Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 21

Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 21
bætti við nýyrðinu vígslubiskup. Ur varð, að vígslubiskupar skyldu vera tveir, annar til Skálholts og hinn til Hóla. Var það samþykkt við stoltarhæfi sögu og sjálfstæðis, þó að hinni áunnu sparsemd þjóðarinnar yrði vikið. Jafnræði og sami réttur hinna íjórðunganna og Norðlendinga kunni öll tök á þingheimi, jafnvel þeim, sem áður sögðu, að Hólastiftisbiskup væri sama og að kasta peningum landsmanna á sjóinn. Sá málsmætasti allra, herra Þórhallur Bjamarson biskup yfir Islandi, var nánasti Hólavinur, sem nú væri kallaður hollvinur Hólabiskupsdæmis. Hallgrímur biskup Sveinsson hafði misst heilsuna, en gat þó vígt síra Þórhall eftirmann sinn. Miklu fyrr en ár og aldur sögðu, féll hinn frjálslyndi guðfræðingur og mikli Islendingur, herra Þórhallur, í valinn 1916. Þá kom að því að lögin um víglsubiskupana reyndust svo þjóðholl, að hinn eldri þeirra, síra Valdimar Briem skáld á Stóra-Núpi, biskupsvígði dr. Jón Helgason í Reykjavíkurdómkirkju, sem þá tók við til langrar reyndar. A sumrinu eftir að lögin um vígslu- biskupana tóku gildi, áttu landsmenn mikið hátíðarhald með Þórhalli biskupi, fyrst á Hólum og þegar sumri tók að halla í Dómkirkjunni í Reykjavík. Sunnudaginn 10. júlí 1910 var hin stóra og minnilega kirkjuhátíð á Hólum. Herra Þórhallur gerði yfirreið sína um Noðuramtið og þenna tiltekna helgidag, sem var 7. sd. e. tr., voru norðlenzku prestamir heima á Hólum. Þá endurnýjuðu þeir félagsskap sinn og alþýða manna sókti hátíðina. Biskupinn hafði Hólakápuna góðu, dýrgrip herra Jóns Arasonar, meðferðis. Voru þá 96 ár, síðan heiðarlegur kaupamaður tók hana með suður að réttmætri kröfu Vídalíns biskups í Reykjavík. Bar síra Geir Sæmundsson kantarakápuna, sem Hólabiskup keypti frá Arras nær 4 öldum fyrr. Ekkert skorti á né skyggði biskupsmessuna í „helgasta steini landsins“, Hóladómkirkju þennan bjarta hásumardag. Þó að síra Geir væri prestur á Akureyri og í engu breytt um þá stöðu hans né prófastsdæmið norðan Heljardals- og Hjaltadalsheiða, hafði ekkjan í túninu á Hólum endurheimt verðskuldun sína. Hún var dómkirkja á ný eftir 112 ára bið. Síðan er hún guðshús (Mynd: Forn frœgðarsetur II, 1979). vígslubiskupsins í Hólastifti. Frásögn biskupsvígslunnar á Hólum er geymd í Nýju kirkjublaði herra Þórhalls. Biskupinn var eindreginn stuðnings- maður þess, að þjóðskáldið síra Matthías yrði hinn fyrsti vígslubiskup Hóladómkirkju, en það gat ekki orðið, því að síra Matthías var ekki þjónandi prestur síðan aldamót. Var þá eftirmaður hans á Akureyri, síra Geir Sæmundsson, kjörinn. Ekki vegna þjónustunnar í íjölmennasta brauði nyrðra, heldur af því hve vel hann söng. Síra Geir hafði tærustu tenórrödd sinnar samtíðar og hátíðasöngvar síra Bjama Þorsteinssonar á Sigluftrði hljómuðu af þeirri fágun og fegurð í Akureyrar- og Lögmannshlíðarkirkjum, að einstætt þókti og þjóð hafði spurn af. Degi fyrir höfuðdag vígði biskup Þórhallur síra Valdimar Briem próf- ast og skáld á Stóra-Núpi. Var síra Heimakirkja síra Geirs á Akureyri. - Síra Geir Sœmundsson fyrsti vígslubiskup til Hóla. (Mynd: Forn frœgðarsetur II, 1979). Heima er bezt 213

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.