Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 10

Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 10
Heimsýn að Abœ í Austurdal. Gil Abæjarárinnar opnast til vinstri. Stund og staðir í Skagafirði 7. þáttur Hjalti Pálsson frá Hofi * ' •fer' y Draugatrú var mikil og almenn á Islandi á 18. og 19. öld og gœtti verulega fram eftir hinni 20. En nú fer orðið litið fyrir slíku. Samt eru margir ekki með öllu lausir við myrkfælni og þessar vættir lifa enn vel íþjóðarvitundinni. Flestar sveitir landsins kunna að státa af einhverjum draug sem þar hefur átt sér óðul á tilvistardögum. Fáar mun þó jafnríkar og Austurdalur í Skagafirði, af jafn fámennri sveit og lítilli. Þar má telja einn frægasta uppvakning Islandssögunnar, Abœjarskottu, en aukþess tvo aðra ára sem minna eru kunnir en voru þó velþekktir í sveitinni á 19. öld. Tegundir drauga eru margar og uppruni þeirra breytilegur. Fyrst er að nefna svipi framliðinna sem birtust fólki án þess að gera að jafnaði nokkurt mein. I öðru lagi má telja svonefndar afturgöngur. Það voru persónur sem af sjálfsdáðum gengu aftur eftir andlátið, t.d. af heift eða girnd til einhvers, eða þær söknuðu peninga sinna eða þótti misfarið með bein sín. Illvígusta tegundin var uppvakningar eða sendingar sem særðir höfðu verið upp úr gröf sinni af galdramönnum og send lifandi einstaklingum til bölvunar. Ef ekki tókst að ráða niðurlögum afturgangna og uppvakninga, kveða þá niður eða koma fyrir, gátu þær orðið fylgjur sem lögust á ættir og fylgdu í marga ættliði. Birtust þá ýmist í eigin mynd sem svipir og vofúr en stundum í ýmissa kvikinda líki. Sumir draugar héldu sig mest við ákveðinn stað og voru nefndir staðárar. Aðrir voru mjög á flakki og nefndust gangárar. í þeim hópi voru ættarfylgjur, mórar og skottur. Karldraugar vora gjaman kallaðir mórar eftir klæðaburði sínum en kvendraugar skottur, væntanlega vegna hinnar gömlu íslensku skotthúfa sem þær báru. Ábæjarskotta Ein af frægustu uppvakningum og ættarfylgjum Islandssögunnar er Ábæjarskotta, reyndar ekki við eina Qölina felld því hún kom víða niður í fýlgni sinni við fólk og var því stundum kennd við aðra bæi: Nýjabæjarskotta, Kúskerpisskotta, Fléraðsdalsskotta en 202 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.