Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Page 18

Heima er bezt - 01.04.2007, Page 18
vængjum. Dæmi eru um að álftir hafi drepið kindur sem álpuðust of nærri hreiðri þessara skapmiklu fugla. Þegar ungamir em komnir úr eggjunum fara foreldramir með þá á vatn og kenna þeim að synda og bjarga sér. Ungamir eru gráir að lit fyrsta árið en lýsast fljótlega eftir það. Þeir verða ekki kynþroska fyrr en fjögurra til fimm ára. Geldfuglamir halda sig í hópum og em mjög áberandi á lónum og grannum fjörðum. Álftir em einkvænisfuglar og halda saman lífíð út í gegn. Þeir blandast þó öðmm álftum þegar varpi og útungunartíma er lokið og ungamir famir að stækka. Ár eftir ár verpa þær á sama staðnum. Koma snemma vors, eins og veðrátta leyfír, og dytta að dyngjunni. Álftin fellir fjaðrir seint á sumrin og á meðan þær em í sámm hópast þær að vötnum og ám til að geta forðað sér á sundi ef þær veða fyrir styggð. Áður fyrr vom álftafjaðrir mikið notaðar og allir hafa heyrt talað um íjaðrapenna sem notaðir voru öldum saman til að skrifa með. Álftin er oft kölluð svanur, samanber svanirnir á Reykjavíkurtjöm. Hljóð þeirra em falleg og hafa orðið mörgu skáldinu yrkisefni. Það er mikill munur á söng þeirra og aðvömnarhljóðum. Þær eru hálfkafarar og oft má sjá aftari hluta búksins og stélið eitt uppúr tjörnum þegar þær eru í fæðuöflun. Á norðlægum slóðum eru þær farfuglar að mestu leyti. Héðan fer fjöldi þeirra til Bretlands á haustin og lengra suður í álfuna til vetursetur. Álftir sækja í tún og flæðiengi og em þar engir aufúsugestir bænda. Álftin er alfriðuð. Á meðan mátti veiða hana var hún drjúgt búsílag, sérstaklega á vorin þegar var farið að þrengjast um í matarbúri fólks. Egg henna þykja góð en kjötið af fuglinum fremur þurrt. Hún á sér ekki marga óvini vegna styrkleika síns og verður að teljast að maðurinn sé hennar versti óvinur. Áftin er afar fagur fugl sem gleður augað. Hún er mjög þekkt og fyrir henni er borin virðing. Álftahópur á flugi er tignarleg sjón. Á tjöminni í Reykjavík er alltaf talsvert af álftum sem þiggja brauð borgarbúa. Þær eru mis ágengar með mismunandi karakter. Á haustin er mikið um álftir á Elliðavatni. Fyrir nokkrum ámm fylgdist greinarhöfundur með álftahópi sem hélt sig á og við vatnið. í hópnum var ein álftin stök eða hún samlagaðist ekki hinum álftunum. Hún var alltaf talsvert utan við hópinn og var þetta mest áberandi á nóttunni þegar fuglamir sváfu. Ekki var hægt að merkja að hinar álftimar leggðu hana í einelti og aldrei voru nein áflog í gangi. Eftir að nótt tók að dimma, þegar heiðskírt var og tungl á lofti, gerðust skrýtnir hlutir á vatninu. Þegar tunglið merlaði í hluta vatnsflatarins og fuglana rak með straumi inn í birtuna hrökk svanurinn staki upp með hljóðum, barði vængjunum í vatnsflötinn þar til allur hópurinn vaknaði. Svipuð atburðarás fór fram þegar sofandi svanahópinn bar með straumi inn á ljósrák frá ljósastaur sem var nálægt vatnsbakkanum. Þá var engu líkara en fuglinn héldi að nú væri komin dagur og hann hefði sofið yfír sig. Á meðan undirrituð fylgdist með þessum fuglahópi, um eins mánaðar bil, synti alltaf ein álftin nokkuð frá hópnum og það sama var þegar fuglarnir sváfu. Ekki er gott að vita hvort þetta var ekkill eða ekkja eða útvörður hópsins sem átti að sjá um að fuglarnir yrðu ekki viðskila og láta vita ef eitthvað óvenjulegt var á seyði. í mörg sumur verpti álftapar nokkru fyrir ofan stífluna í Elliðaánum. Á meðan kvenfuglinn lá á eggjunum vék karlinn lítið frá hreiðrinu. Hann skimaði í allar áttir og geðvonska hans jókst eftir því sem lengra leið. Á björtum vomóttum var ekki annað að sjá en hann væri alltaf vakandi. Hann þáði brauðgjafír úr hæfilegri íjarlægð en lítið mátti út af bera svo að hann væri ekki tilbúinn að berja velunnara sína. í tveimur hólmum á Miðfjarðarvatni í Húnavatnssýslu, verptu álftahjón í báðum hólmunum. Á milli hólmabúanna ríkti fálæti en ef annar hvor þeirra synti um miðja vegu á milli hólmanna ruku nágrannarnir upp með gargi og látum. Það var nóg til að snúa nágrannanum til síns hólma. Ef það komu ókunnar álftir í nágrennið stóðu hólmabændur saman sem ein álft og stökktu hinum óboðnu á flótta. Þessu fylgdi mikill hávaði og um leið vængjabarsmíði á vatnsflötinn. Yfirleitt var hinum óvelkomnu gestum fylgt eftir út fyrir bakka vatnsins. Einu sinni var á Reykjavíkurtjörn svanur, sem gaf sig mikið að krökkum er komu að gefa fuglunum brauð. Þetta var ungur fugl og var hegðan hans oft þannig að allt benti til þess að hann héldi sig vera manneskju. Um tíma komu oft myndir í blöðunum af þessum fugli. Talsvert er til af alþýðufróðleik um álftina og margar sögur tengjast þessum fugli. Álftin er ævintýrapersóna ungra elskenda frá fornu fari. En eitt er víst að þessi fiugl er greindur og án efa væri hægt að kenna þeim ýmsar kúnstir. 210 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.