Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Page 30

Heima er bezt - 01.04.2007, Page 30
Kviðlingar kvæðamál Umsjón: Auðunn Bragi Sveinsson Vísnaþáttur Lesendur, heilir og sælir. Og gleðilegt sumar. Mildur vetur er genginn sína leið. Þáttur er í útvapinu, sem nefnist „Orð skulu standa,,. Þar er varpað fram fyrripörtum, sem við getum svo séð á sjónvarps-skjánum. Hér eru dæmi tengd vorinu : Vetrartíð er vond og löng, en vorið kemnr bráðum. Við þau Ijúfu varmaföng vinum fögnum þráðum. Og hér kemur ágætur fyrripartur til að prjóna aftan við: Lóan er komin, hún léttir vort geð, og lofar, að senn komi spóinn. Nú loks fara bændur að láta út féð; það leysir burt ísinn og snjóinn. Þetta var svona til tilbreytingar. Ég efast ekki um, að ljóðelskir lesendur HEB fylgist með fyrmefndum útvarpsþætti. Þar látn hagyrðingar gamminn geysa. Ég læt hann ekki fram hjá mér fara. En nú er komið að þungamiðju vísnaþáttarins: hagyrðingi mánaðarins. Lengst af hafa þaö verið karlar, því miður vil ég segja, því að konur eru margar vel hagmæltar. Að þessu sinni birti ég hér vísur eftir borgfirska konu, sem ég kynntist á fyrstu árum mínum í Reykjavík. Hún hét Guðrún Arnadóttir, og kenndi sig við fæðingarstað sinn, Oddsstaði í Lundarreykjadal. Hún var fædd 1900, en lést 1968. Ljóðabók kom út eftir Guðrúnu 1949 er nefnist „Gengin spor“. Um Guðrúnu unga orti Einar Þórðarson frá Skeljabrekku (1877- 1963), en hann var hér í ritinu sem hagyrðingur fyrir nokkru: Ungdóms valda blómann ber; blíðu tjaldar hótum. Þessi faldajjólan er fœdd á aldamótum. Guðrún var kona fögur ásýndum, og hélt því til æviloka. Einar Þórðarson: Eitt mér fyrir augu bar úti á götu um jólin. Gat ég ekki greint, hvort var Guðrún eða sólin. Og þá er komið að vísunum og erindunum hennar Guðrúnar frá Oddsstöðum: Um sumardaginn fyrsta 1944 kveður hún fagurlega: Andi hlýr um foldu fer, fagnað sumri muni getur. Fannst þér ekki, eins og mér, orðinn langur þessi vetur? Líttu á, hvernig Ijósið ber líf-- og grœðir kalin sporin. Finnst þér ekki, eins og mér, yndislegast flest á vorin? Guðrún var náttúruunnandi, og kom því fyrir í ljóði. Um vetrarkvöld: Degi ha/lar hafs að djúpi, hökul falla lœtur sinn. Fold í mjallar hvílir hjúpi, hrímar allan gluggann minn. Kynja móður kaldar loga, kvikur glóða-faldur rís. Sveipar hljóð um sund og voga silfurslóða mánadís. Þögnin seið í sálu kyndir, söngvaleiðir opnar finn. Yfir breiðir böl og syndir bláa heiðið faðminn sinn. 222 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.