Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 34
koma engum ránskap við, þar sem hann stýrir landvörnum.
Og krumma duga ekki klókindin. Svartbakurinn er hinn versti
ungamorðingi, einkum þykja honum góðir æðarungar, en
þó lifir kollan og hann stundum í svo nánu sambýli, að ekki
er nefsbreidd á milli hreiðurbarmanna, og virðist sambýlið
hið ákjósanlegasta. Það hreiður þýðir engum flugvargi að
ætla sér að ræna.
Svo er hann einkavinur selsins, eins og allir veiðimenn
vita.
Næst mætum við selnum. Svartbakurinn hefur vakið
hann.
Stórir og belgmiklir útselsbrimlar og skjóttar urtur skjóta
upp kollinum skammt frá bátnum, og stara á okkur grænum
og greindarlegum augum. Þeim skýtur til axla upp úr sjónum,
troða marvaðann um stund og fjarlægjast síðan bátinn. Allur
er varinn góður. En þeim er óhætt. Hér eru ekki stríðsmenn
á ferð. Það er hvorki blý eða byssa í bátnum.
Líklega eru þetta hjón, og eiga barn í vonum, sem þau
svo ætla sér að fæða og ala upp í Hafrakletti þegar haustar.
Ég óska ijölskyldunni til hamingju!
En þetta eru aðeins útverðir byggðarinnar, þeir færustu.
Þegar við komum að tanganum liggja þar margir selir og baka
sig í sólarhitanum. Þeir eru ósköp letilegir. Dýfa kömpunum
hvað eftir annað í sjóinn, og er auðsjáanlega meinilla við að
væta sig. Þó drattast þeir ofan um síðir, blásandi og rymjandi.
Nokkrir reka í fyrstu upp hausinn skammt frá tanganum og
blása mæðulega yfír ónæðinu, sem þeir verða fyrir, aðrir
setja kryppu upp úr hryggnum og láta sig fljóta í sjólokunum.
Síðan lóna þeir í burt og við sjáum þá ekki meir.
Sendlingar vappa tístandi um tangann, því nú er ijara
og þeir í ætisleit. Sennilega eru þetta geldfuglar, sem ekki
hugsa til varpstöðva í sumar.
Næst mætum við skarfmum, við flæðarmál á tanganum.
Honum er erfítt um gang og þungt um flug. Sjórinn er hans
eina athvarf. Oskapleg kös er þar af ungum í hreiðrum, sem
raunar eru nú ekki hreiður lengur, heldur samfelld þarahrönn,
troðin og bæld, þar sem ekki mótar fyrir nokkurri hreiðurgerð.
Sumir engjast sundur og saman berir og blindir, og eiga
sýnilega bágt með að þola birtuna. Aðrir em á „besta búnaði“,
en nokkuð alfíðraðir og komnir að því að yfírgefa bælið.
En þeir eru þungir á sér og feitir, og vilja sitja meðan sætt
er. Þegar þeir teygja úr hálsinum og hrista að okkur gráan
kollinn, vellur upp úr þeim fískurinn, lítt eða ekki meltur.
Unginn er ákaflega gráðugur, og foreldramir spara ekki
við hann fæðuna. Marhnútur og þaraþyrsklingur em hans
uppáhalds réttir.
Skarfurinn er sá kyndugasti varpfugl sem ég þekki. Hann
getur verið að verpa frá því snemma í mars og þangað til í
fardögum. Því er unginn svo misjafn.
Teistan - þessi þýð lynda prúða „systir“ í ríki fuglanna
- flýtur við klappimar. Hún er ákaflega spök og gæf þarna
eins og annars staðar. Sjálfsagt á hún tvo unga einhvers staðar
í glufu milli steina uppi á hólmanum. Það fer hvergi mikið
fyrir henni. Hógværð og háttprýði em hennar dyggðir.
Svo göngum við upp á hólmann. Hann er algróinn þróttmikilli
töðu og mel. Skarfakálstoppar á stöku stað. Og svo er mjúkt
við fótinn í töðufeldinum, að það er eins og gengið sé eftir
vel stoppaðri dýnu. Hér hefur ekki verið borinn ljár í gras um
tugi ára. En grasið nært af fugladriti, hávaxið og kjammikið,
lagst út af og dáið í lok hvers vaxtartímabils og myndar
þykkan og frjóan jarðveg ofan á þessum afskekkta kletti.
- Moldin hverfur til jarðarinnar þar sem hún áður var, en
andinn til guðs, sem gaf hann.
I grasinu er krökkt af svartbaksungum. Þeir stærstu fara
á kreik og hypja sig til sjávar, en þeir minni bæla sig niður
og fara hvergi. Við megum gæta okkar að stíga ekki ofan
á þá.
Kríuungunum er þó hættara. Þeir em nýskriðnir úr eggjunum,
og sumir ófæddir. En við reynum að valda ekki slysum.
Raunar er hætt við, að eitthvað af þeim verði hinum gráðugu
226 Heima er bezt