Á vakt fyrir Ísland - Jun 2018, Page 14
Á vakt fyrir Ísland14
Vinna fagdeildar sjúkraflutningamanna
hefur verið með líku sniði og undanfar-
in ár. Fimm formlegir fundir hafa verið
haldnir, þó hafa fulltrúar fagdeildarinnar
setið marga fundi með öðrum aðilum/
stofnunum og jafnframt haldið góðu
sambandi þess á milli. Aðrir fundir eru
í skyndihjálparráði, endurlífgunarráði,
fagráði sjúkraflutninga, faghópi vegna
nýs náms sjúkraflutningamanna, fag-
ráði Sjúkraflutningaskólans, vinnuhópi
vegna rafrænnar sjúkraskráningar og
sérstökum faghópi um sjúkrabílamál.
Töluverð vinna og yfirlega hefur verið
yfir nýju námi sjúkraflutningamanna.
Nú er loksins búið að uppfæra náms-
efni fyrir grunnnám og framhaldsnám
skv. bandarískum stöðlum sem fylgt
hefur verið um árabil, EMT – basic og
advanced, áður intermediate. Vilji er til
að skoða hvort þessir tveir hlutar geti
saman nægt til þess að öðlast megi
starfsheiti sem sjúkraflutningamaður.
Til þess þarf þó breytingu á reglugerð.
Fleiri tækifæri og gluggar til að sækja
bráðatæknanám hafa opnast. Algjör
bylting hefur átt sér stað hvað það
varðar. Fjöldi íslenskra sjúkraflutninga-
manna hafa sótt, og eru enn að
sækja, svokallað „hybrid“ nám í bráða-
tæknafræðum í Boston. Bóklegi
hluti námsins er kenndur í fjarnámi en
klíníski hlutinn tekinn í Boston. Um er
að ræða nám sem uppfyllir öll skilyrði
og kröfur sem gerðar eru til paramedic-
náms í skólum í Bandaríkjunum.
Þetta fyrirkomulag hefur gefið þeim
aukið aðgengi að náminu sem ekki
hafa séð sér fært að flytjast búferlum
til Bandaríkjanna til að stunda fullt
staðarnám. Það er dýrmætt að halda
tengingunni við Bandaríkin og fá
ómetanlegt náms- og þjálfunartækifæri
í verklegu og vel þróuðu námi. Um-
hverfið er allt annað en við eigum að
venjast, í stórborg þar sem fjöldi tilvika
og fjöldi sjúklinga er langtum meiri en
hér á landi.
Aðrir feta nýjar brautir og sækja nám
í Noregi og Bretlandi þar sem bráða-
tæknanámið er þriggja ára bakkalár-
prógram með möguleika á framhalds-
námi á mastersstigi. Einn bráðatæknir
frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
(SHS) lauk nýverið BSc gráðu í fræð-
unum í Pittsburgh. Þar að auki eru
tveir bráðatæknar frá SHS að sækja
sér aukna BSc menntun í Limerick á
Írlandi. Þetta er mjög spennandi og
mikilvæg þróun sem LSS hefur reynt
að styðja vel við.
Hávær umræða hefur verið uppi í
þjóðfélaginu um nauðsyn þess að
efla heilbrigðiskerfið. Aðilar sem að
málinu koma hafa bent á mikilvægi
þverfaglegrar teymisvinnu allra
heilbrigðisstétta. Ljóst er að ef bæta
á heilbrigðisþjónustu þannig að allir
landsmenn hafi jafnan aðgang að
kerfinu, hvar sem í sveit eru settir, þá
þarf utanspítalaþjónusta að vera öflug
og skilvirk. Til þessa hefur hún verið illa
skilgreind og naumt rekin. Fagdeildin
hefur beitt sér, og mun áfram beita sér,
fyrir því að rödd sjúkraflutningamanna
heyrist á þeim vettvangi og að áherslur
stéttarinnar séu virtar við stefnumótun
málaflokksins. Nýlegir fundir með
ráðherra heilbrigðismála og fulltrúum
ráðuneytisins blæs von í brjóst.
Undirrituðum finnst óþægilegt að
fagstéttinni sé boðið upp á óvissu og
óöryggi varðandi bíla og búnað en
staðfestir þó og ítrekar að núverandi
ráðherra hefur tekið þessi mál afar
föstum tökum og sýnt fagmannlega
nálgun. Ráðherrann hefur lagt ríka
áherslu á fulla aðkomu fagaðila að
málaflokknum og ekki annað að ætla
en að málalyktir verði farsælar.
Þegar kemur að utanspítalaþjónustu
er rétt að geta sérstaklega hlutverks
Rauða krossins sem á langa og
farsæla sögu í uppbyggingu á sjúkra-
flutningakerfinu á Íslandi. Rauði kross-
inn vann ötullega að því að kaupa bíla
og búnað og aðkoma hans að því að
efla menntun sjúkraflutningamanna
er ómetanleg. Fyrir það verður aldrei
fullþakkað.
Í ljósi þess hve alvarlegt vandamál
aukning stoðkerfisáverka er meðal
sjúkraflutningamanna er brýnt að vinna
þar að markvissum lausnum. Það
snertir ekki bara sjálfa sjúkraflutn-
ingamennina heldur einnig rekstrar-
aðila. Fjölga þarf rafdrifnum búnaði
(börum/stigastólum) og jafnframt
tryggja að vinnurými sjúkrabifreiða
sé gott og öruggt. Að þessu er unnið
mjög ötullega.
Nú, þegar búið er að nefna bæði
menntunar- og bílamál, er við hæfi
að nefna verkefnið „simbulance“
eða sérstakan kennslu- og þjálfunar-
sjúkrabíl. LSS hrundi af stað söfnun
fyrir slíkum bíl fyrir um tveimur árum.
Það er bjargföst trú okkar að með
þessum bíl, auk öflugra kennara, sé
hægt að stórefla endurmenntun og
viðhaldsþjálfun allra sjúkraflutninga-
manna. Sér í lagi þeirra sem búa og
starfa í dreifðari byggðum landsins.
Þetta verkefni er langhlaup sem áfram
verður unnið að.
Það er vissulega óheppilegt að ekki
sé búið að koma á koppinn rafrænni
sjúkraskrá í sjúkraflutningum.
Fagdeild sjúkraflutningamanna LSS
starfsárin 2016-2018
Ný stjórn fagdeildar sjúkraflutningamanna.