SA, varaformaður • Ásgeir Þórisson BS, meðstjórnandi • Kristinn Guðbrandsson SF, meðstjórnandi • Birkir Árnason SHS, formaður fagdeildar sjúkra- flutningamanna • Steinþór Darri Þorsteinsson SHS, formaður fagdeildar slökkviliðsmanna • Pétur Arnarson, formaður fagdeildar slökkviliðsstjóra / stjórnenda Varamenn í stjórn eru: Anton B. Carrasco, SA og Sigurjón Hendriksson, SHS. Á þinginu voru eftirtaldar ályktanir samþykktar: Að skora á Brunamálaskólann að sjá til þess að kennarar skólans uppfylli kröfur skv. lögum 75/2000 og 1088/2013 – 12gr. um menntun, þjálfun og æfingaskyldu slökkviliðsmanna. Að skora á fagráð sjúkraflutninga Íslands, Landlæknis- embættið, velferðarráðuneytið og rekstraraðila sjúkra- flutninga að ljúka hafinni vinnu við uppsetningu raf- rænnar sjúkraskrár í utanspítalaþjónustu. Að skora á íslensk yfirvöld og þar til ábyrgar stofnanir að sameinast um eflingu utanspítalaþjónustu á Íslandi. Að settur verði á laggirnar vinnuhópur sem endurskoðar nám slökkviliðsmanna frá grunni. Vinnuhópur sem er skip- aður af fulltrúum frá Mannvirkjastofnun, slökkviliðsstjórum og fulltrúum LSS. Að endurvekja íþróttamót sem LSS stóð fyrir við góðan orðstír. Hvetja stjórn LSS og orlofssjóð að fara yfir orlofshúsa- mál félagsins og kynna næstu skref. Stefnt að því að eigi síðar en 2023 skulu allar sjúkrabif- reiðar hafa besta mögulega búnað til að minnka líkamlegt álag við sjúkraflutninga, þar meðtalið sjúkrabörur með rafknúnum lyftubúnaði, rafknúna stigastóla o.fl. Samþykkt var að halda málþing til eftirfylgni á ályktun frá 16. þingi um fræðslu og þjálfunaraðstöðu fyrir slysa- og björgunaraðila. Þingið lýsir fullum stuðningi við kjarabaráttu ljósmæðra. Félagsmenn LSS hafa þungar áhyggjur af töfum á samþykktum nýrrar reglugerðar um slökkvilið og krefjast þess að hún verði kláruð sem fyrst. Skorað er á fagráð sjúkraflutninga Íslands að halda áfram að uppfæra vinnuferla fyrir sjúkraflutningamenn og bráðatækna. Ályktað var um starfslok slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna um að stefnt verði að því að þeir sem sinna þessum störfum geti látið af störfum við 55 ára aldur. Skorað er á yfirvöld að viðurkenna og votta forgangs- akstursnámskeið fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn. Önnur mál Félagsgjöld fyrir hlutastarfandi hækkuðu úr 1% í 2,5% af öllum launum og hjá þeim sem greiða aukafélagsgjald hækkaði úr 10.000 kr. í 15.000 kr. Félagsgjald þeirra sem eru í fullu starfi er óbreytt. Stjórn LSS var hvött til að stofna vinnuhóp til að skoða atkvæðavægi á milli þeirra sem eru í fullu starfi og hluta- starfandi og skila tillögum sem fyrst. 17. ársþing LSS

x

Á vakt fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Á vakt fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/1850

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.