Á vakt fyrir Ísland - jún. 2018, Blaðsíða 21
Á vakt fyrir Ísland 21
Ég hóf störf sem slökkviliðsmaður
hjá slökkviliði Keflavíkurflugvallar
vorið 1983 og starfaði þar í 34 ár.
Hjá slökkviliði Keflavíkurflugvallar
var mikil menntunarkrafa og voru
menn sendir í nám eða kennarar
fengnir frá Bandaríkjunum til þess
að halda námskeið.
Það má segja að slökkviliðið á
Keflavíkurflugvelli hafi verið braut-
ryðjandi í skólamálum fyrir slökkvi-
liðsmenn á Íslandi enda kom Guðmund-
ur Haraldsson fyrsti skólastjóri
Brunamálaskólans frá því liði.
Ég byrjaði að kenna fyrir Brunamála-
skólann árið 2000 og er það eitt
skemmtilegasta starf sem ég hef
unnið því það eru forréttindi að fá að
fara um landið og vinna með öllu því
góða fólki sem starfar sem slökkvi-
liðsmenn.
Árið 2004 er ég beðinn um að koma
í verkefni í Kosovo. Þar var kref-
jandi og skemmtilegt að starfa sem
varaslökkviliðsstjóri og þjálfunarstjóri
á vegum friðargæslu Íslands sem tók
við rekstri flugvallarins í Prishtina.
Friðargæslan afhenti heimamönnum
flugvöllinn ári síðar og þá var þar full-
mannað slökkvilið af heimamönnum.
Þar kom sér vel öll sú menntun og
reynsla sem ég hafði fengið hjá
slökkviliði Keflavíkurflugvallar og
Brunamálaskólanum. Við útskrifuðum
fimm bekki frá okkur á þessu eina ári,
notuðum bókina góðu sem síðar var
þýdd á íslensku og er kennd í dag
hjá Brunamálaskólanum.
Ég hóf störf hjá Mannvirkjastofnun
(MVS) síðastliðið haust og var það þó
nokkuð átak að yfirgefa minn góða vinnu-
stað eftir 34 ár en allt er breytingum
háð og menn hafa gott af því að taka
áskorunum. Það er ekki mikið um
að störf hjá Brunamálaskólanum losni
en því miður þá fór helmingur af
starfsmönnum eldvarnarsviðs á
stuttum tíma.
Ég tók við góðu búi frá því góða
fólki sem var við vinnu hjá MVS
þegar ég hóf störf.
Ég hafði hugmyndir um smá breytingar
sem féllu í góðan farveg og eru þær
helstar að opna fyrir allt kennsluefni
sem við notum við kennslu hjá þeim
slökkviliðum sem eru ekki með sóla-
hringsvakt. Síðan yrðu haldin próf
hjá símenntunarstofnunum á þeim
svæðum þar sem viðkomandi slökkvi-
lið væri staðsett. Þetta gerir það að
verkum að allir sitja við sama borð
við próftöku. Þegar menn hafa lokið
bóklegu prófi og lokið við allar æfingar
í verkefnabók sem þeir verða að skila
til okkar þá taka menn verklegt próf
þar sem sett eru upp verkefni sem
viðkomandi slökkviliðsmaður verður
að leysa.
Grunnur að námi atvinnuslökkviliðs-
manna er unninn þannig að stóru
slökkviliðin leggja drög að náms-
vísi og leggja fyrir starfsfólk MVS til
samþykktar.
Atvinnuslökkviliðin halda síðan
námskeiðin, starfsfólk MVS fylgist
með og leggur síðan próf fyrir þátt-
takendur og metur niðurstöður. Þetta
hefur verið skemmtilegt verkefni og
gott samstarf á milli okkar slökkvi-
liðanna.
Ég á þann draum að við slökkviliðs-
menn getum gert skólann okkar enn
betri. Það verður ekki gert nema með
því að allir vinni saman sem eitt lið
– sem ætti ekki að vera neitt vanda-
mál því við erum nú allir í sama liði!
Sem sérfræðingur á eldvarnarsviði hjá
Mannvirkjastofnun sé ég um kennslu
og eftirlit. Kennsla er að mestu fyrir
slökkviliðsmenn og stjórnendur slökkvi-
liða. Ég hef ennfremur eftirlit með
slökkviliðum, eldvarnareftirliti og
þjónustuaðilum brunavarna sem
reka slökkvitækjaþjónustu og
brunarannsóknir.
Georg Arnar Þorsteinsson
sérfræðingur á eldvarnarsviði
Nýr umsjónaraðili
Brunamálaskólans
• University of Maryland
• Grunnnám slökkviliðsmanna #1,
#2, #3
• Akstur og dæling slökkvibifreiða
• Þjálfunarstjóri #1, #2
• Yfirmannanámskeið #1, #2
• Eiturefnanámskeið; stjórnun á
vettvangi
• Brunamálaskólinn
• Slökkviliðsmaður #1, #2, #3
• Eldvarnareftirlitsmaður #1, #2
• Stjórnendaámskeið Sandø
• Kennaranámskeið Brand og
Redning skolen Revinger
• Stjórnendanámskeið Brand og
Redning skolen Arlanda
• Stjórnendanámskeið Fire school
Teessade
• Stjórnendanámskeið hjá Capacent
• Auk fjölda annarra námskeiða í
stjórnun
• Sjúkraflutningaskólinn og endur-
menntun
Menntun: