Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 12
Dys Dala-Skúla norðan í Draughólnum, fram og upp frá Abœ. Bakpokinn og stafirnir eru á dysinni en geina má hringinn umhverfis. mtmm, Nýjabæ“, sagði Guðbjörg, „og dreptu Guðmund Nikulásson.“ Komst Skotta ekki nema að Tinná sem rennur skammt norðan við Nýjabæ en hljóp þar upp og ofan með ánni því Guðmundur var þar fyrir. Kvaðst Skotta ætla að brenna ef hún færi lengra en að ánni og ekki geta nálgast Guðmund því hann væri með óbilandi draugavörn, loðinn kross á brjósti og baki og læstar neglur. Hann skipaði Skottu þá að fara aftur að Abæ. Gerði hún eftir það mikinn óskunda, drap fé og fólk. Var henni kennt um dauða barns Guðmundar á Nýjabæ sem hengdist um veturinn þegar hann var að heiman. Nennti Guðmundur ekki að búa undir þessari ásókn og flutti sig í Krókárgerði vorið 1808 og var þar með laus við Skottu en hún tók að fylgja Jóni og Guðbjörgu og þeirra afkomendum. A búskaparárum þeirra á Nýjabæ var hún kölluð Nýjabæjarskotta og þegar þau hjón létust var Skottu kennt það. Þegar Guðrún dóttir Jóns og Guðbjargar skar sig löngu síðar í geðveikiskasti í útihúsi í Héraðsdal var sagt að Skotta hefði sleikt upp blóðið sem rann úr henni svo að bolli varð eftir ofan í moldargólftð. Skottu er svo lýst að hún væri á vöxt við 12 ára stúlku, á mórauðu stuttpilsi í sauðsvartri peysu og með skúflausa skotthúfu, mórauða. Síðustu skjallegu heimildir um Skottu er miði sem slæddist á Héraðsskjalasafnið á Sauðárkróki með skrifum Björns Egilssonar á Sveinsstöðum og ritaður með hans hendi. A honum stendur þetta: ,,Það viðurkennist hér með að Jónas á Völlum, hreppstjóri með meiru, hefur í dag afhent mér Abæjarskottu. Goðdölum 23. 1. 1979. Björn Egilsson. “ Magnús Kr. Gíslason skáldbóndi á Vöglum í Skagafirði minnist svo Skottu og Abæjar í Stiklukvæði sínu: Abœr er kominn í eyði nú, uppi þó kofar standa. Teikning Björns Björnssonar af dysinni og hringnum. Þar var samt áður blómlegt bú og búsœldin milli handa. Ein var þó kyrr og ekki sveik óóalið sitt í tryggðum. Gieður sig þar við gamanleik með görpum úr neðri byggðum. Daia-Skúii Dala-Skúli var mönnum nánast gleymdur á seinni hluta 20. aldar en minning hans „vakin upp" árið 1985 þegar um hann, eða kannski öllu heldur svonefndan „galdrahring á Abæ“, birtust nokkrar greinar í tímaritinu Heima er bezt, þar sem þeir lögðu hönd að penna Hannes Pétursson skáld, Hjörleifur Kristinsson á Gilsbakka, Bjöm Egilsson á Sveinsstöðum og Þórður Tómasson í Skógum. Enginn þeirra hafði þó séð galdrahringinn eða vissi skilmerkilega hvar hann var og einungis Hjörleifur á Gilsbakka hafði heyrt getið Dala- Skúla. Svo hafði þá fymt yfír dalbúa þennan. En í byrjun 20. aldar kunnu Austdælingar góð skil á Dala-Skúla og verustað hans. Sumarið 1910 var Matthías Þórðarson þjóðminjavörður þar á ferð og getur eftirfarandi í skýrslu sinni: „A Abæ í Austurdal var mér bent á mannvirki eitt einkennilegt. Það er skammt upp frá bænum í dagmálastað, rétt fyrir utan túnið. Það er lítill haugur, um 10 fet að þvermáli, kringlóttur, og er garður hlaðinn umhverfís, þvermál hrings þessa er 37-40 fet. Hann er sporbaugsmyndaður. Garðurinn er nú mjög lágur, aðeins um 0,5 fet, og mjór, um 1,5 fet, en fullglöggur. Þessu mannvirki fylgir sú þjóðsaga, sem alkunn er í Skagafjarðardölum, að draugur að nafni Dala-Skúli hafí verið settur hér niður. Hann var uppvakningur úr Vesturdalnum og gerði mikið mein uns Goðdalaprestur sendi hann fram á afrétt og fékk honum það erindi að telja öll kindaspörð á afréttinum. Að loknu verki kom draugur niður að Abæ og voru þá fætur gengnir upp að knjám. Varð 204 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.