Á vakt fyrir Ísland - Jun 2018, Page 28
28 Á vakt fyrir Ísland
Orlofssjóður hefur fimm íbúðir/
sumarhús til umráða. Tvær íbúðir eru
á Akureyri, ein í Reykjavík og tveir
sumarbústaðir í Munaðarnesi. Nýting-
arhlutfallið er mjög gott og er sumarút-
hlutunin hafin. Þessum íbúðum fylgir
viðhald og er því sinnt reglubundið
þannig að ekki komi til of mikilla
fjárútláta í einu. Stefnt er að því að
endurbæta bústaðina í Munaðarnesi
á þessu ári ásamt því að laga þak-
leka á Akureyri. Auk þess sem lagt
verður inn á höfuðstól láns á íbúðinni
í Reykjavík eftir því sem efni leyfa.
Skrifstofa LSS mun jafnframt bæta
við í sölu á þessu ári gjafabréfi sem
félagsmenn geta keypt með afslætti.
Einnig verður leitað afslátta fyrir
félagsmenn á tjaldsvæðum víða um
landið. Félagsmenn munu áfram geta
keypt veiðikortið og útilegukortið á
niðursettu verði.
Heimsleikar lögreglu-
og slökkviliðsmanna
Orlofssjóður
Heimsleikar lögreglu- og slökkviliðs-
manna voru haldnir sl. sumar en
þessa leika ættu nú flestir að vera
farnir að kannast við. Þeir voru haldnir
í þetta skiptið í LA í Bandaríkjunum en
borgin tók að sér að halda leikana með
stuttum fyrirvara þar sem að Montreal
hafði átt að hýsa leikana en hætti við
vegna deilna heima fyrir. Leikarnir
voru hinir glæsilegustu þrátt fyrir
stuttan undirbúning mótshaldara og
borginni til sóma.
Góður hópur Íslendinga, flestir frá
SHS, mætti að sjálfsögðu til leiks
og árangur bara nokkuð góður, að
sjálfsögðu.
Helstu keppnisgreinar okkar keppenda
frá SHS voru eftifarandi: Íshokkí,
hjólreiðar, hlaup, leðjuhlaup, lyftingar,
spjótkast, TCA, skotfimi og golf.
Fern verðlaun hjá okkar mönnum
Jón Trausti Gylfason náði bronsi í
spjótkasti en hann kastaði 37,06
metra, Mikael Halldórsson tollari og
fyrrverandi slökkvari landaði silfri í
10 km hlaupi. Ásgeir Gylfason og
Óttar Karlsson urðu heimsmeistarar í
bekkpressu í sínum þyngdarflokkum,
Ásgeir lyfti 180 kg í 105 kg flokki og
Óttar 162,5 kg í 93 kg flokki.
Undirbúningur fyrir næstu leika er
nú þegar hafinn hjá SHS með sama
sniði og venjulega sem er sala daga-
talsins okkar. Vonandi verða líka fleiri
þátttakendur frá öðrum slökkviliðum og
aðilum sem hafa keppnisrétt með næst
en næstu leikar verða í Kína 2019.
Heimsmeistararnir Ásgeir Gylfason
og Óttar Karlsson.
Maður getur nánast séð fyrir sér
fundina þar sem allir þessir aðilar
lögðu á borð það sem þeim fannst
að námið þyrfti að innihalda. Námið
tekur einhvern veginn á öllum þeim
þáttum sem maður hefur hefur séð
í námskrám menntastofnana í
utanspítalaþjónustu til þessa og til
viðbótar allt það sem manni hefur
fundist vanta. Sem dæmi um þetta
má nefna námskeið í fyrstu hjálp við
sjálfsvígshættu sem er alls ekki langt
og hefur ekki verið kennt í paramedic
námi í Noregi en mikið hefði ég viljað
hafa verið búinn á þessu námskeiði
þegar ég fór í mitt fyrsta sjálfsvígstil-
raunarútkall í upphafi ferilsins á Íslandi.
Nám í utanspítalaþjónustu á þessu
stigi á sér ekki langa sögu hérna
en þróunin er hröð. Heima erum við
líka búin að bæta námið mikið, bæði
innan Sjúkraflutningaskólans og utan,
og er það vel. En hér er einfaldlega
búið að taka allt þetta efni og alla
þessa reynslu saman. Í bland við
þá framtíðarsýn sem er nauðsynleg
til að standast tímans tönn er öllu
saman komið í staðlað form sem er
viðurkennt af alþjóðasamfélaginu.
Enn eitt öflugt vopn sem nýtist ekki
bara í að veita skjólstæðingum okkar
góða heilbrigðisþjónustu heldur einnig
til að lyfta okkar stétt til áframhald-
andi vegsemdar og virðingar, innan
heilbrigðiskerfisins, samfélagsins í
heild og ekki síst til halda stéttinni í
jafnvægi við aðrar þegar að kemur
að launakjörum í landinu. Þetta er
enn einn valkosturinn þegar kemur
að því að velja sér námsleið innan
fagsins og skemmtileg viðbót við
þær flottu leiðir sem okkar fólk hefur
verið að feta undanfarin ár.
http://www.hioa.no/Studier-og-kurs/
HF/Bachelor/Prehospitalt-arbeid-
paramedic