Á vakt fyrir Ísland - jún. 2018, Blaðsíða 19
Á vakt fyrir Ísland 19
- MAN TGM 18.340 með 340 hest-
afla vél, árgerð 2017. Fjórhjóladrif
með háu og lágu drifi, læsingum,
beinskiptur.
Mannskapshús er sex manna með fjórum
reykköfunarstólum. Tankur tekur 4500
lítra af vatni og 500 lítra af froðu. Dæla
dælir 4.000 l/mín, mónitor er á þaki og
50 metra háþrýsikefli, Led lýsing er í
skápum, ljósamastri og vinnuljósum.
9 tonna spil er að framan og bakkmyndavél.
MAN TGM 18.340 bíllinn leysti nýverið
af Mercedes Bens 1225 slökkvi- og
tækjabíl árgerð 1984. Ljóst er að fjárfest-
ing sveitarfélagsins í nýjum bíl er algjör
bylting fyrir starf slökkviliðsins.
Nýr slökkvibíll
Um nokkurt skeið hafði verið rætt um
kaup á nýjum slökkvi- og togtækjabíl
fyrir slökkviliðið en það þótti of dýrt að
á þeim tíma fyrir lítið sveitarfélag eins
og Mýrdalshrepp. Var því farið að leita
annarra leiða. Slökkviliðssjóri kannaði
hvort möguleiki væri á að kaupa not-
aðan bíl frá Þýskalandi og flytja til lands-
ins að fyrirmynd forvera okkar þegar
Bens slökkvibíll liðsins var fluttur inn
árið 1999. Á vegi okkar varð fyrirtæki
að nafni Feuerwehrtechnik Berlin sem
framleiðir fáa nýja bíla á hverju ári
en sérhæfir sig í endurnýtingu eldri
bíla sem það selur uppgerða um
allan heim eða til til minni slökkviliða
í heimalandinu. Miklar póstskriftir
hófust í kjölfarið milli okkar og Tobias
Gantenvoort sem er einn af eigen-
dum fyrirtækisins. Við sáum fljótt
að enginn af notuðu bílunum þeirra
stóðst þær kröfur sem gerðar eru
til fyrsta útkallsbíls hér á landi þótt
bílarnir hefður flestir verið ágætlega
útbúnir. Fór það svo að Tobias gerði
okkur tilboð í nýjan bíl. Það varð til
þess að Ívar Páll Bjartmarsson slökkvi-
liðsstjóri, Ágúst Freyr Bjartmarsson
varaslökkviliðsstjór, Sigurður Gýmir
Bjartmarsson sjúkraflutningamaður
og varðstjóri og Vigfús Þór Hróbjarts-
son varðstjóri og eldvarnareftirlits-
maður gerðu sér ferð til Berlínar til
að skoða bílinn. Annað var alls ekki
talið forsvaranlegt miðað við tilboðið
sem fékkst í bílinn. Flogið var út til
Berlínar að morgni 24. nóvember og
skipulögð heimsókn til Feuerwehr-
technik Berlin daginn eftir. Sú heim-
sókn olli engum vonbrigðum og fór
það svo eftir ítarlega skoðun og
reynsluakstur að bíllinn var keyptur
og skilaði sér inn í stöð í Vík að
kvöldi 3. febrúar 2017.
Breyttir tímar - breytt verkefni
Verkefni, áherslur og markmið
slökkviliðsins hafa í raun lítið breyst
frá árdögum liðsins ef horft er til þess
að hafa mannafla og búnað til að
geta tekist á við eldsvoða í sveitarfé-
laginu. Takmarkið hefur að sjálfsögðu
alltaf verið að sníða sér stakk eftir
vexti og reyna að gera eins vel og
hægt er með þeim mannskap sem
getur boðið fram krafta sína í þágu
þessa samfélagsverkefnis sem
áhugaslökkvilið er. Staðan í dag er
samt sem áður sú að umhverfi slökkvi-
liðsins er gjörbreytt. Með vaxandi
ferðamennsku í landinu hefur mikil
uppbygging orðið í hreppnum sem
er reyndar hvergi nærri lokið. Á
fáum árum hefur gistirýmum fjöl-
gað mjög mikið innan okkar svæðis
með tilheyrandi fjölgun ferðamanna.
Verkefnin eru því ekki síður orðin
á sviði eldvarna og fyrirbyggjandi
aðgerða með tilliti til getu slökkvi-
liðisins. Áhersla sem hefur reyndar
ekki verið fylgt nógu vel eftir af okkar
hálfu, einfadlega vegna smæðar.
Innviðir sveitarfélagsins hafa að
vissu leyti ekki náð að fylgja þeirri
hröðu uppbyggingu sem hefur verið
undanfarin ár. Með aukinni fræðslu,
auknu eftirliti, betri tækjabúnaði og
betur þjálfuðum mannskap vonumst
við þó til að geta tekist betur á við
þessi verkefni til framtíðar. Það er
nokkuð ljóst að mörg þeirra eru okkur
ofviða ef fyrsta viðbragð og viðeigandi
eldvarnir eru ekki til staðar.
Hótelum fylgja ferðamenn og ferða-
mönnum fylgja bílar. Umferðarþungi
hefur vaxið í takt við vinsældir svæðis-
ins og hafa fæstir farið varhluta af
því að margir af okkar góðu gestum
hafa líklega ekki keyrt mikið um
ævina og þá líklega ekki um þrönga
og hlykkjótta vegi eins og þjóðveg-
urinn okkar er á mörgum stöðum.
Það hefur orðið til fjölgunar á verkefnum
vegna bílslysa. Fæst af þeim alvarleg,
sem betur fer. Á síðustu fjórum árum
hafa þó orðið nokkur alvarleg slys og
banaslys sem slökkviliðið hefur þurft
að koma að með einhverjum hætti.
Við teljum okkur nú vera ágætlega í
stakk búin til að takast á við flest þeirra
verkefna sem geta beðið okkar úti á
þjóðveginum þótt það sé alls ekki alltaf
tilfellið. Sú reynsla sem býr innan okkar
raða er kemur að umferðarslysum
er mikils virði og verður vonandi stutt
við hana með viðeigandi endurnýjun
tækjabúnaðar á komandi árum.
Björt framtíð
Framtíðin er björt fyrir slökkvilið
Mýrdalshrepps ef áframhald verður
á því öfluga starfi sem fyrir er. Alltaf
má þó gera betur á mörgum sviðum
og höfum við mikla möguleika á að
bæta okkur. Þar horfum við sérstak-
lega til aukins eldvarnareftirlits og
fleiri æfinga á öllum sviðum slökkvi-
starfsins. Með þeim góða mannskap
sem innan slökkviliðsins er í dag þarf
þó ekki að kvíða framtíðinni.
Bíllinn skoðaður.