Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 6

Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 6
Ætt og uppvöxtur Hvar ertu fæddur, Þorgrímur, og hverjir voru foreldrar þínir ? - Ég er fæddur í Winnipeg í Kanada 20. júní 1920. Foreldrar mínir voru Einar Þorgrímsson, og Jóhanna Oddsdóttir, fædd í Vestmannaeyjum 1894, en faðir minn var fæddur 1895. Börn áttu þau fjögur, og var ég annar í röðinni. Hín voru: Jóhanna, fædd 1919, Einar, fæddur 1924, og Anna Sigríður, fædd 1925. Eg kom fjögurra ára til Chicago. Var þar í tvö ár. Þar leið ég sult. Þegar verst lét. Þar stal ég ýmsu til að seðja hungrið, meðal annars eplum og appelsínum í verslunum, auk annars, og fyllti vasa mína. Pabbi var að vinna annars staðar. Þá var allsleysi og heimskreppa. Eg grét af hungri, og við bömin. Peningar voru sendir utan, til að við kæmumst heim. Afi minn, Þorgrímur Þórðarson, læknir í Keflavík, borgaði, en hann var með ríkustu einstaklingum á landinu. Heim kom ég með móður minni 1926, en faðir minn varð eftir. Var síðan hjá afa mínum í Keflavík. Þar var ég fermdur af séra Eiríki Brynjólfssyni, presti á Utskálum. Afí var líka sparisjóðsstjóri. Eg var í barnaskólanum í Keflavík í fjóra vetur. Síðan kom ég til Reykjavíkur 14 ára, en afi minn var dáinn þá (1934). Svo flutti ég til móður minnar og bjó hjá henni í eitt ár Þar á eftir var ég hjá systur pabba, Önnu Þorgrímsdóttur. Á Reykjaskóla í Hrútafirði Þú fórst til náms í Reykjaskóla í Hrútafirði og stundaðir nám þar einn vetur. Segðu mér eitthvað af því. - Ég kom að Reykjum haustið 1936, réttra 16 ára. Skólinn var tveggja vetra skóli, og ég var í yngri deild. Nemendur voru um fimmtíu, flestir um tvítugt. Ég var því með þeim yngstu. Skólastjórinn var Jón Sigurðsson frá Ystafelli, lengi bóndi þar, sjálfmennaður maður að mestu. Hann tók við Reykjaskóla haustið 1934, eftir að skólinn hafði lent í lægð nokkurri. Hann var skólastjóri þama í þrjú ár við góðan orðstír, til haustsins 1937, er Guðmundur Gíslason frá Ölfusvatni í Grafningi tók við. Jón kenndi talsvert sjálfur, meðal annars fór hann í gegnum rit sitt „Land og lýður“, landslýsingu greinagóða. Ég skrópaði oft í tímunum hjá honum. Eitthvað kvartaði ég yfir því að þurfa að læra þessa vitleysu, eins og ég orðaði það. Skólastjómn gerði lítið úr þessum kvörtunum mínum, og sagði að ég ætti ekkert erfitt með að læra þetta. „Þú ert nú ekki nema meðalheimskur maður.,,, sagði hann. Ég varð fjórði hæsti í meðaleinkunn í skólanum um vorið. Góður í sundi og leikfími. Agætur félagi minn í skólanum var Sveinbjörn Hannesson frá Blönduósi, vel hagmæltur og skemmtilegur. Hann lék það að fara heljarstökk með hendur í vösum. „Hafíð þið séð nokkuð annað eins, strákar,“ sagði Svenni þá. Mikið var hlegið og klappað fyrir honum, enda um afrek að ræða. Aðalheiður ogÞorgrímur, með sittfyrsta barn, Skafta. Sigríður Magnúsdóttir, vinnukona Þorgríms Þórðarsonar lœknis, afa Þorgríms Einarssonar. 198 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.