Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Side 16

Heima er bezt - 01.04.2007, Side 16
(-------------------------------------- landsmanna lækka um 18 milljarða dala (eða rúma 1200 milljarða íslenskra króna), og losun koltvíoxíðs drægist saman um 158 milljón tonn. í Evrópu eru litlu færri ljósastæði fyrir glóðarperur (3,9 milljarðar að mati talsmanns Evrópubandalagsins), og með flúrpemm í þeim fengist spamaður er svaraði til orkuneyslu 10 milljón heimila. Sá ljóður er á flúrljósum - jafnt flúrpípunum sem nýju perunum - að í þeim er kvikasilfur, að vísu ekki mikið, eða um 5 millígrömm í venjulegri heimilispem. Þess vegna er kostnaður við að koma eitrinu úr umferð innifalinn í söluverðinu, og ekki má fleygja flúrperum með venjulegu sorpi. í febrúar 2007 lögleiddi ástralska þingið bann við sölu á glóðarperum til heimilisnota sem taka á gildi árið 2010. Bretar hyggjast fara að dæmi þeirra 2012 og glóðarperubann er til umræðu innan Evrópubandalagsins. Auk þess liggur fyrir Kalifomíuþingi lagafmmvarp frá fylkisstjóranum um tortíiningu glóðarperunnar, og málið hefur verið rætt í lögþingum víðar, meðal annars í Connecticut og New Jersey í Bandaríkjunum og á nokkmm svæðum í Kanada. Hvað tekur svo við? Hvergi mun tekið fram í verðandi lögum hvað eigi að leysa glóðarlampana af hólmi, en um sinn er þar vart um annað að ræða en flúrpemr. Þó er ljóst að þær munu ekki standa lengi við í perustykkjunum. Næsti áfangi í raflýsingu heimilanna verður ljósdíóðan (LED, „Light Emitting Diode“). I ljósdíóðu eru staflar af örþunnum flögum af hálfleiðurum, og hætti ég mér ekki út í að lýsa þeirri tækni, sem menn kannast til dæmis við úr tölvuskjáum, farsímaskjáum og flatskjáum sjónvarpstækja. Með breyttri efnasamsetningu hálfleiðaranna má fá fram hvers kyns liti til dæmis í umferðarljósum eða jólatrjáseríum. Enn á það langt í land að ljósdíóður til lýsingar á heimilum og vinnustöðum komi á almennan markað. Tilraunagerðir eru dýrar, auk þess sem erfítt er að fá fram heppilegan, þægilegan lit á birtuna. Hjá Philips í Hollandi er verið að prófa ____________________________________ Tvœr algengar gerðir af flúrperum sem perustœði. peru sem í eru ijórar ljósdíóður, tvær rauðar, ein græn og ein blá. Með því að breyta innbyrðis styrkleika ljóssins frá díóðunum má kalla fram allt að 16 milljón litblæbrigði á ljósinu. Með haustinu 2007 verður hægt að fá svona lampa, LivingColors, með fjarstýringu á litblæ og ljósstyrk. Framleiðandinn leggur samt áherslu á það að mikið verk sé framundan áður en neytandinn geti farið út í búð og keypt LED-perur til hvers konar lýsingar. Fyrstu hvítu LED-ljósin verða trúlega skjannabjört vinnuljós. Dótturfyritæki Siemens, Osram, kynnti í marsbyrjun í ár díóðuljóskastara, Ostar, þar sem ljósgjafínn er aðeins eins fermillímetra skrúfaðar eru inn í venjuleg flötur og á að varpa nægri birtu á skrifborð úr tveggja metra hæð. Auk þess sem ljósgjafinn nýtir orkuna betur en flúrlampi, að ekki sé minnst á glóðarljós, á hann að endast á við fimmtíu glóðarperur eða fímm flúrperur. Sjá „It’s light out for a hosehold classic“ eftir Andy Coghlan. New Scientist 31. mars 2007. Höfundur færði í letur greinina sem hér birtist áður en hann vissi af skilmerkilegum skrifum ritstjóra Heima er bezt, Guðjóns Baldvinssonar, um yfírvofandi endalok ljósaperunnar í hlaðvarpapistli í mars LivingColors-lampi frá Philips meó fjórum Ijósdíóðum. Þetta er frumgerð sem kemur á markað í haust og gerir mönnum kleift að velja með Jjarstýringu Ijósstyrk og litblæ í herbergi. ‘J 208 Heima erbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.