Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 9
Söngmenn Jjórir á Gnmd, í september 2002. Einar Sturluson, Ingvar og Kristján Olafssynir, Oddur Thor., Kjartan Olafsson leikur á harmóníku. Við dyrnar aftar, eru Gunnar Hjálmtýsson og þar hjá Guðný Jónsdóttir, fótaaðgerðakona. Leikfimi á Grund. Guðrún Helgadóttir stjórnar. vistmaður á Grund Nú er ég vistmaður hér á Grund, og hef verið hér viðloðandi í nokkur ár. Kona mín, Aðalheiður Sigríður Skaftadóttir, andaðist hér fyrir nokkrum árum. Við vorum jafnaldra. Við eignuðumst fjögur börn, þrjá syni og dóttur, sem öll lifa. Við giftumst 1944 og bjuggum á Skeggjagötu 17, sem við áttum. Eg er hér á herbergi með Guðmundi Jörgenssyni. Hann er svipaður að aldri og ég. Mér líður vel hér. Eg gæti ekki hugsað mér betri stað í elli. Eg læt sem vind um eyrun þjóta margt, sem sagt er um þennan stað. I borðstofu Grundar: Gunnar Hjálmtýsson við dyrnar, djákni, Svala Sigríður Thomsen, les. I stól situr Þorgrímur Einarsson. Þar er sungið við undirleik organista heimilisins, Kjartans Ólafssonar, lesið úr blöðunum, farið í leikfimi og lesið upp úr bókum og blöðum. Þar hefi ég lesið frá 5. febrúar 1998, hvern fimmtudag, og ekki má gleyma Þorgrími í því efni. Hann hefur oft lesið í morgunstundinni, einkum ljóð, og þá gjarnan eftir eftirlætisskáld sitt, Jóhannes Jónasson úr Kötlum. Hann hefur lesið oftar en einu sinni ljóð hans: Karl faðir minn, í setustofu Grundar, fyrir gamla fólkið. Það er hreint snilldarverk, þótt sumum fyndist Jóhannes gera full mikið grín að gömlum föður sínum. Kvæðið hefst á þessum erindum: Hann pabbi er skrýtinn og sköllóttur karl, sem á skinnhúfu og tekur í nefið. Og bleksterkt kaffi og brennivín er það besta, sem honum er gefið. Hann þvœr sér ekki oft og aldrei vel, og er líka sjaldan á fundum. Það er eins og hann geti ekki að því gert, hvað óhreint hans skegg er stundum. Væntanlega hafa nmargir lesenda þessa rits lesið þetta ljóð og lært það utanað, að hluta eða allt. Þorgrímur lifir sig inn í þetta ljóð og gefur því líf með sínum ágæta lestri. Þorgrímur er tæplega meðalmaður á hæð núna, 87 ára, og grannholda. Hann er nú kominn í hjólastól og fer um alla bygginguna á Grund í þeim farkosti. Hann mætir í morgunstundina oftast nær og fylgist með því, sem þar fer fram. Hann hefur gaman af að blanda geði við fólk. Þorgrímur er eins og fyrr er frá sagt enginn nýgræðingur á Grund. Löngu áður en hann settist þar að fullt og fast, var hann tíður gestur í morgunstundinni, sem er alla virka daga frá því klukkan 9 til 11, í setustofunni á þriðju hæð. Ég óska Þorgrími Einarssyni góðra daga framvegis á Grund. Skrifað í mars 2007. Heima er bezt 201

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.