Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 4

Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 4
Kaffisopinn indœll er, eykur fiör og skapið bætir, langbest alltaf líkar mér, Lúðvíks Davíðs kaffibætir. Þessi vísa lék á flestra vörum, áður fyrr á árunum, og gerir sjálfsagt víða enn í dag. Hún er nokkurs konar ástaróður, ef svo má segja, til kaffisins, sem alltaf hefur verið nokkur uppáhaldsdrykkur hjá fólki, og kannski enn frekar á undangengnum öldum, þegar úrval drykkjarvara var öllu fátækara en við þekkjum í dag. Munar þar orðið býsna miklu, svo ekki sé nú meira sagt. I dag er hægt að standa tímunum saman framan við drykkjurvörurekkana í verslununum og fara yfír allt úrvalið, um leið og reynt er að gera sér í hugarlund, hvað væri nú fýsilegast í þetta sinnið. Og lengd rekkanna er svo sannarlega ekki talin í sentímetrum, heldur spanna þeir orðið fleiri metra í hverri búð. Ekki er það nú allt ýkja hollt sem þar er í boði, en drepur svo sem engan, ef hóflega er að farið. En mikið held ég að sú manneskja hefði orðið undrandi, sem lifði sinn blómatíma, fyrir, ja, kannski ekki nema 50 árum síðan, svo ekki sé nú lengra farið í tíma, ef hún hefði fengið þann mátt að geta séð drykkjarvörurekka búðanna í dag. Fyrir 50 - 100 árum síðan, og þaðan af lengra, var kannski ekki mikið um annað að velja hjá alþýðu fólks, en mjólk, mysu, fáeina gosdrykki kannski, vatnið, og svo auðvitað kaffið. Og það var nú frekar talið til munaðarvöru fyrr á tímum, og áreiðanlega ekki bruðlað mikið með það. Það þurfti að sækja í kaupstað, stundum langa leið, og það kostaði peninga, sem ekki var nú ýkja mikið af hjá fólki þá. Þess vegna hefur kaffíð sjálfsagt oft verið meiri hátíðardrykkur en það er í dag. Og ekki voru áhöldin eða síurnar til staðar í fyrstunni, eða afjafn fullkominni gerð og í dag tíðkast, eins og eðlilegt er. Svokallað ketilkaffí var algeng aðferð við kaffílögun, og ekki síst þegar fólk var á ferðalagi. Það mun hafa verið gert þannig að hitað var vatn og kaffið síðan sett út í, og hitað að suðu. Hefur þá væntanlega korgurinn setið eftir á botninum, og svo sem ekki ólíklegt að nokkur komin hafi læðst upp í munn með hverjum sopa. En þetta var andinn og tíminn, og fólk þekkti ekki annað. Líklega hefur kaffið fylgt mannkyninu allt frá árinu 300, en til er þekkt saga af því hvemig það á að hafa uppgötvast. I henni segir að geitahirðir nokkur í Eþíópíu, hafí komið að geitum sínum í allQörlegu ástandi, þær hafi verið ofsakátar, stangast á og hoppað um allt á afturfótunum. Og þess á milli stoppuðu þær og tuggðu græn lauf og rauð ber af tré sem geitahirðirinn hafði aldrei séð áður. Og eftir að hann hafði sjálfur smakkað nokkur berjanna, þá fór svo að hann dansaði engu minna en geitumar. Þessi uppgötvun hans á vímuáhrifum kaffibaunanna spurðist fljótt út og óðar en varði vom menn famir að finna upp allskonar aðferðir til þess að vinna koffínið og rokgjamar ilmolíumar úr baununum. Og fyrsta aðferðin hefur áreiðanlega verið einfaldlega sú að sjóða baunimar og drekka svo af þeim seyðið. Það er svo ekki fyrr en árið 1711 sem Frakkar byrja að laga kaffið með svokallaðri uppáhellingu. Ekki var þó búið að finna upp góða síu, til þess brúks, og var í fyrstu notast við fíngataðar málm- eða postulínssíur, og í sumum tilfellum gljúp efni, svo sem tau og pappír. Þetta bætti náttúrlega mikið kaffíbragðið, en korgurinn átti þó ennþá greiða leið í bollana og gerði bragðið beiskara, auk þess sem hann hefur nú aldrei þótt góður til inntöku sem slíkur. Og mikið kapp var lagt á það að finna upp betri aðferðir við kaffilögunina. Sumir notuðu könnur með þröngum stútum, sem áttu að hindra korginn í því að ná í gegn, og setjast frekar til í víðum botni. Aðrir reyndu að hafa stútinn á miðri könnunni, til þess að forðast korginn sem flaut uppi og þann sem sökk, þegar hellt var. Seint á 18. öld smíðaði franskur lyljafræðingur járnkönnu, sem var skipt í efri og neðri hluta og á milli var götuð plata sem virkaði sem sía. Síðan var heitu vatni hellt yfir kaffið, sem rann yfir það, í gegnum síuna og niður í neðri hluta könnunnar. Þetta varð vinsæl aðferð til þess að aðskilja korginn úr vökvanum. Og síðan kom hver uppfinningin á fætur annarri, og enn er verið að finna upp hagkvæmar og þægilegar kaffikönnur, sem gera það sífellt einfaldara að fá sér kaffi í bollann. Og það er löngu liðin tíð að þurfa að brenna baunimar og mala sjálfur, eins lengst af tíðkaðist, og áreiðanlega margir eiga minningar um. Það leyndi sér nú yfirleitt ekki þegar húsmæðurnar vom að brenna kaffibaunimar, ilmurinn fyllti húsið og umhverfið. Og ýmsar voru gerðimar af kaffikvörnunum. Sumar voru bara kassi, með sveif ofan á og skúffu að neðan, þar sem duftið féll í, um leið og sveifinni var snúið og baunirnar malaðar. Og sumir voru með kaffíkvörn sem fest var upp á vegg og man ég t.d. eftir einni slíkri á mínu æskuheimili. Neðan á henni var glerglas og gat maður fylgst með því hvað möluninni gekk, eftir því sem glasið fylltist. Framhald á bls 228 196 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.