Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 29

Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 29
að smalinn á Brú á Jökuldal hafi verið að leita að kvíaám frammi á íjöllum og hafi hundur hans þá orðið manna var og farið að gelta, en smalinn hafi þá séð sér til mikillar skelfingar, hvar kona var að mjólka ær í rétt og fór sér að engu óðslega. í Ketilsstaðaannál sem ritaður er af Pétri Þorsteinssyni, sýlumanni er eftirfarandi: „Varð vart við útileguþjófavistir á Brúaröræfum, er menn meintu að vera Eyvind og Höllu, hvar fyrir sýslumaður Pétur útnefndi af Jökuldals innbúendum 8 menn þau að uppleita um haustið, hvað þó varð forgefms, einasta að þeir fundu þeirra eldstó, hvar þau um tíma sig höfðu uppihaldið. Leitinni varð ei heldur til þrauta framhaldið sökum uppáfallandi óveðurs“ Eyvindarkeldan? „Um hríð hafðist Eyvindur við á Fljótsdalsheiði og lagðist þá mjög á sauðfé Fljótsdælinga. Tóku bændur í Fljótsdal sig þá sarnan og ætluðu að flæma Eyvind í burtu. Eltu þeir hann á hestum, en hann brá á handahlaupi og dró hvorki sundur né saman. Þegar kom að keldu einni, rann Eyvindur yfir hana tafarlaust, hugðu bændur hana því slarkfæra og hleyptu út í, en þar var þá kviksyndi eitt og festust hestar þeirra. Skildi þar með Eyvindi og þeim byggðamönnum. Kelda þessi er uppi á miðri heiði og hefur síðan verið nefnd Eyvindarkelda.“ Heimild: Loftur Guðmundsson: Fjalla-Eyvindur og Halla, 1958. Vatnsbólið á Vaðbrekku, handaverk Fjalla-Eyvindar? Saga hinnar seinni byggðar á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal hefst 1770, þegar þangað flyst Pétur Guðmundsson, sem áður hafði verið á Brú. I bókinni „Fimmtíu sumur í Hrafnkelsdal", Akureyri 2006, útg. Bókaútgáfan Hólar, er viðtal við Kolbein IngaArason flugstjóra: „Þegar ég las um það hvernig Eyvindur var vanur að ganga frá vatnsbólinu þar sem hann bjó, rann skyndilega upp fyrir mér að nákvæmlega þetta sama hafði verið gert á Vaðbrekku. Þar voru hlaðin göng út úr gamla eldhúsinu, sem enduðu í litlu húsi yfir bæjarlæknum. Var það kallað brunnhús. Lækurinn var 10 gráðu heitur og kom inn í húsið að sunnanverðu og beygði svo um 90 gráður og rann út úr húsinu að vestanverðu. Þama var rúm til að leggja frá sér hluti, s.s. bala eða skjólu. Einnig hefur verið hægt að fela sig þarna í útskoti. Þannig var frá gengið að bæjarlækurinn rann inn eftir rennu og fram af steinhellu í lítinn pytt sem var hæfilega stór til að taka þar vatn í skjólu. í miðjum göngunum, eitthvað yfir gólfhæð, var op eða renna frá því, þar sem skólpi var hellt og rann það þaðan í lækinn aftur neðan við brunnhúsið. Göngin lækkuðu eftir því sem nær dró læknum, þ.e. þau hölluðu eftir landinu og farvegi lækjarins var nánast ekkert breytt. Hleðslan í göngunum var listilega gerð, lág grjóthleðsla að innanverðu, sem hallaði saman að ofan og síðan lagðar yfir það hellur sem mynduðu þak. Allt var þetta svo hulið með torfi, svo að mjög lítið fór fyrir því í landslaginu.“ Kolbeinn Ingi telur að þetta bmnnhús geti talist vörumerki Fjalla-Eyvindar. Þá styrkir það mjög þessa tilgátu, að Pétur var systursonur Hans Wíum. Leiðsögumaður og landpóstur Snemma í maí 1772 barst Sigurði Sigurðssyni landsþingsskrifara á Hlíðarenda í Fljótshlíð, í hendur bréf frá Hans Wíum sýslumanni og svarar hann því 14. maí sama mánaðar og einum stað í bréfinu stendur „...í von þeirri að sá Göngu-Hrólfur, það er maðurinn sem kom með bréfið að austan af Fljótsdalshéraði, verði hér um aftur gangandi, hripa ég línur þessar.“ í íslenskum æviskrám segirum Hans Wium: „Hann gerði tilraun til að frnna hinar fornu leiðir um norðuröræfi um Odáðahraun úr Öræfum til Möðrudals.“ Þennan vetur hefur Eyvindur verið honum kærkominn gestur. í bréfi 12. okt. 1774 vill Sigurður Sigurðsson leita uppi veginn um Odáðahraun og veginn milli jöklanna og segir m.a.: „Jafnframt er það uppástunga mín, svo fremi sem strokufanginn og sakamaðurinn Eyvindur skyldi spyrjast uppi, og nást aftur, að hann, sem er öllum kunnugri á íjöllum uppi, verði þá látinn fylgja leiðangursmönnum og með því gefnar vonir um vægð og náðun etc.“ Heima er bezt 221

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.