Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 23
Hóla í Hjaltadal í heiðraðri minningu
Jóns biskups Arasonar, enda var litið
svo á, að biskupinn í Kristskirkju í
Landakoti væri arftaki hans.
Þegar samveldislögin voru gild
1918, var Marteini Meulenberg veittur
íslenzkur ríkisborgararéttur, fyrstum
útlenzkra manna. Hann var fæddur í
Þýzkalandi, hollenskur að móðurkyni.
Var hann prestur hér frá 1903, en síðan
biskup til dauðadags 3. ágúst 1941.
Siðbyltingin, sem Guðbrandur Jónsson
próf. h.c. kallaði gjama umhverfmgarskugga
kirkjudeilda hvarfanna hér á landi með
morðum á Hólafeðgum, varð hnattasund
öfga og ófara íslenzks sjálfstæðis. Brú
lá samt yfir, sem enn í dag eru herra Jón
Hólabiskup og synir hans. Þegar kápa
hans er borin í dómkirkju á Hólum og í
Reykjavík, er bniin yfir bil kirkjudeildanna
treyst, og landsmenn skildu fyrst með
lögunum um vígslubiskupa hinna fornu
stóla 1909. Þegnskapur við þjóðarsögu var
órnælt afrek dr. Jóns foma Þorkelssonar,
þegar hann vildi færa Hóladómkirkju
biskup á ný.
A löngum tíma varð svo vel til,
að á báðum stólunum varð aftur
biskupssetur: Hólar 1986, Skálholt
1992. Allt bíður síns tíma. A hverjum
stað undir himninum heyrist í klukku
köllunarinnar og glymur í klettinum.
Biskupsvígslu í löndum Danakonungs
eftir siðskiptin þykir á vanta hinn
postullega hljóm frá Róm. Þess er von og
skal hvorki last né lof um mælt að sinni,
en superintendent, yfírtilsjónarmaður,
var fyrst í stað biskupsnafns. Orðrétt
þýðing hefur aðra merkingu en andlegur
þegnréttur helgaðs kristni- og kirkjuheitis
staðgengilsins.
1928 var hátíð gerð í Hóladómkirkju, en
hásumardag var prófastur Skagfírðinga,
síra Hálfdan Guðjónsson í Reynistaðar
klaustursprestakalli, formlega vígður til
biskups í Hóladómkirkju. Biskup hinna
sameinuðu umdæma, sem þá var nefndur
biskupinn yfír Islandi, veitti frænda
sínum vígsluna. Þeir síra Hálfdan og dr.
Jón biskup voru bræðrasynir. Presturinn
var mjög aðþrengdur í jarðlífsreynslunni.
Einu gilti um skoðun hins lærða biskups.
Lét hann síra Hálfdan frænda sinn kenna
á kirkju- og kristnisöguþekkingunni, að
biskup væri yfirtilsjónarmaður. Stafur
helgisiðabókar á þann dag á Hólum
Síra Jón Helgason Prestaskólakenn-
ari, síðar biskup.
(33 ára, þegar þessi mynd var tekin í
Kaupmannahöfn).
væri aðeins orðaleikur. Hlaut nú að
skerast í odda, síra Hálfdan kvað þá
einboðið að hætta við, kominn í fallegu
biskupskápuna, sem Þórhildur frænka
hans og Steinunn Briem höfðu lagt allan
metnað sinn í að sauma. Bjargaði nú
frændsemi og fyrri kynni síra Hálfdani
og öllum vígslubiskupunum til Hóla
og Skálholts upp frá því. Hann var
í Prestaskólanum heimilismaður,
handgenginn og háður Helga lektor
Hálfdanarsyni og þeim Jóni frænda
sínum.
Hvernig gæti hann veitt eftirmanni
biskupsins rétta vígslu, nema vera sjálfur
fullgildur við athöfnina í Hóladómkirkju
þenna dag? Að vísu var síra Hálfdan
3 árum eldri en Jón biskup, en hinn
vígslubiskupinn, sira Valdimar Briem, var
orðinn áttræður og því ólíklega tiltækur,
ef biskupaskipti yrði. Hann lézt 1930
og voru þá utn sinn aðeins þær frændur
biskupsvígðir í þjóðkirkjunni.
Báðum hafði þeim runnið í skap,
en norðlenzku prestamir albúnir til
vígslumessunnar, stóðu svo þétt að
baki síra Hálfdani, að dr. Jón frændi
hans lét undan síga og hét því að veita
honum hina einu og sömu vígslu og
hann sjálfur hafði þegið af hendi síra
Valdimars Briem 1917.
Það sem vakti fyrir dr. Jóni Þorkels-
syni og þeim þingmönnum, sem
studdu frumvarpið um stiftis- eða
vígslubiskupana 1909, var gagngert,
að kjörinn biskup á Islandi þyrfti ekki
að sækja vígsluna til Danmerkur. Gekk
það eftir, af því að dr. Jón biskup lét
undan hátíðardaginn á Hólum. Ella var
óvíst, hvernig farið hefði.
Sakar ekki að geta þess, að biskup Jón
Helgason og síra Hálfdan Guðjónsson
voru báðir andstæðingar frumvarps dr.
Jóns Þorkelssonar 1909. Síra Hálfdan
var þá fyrri þingmaður Húnvetninga,
en Jón Helgason mikill áhrifavaldur
í kirkjumálum, kennari og síðan
forstöðumaður Prestaskólans.
Þegar hann vígði næsta biskup til
Hólastiftis og nýjan vígslubiskup
í Skálholtsstifti 1937, notaði hann
tækifærið og brýndi fyrir vígsluþegunum,
að þeir væri eftir sem áður sóknarprestar
og sálusorgarar, þó að veittist þessi
kirkjulegi heiður, sem af vissum ástæðum
yrði að vera sama vígslan og hann bæri
sjálfur.
(Framhald)
Leiðrétting
Missagt var í grein um Eyvindar-
hólakirkju í 3. tbl. HEB 2007, að
núverandi prestur í Holti héti Halldór
Guðnason, en hið rétta er að hann heitir
Halldór Gunnarsson. Eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar á misrituninni.
Heima er bezt 215