Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.04.2007, Blaðsíða 31
„Við“ nefnir Guðrún erindi, sem hér fer á eftir, og fjallar væntanlega um einkamál tveggja: Bera urðum skin og skúr, skilningsþurrð og trega. Þó hefur snurðum okkar úr undist furðanlega. Þegar slitnaði upp úr trúlofun, varð Guðrúnu ljóð á munni: Lyftist gári á lygnum sjó, lœddust tár á hvarminn. Nóttin sárum næðing sló nítján ára barminn. Langt er síðan ég lærði eftirfarandi stökur Guðrúnar frá Oddssstöðum: Hverfur engum alveg sól, er á strenginn kunni. Veita lengi Ijóðin skjól lífs íþrengingunni. Hnípa stráin hélu rennd, hretið sá um dóminn. Sveimar þráin klökkvakennd kringum dáin blómin. Dagar renna og œviár, okkar fenna sporin. Engar senn í sálu þrár, sem að brenna á vorin. Guðrún var alin upp í sveit, eins og að framan er sagt, og unni náttúru og því, sem í skauti hennar felst. „Litli fúglinn minn“ nefnist ljóð, sem fjallar einmitt um hann: Hlýjar sinni, styttir stund strengja þinna gaman. Okkar fmn á ýmsa lund örlög tvinnuð saman. Bundinn tregi í beggja sál barmur feginn dylur. Eg mun þegja, en þú átt mál, sem þjóðin eigi skilur. Þröngt er beggja búrið eins, bilar tveggja kraftur. Vonir eggja vart til neins; vœngir leggjast aftur. Þyngist gangan, fyrnist flug, Jinnast langar tíðir. Taka fanginn hryggan hug hljómar angurblíðir. Mér fmnst fara vel á því að birta vísur, er Guðrún orti um Borgarfjörð. Eiríksjökull varðar vel vegi heiðarinnar. Nú er bjart um norðurhvel; — nýt ég leiðarinnar. Langt er síðan leiðin mín lá um þessar slóðir. Blessuð veri brjóstin þín, Borgfirðinga móðir. Ég hefi kynnt vísur og ljóð eftir Guðrúnu Ámadóttur frá Oddstöðum í Lundarreykjadal. Hún var gott skáld, sem fengur er að kynnast. Dægurljóð Þegar þetta er ritað inn á tölvuskjá, er vetri að ljúka. í sveitinni, þar sem ég ólst upp fram til tvítugsaldurs, var litið með vonaraugum til vorsins. Þá lauk langri innistöðu sauðfjárins, en kýmar voru ekki leystar út fyrr en síðar. Þó að ég bæri ekki ábyrgð á búskapnum, fylgdist ég með honum, og gladdist, ef vel gekk, en hafði áhyggjur af erfiðleikum, hvort sem var vegna árferðis eða fóðurbirgða. Sem 18 ára unglingur lýsi ég blíðviðri á einmánuði með þessu erindi: Einmánaðar blíðviðri bœtir hag, bjart er nú hérna úti í dag. Allar kindurnar eru á beit, að þeim má bráðum hefja leit. Sólin í vestrinu svífur hátt, úr suðrinu andar vorsins átt, og snjórinn hverfur af hól og hlíð, já, harðinda brátt er úti stríð. Mér datt í hug, að gaman væri að birta hér dægurljóð, sem naut mikilla vinsælda fyrir hálfri öld og sungið var af Erlu Þorsteinsdóttur, sem danir nefndu söngkonuna með silkimjúku röddina. Erla er frá Sauðárkróki, en hefur alið aldur sinn í Danmörku. Ljóðið, sem hún Erla söng, nefnist Bergmálsharpan. Höfundur ljóðsins er Loftur Guðmundsson (1906- 1978), en lagið er eftir Friedrich W. Möller Hér er þá ljóðið vinsæla: Bergmálsharpan Ur draumafirrð mér blærinn ber þann bjarta strengjahreim, er kallar hug úrys og önn í œskudalinn heim. Falleri, fallera. . . þann bjarta strengjahreim. Heima er bezt 223

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.