Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 24

Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 24
Jón R. Hjálmarsson: Látra-Björg Hagorð kona á hrakhólum Norðan í fjallgarðinn milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa skerast tveir stuttir firðir. Heita þeir Hvalvatnsfjörður sá eystri og Þorgeirsfjörður hinn vestari. í máli fólks á fyrri tíð var alltaf talað einu nafni um þessi litlu byggðarlög sem Fjörður og er það kvenkynsorð í fleirtölu. Þótt Fjörður væru afskekkt byggð fyrir opnu hafi, þá var þar engu að síður talsvert mannlíf á fyrri tíð. í Hvalvatnsfirði voru tíu bæir og þrír í Þorgeirsfírði. í síðar nefnda fírðinum var líka kirkjustaður og prestssetur á Þönglabakka. En nú er ekki búið þarna lengur og lagðist byggðin endanlega af árið 1944. I seinni tíð hefur verið lagður slarkfær akvegur frá Höfðahverfí um Leirdalsheiði og niður í Hvalvatnsfjörð. Þessar eyðibyggðir eru því orðnar býsna fjölsóttar af ferðamönnum á sumardögum, enda er þama gróðursæld og mikil og sérstæð náttúrufegurð. Einnig á fyrri tið sótti fólk í Fjörður, þótt sú ferðamennska væri ekki í stíl við það sem við þekkjum nú á dögum. A 18. öld bar það við og sjálfsagt nokkuð oft, að þangað kæmi reikunarkonan Látra-Björg og hún orti smáljóð um Fjörður sem lifað hefur til þessa dags, enda var þessi kona óvenju snjöll og hagorð og komst betur að orði en flest önnur skáld í þá daga. Ljóðið um Fjörður er svohljóðandi: Fagurt er í Fjörðum, þá Frelsarinn gefur veðrið blítt, hey er grænt í görðum, grös og heilagfiskið nýtt. En þá veturinn að þeim tekur sveigja, veit ég enga verri sveit um veraldar reit. - Menn og dýr þá deyja. Þessi kona, sem kvað svo vel, hefur lifað sem hálfgerð þjóðsagnapersóna í sögum og sögnum. Engu að síður var hún næsta raunveruleg á sinni tíð, en hún lifði nokkuð óvenjulegu lífi og var talin kraftaskáld og jafnvel fjölkunnug. Eitt með öðru sem fólki þótti undarlegt í fari hennar var að hún vildi aldrei vera vistráðin sem hjú, heldur kaus hún að ráða sér sjálf og vera frjáls og engum háð. Ógift var hún líka alla ævi og barnlaus. Einhverjar óljósar sagnir gengu þó af kynnum hennar og samskiptum við karlmenn, sem þó aldrei leiddu til sambúðar. Björg hét hún og var fædd árið 1716 í Stærra-Árskógi á Árskógsströnd í Eyjafirði, þar sem foreldrar hennar voru þá til heimilis. Það voru hjónin Einar, sonur séra Sæmundar Hrólfssonar í Stærra-Árskógi, og Margrét, dóttir séra Bjöms yngra Björnssonar á Hvanneyri í Siglufirði, bæði af kunnu og vel gefnu fólki komin. Einar þessi Sæmundsson var talinn skáld gott og hafði lært í Hólaskóla til stúdentsprófs. En hann var staðfestulítill, fékkst við margt, barst víða og hafði á sér misjafnt orð. Heldur þótti hann auðnulítill og var því um kennt að sem ungur maður hafði hann skotið öm til bana, en það var óheillamerki samkvæmt þjóðtrúnni. Auk Bjargar áttu þessi hjón synina Björn og Þorlák. 216 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.