Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.04.2007, Blaðsíða 34
koma engum ránskap við, þar sem hann stýrir landvörnum. Og krumma duga ekki klókindin. Svartbakurinn er hinn versti ungamorðingi, einkum þykja honum góðir æðarungar, en þó lifir kollan og hann stundum í svo nánu sambýli, að ekki er nefsbreidd á milli hreiðurbarmanna, og virðist sambýlið hið ákjósanlegasta. Það hreiður þýðir engum flugvargi að ætla sér að ræna. Svo er hann einkavinur selsins, eins og allir veiðimenn vita. Næst mætum við selnum. Svartbakurinn hefur vakið hann. Stórir og belgmiklir útselsbrimlar og skjóttar urtur skjóta upp kollinum skammt frá bátnum, og stara á okkur grænum og greindarlegum augum. Þeim skýtur til axla upp úr sjónum, troða marvaðann um stund og fjarlægjast síðan bátinn. Allur er varinn góður. En þeim er óhætt. Hér eru ekki stríðsmenn á ferð. Það er hvorki blý eða byssa í bátnum. Líklega eru þetta hjón, og eiga barn í vonum, sem þau svo ætla sér að fæða og ala upp í Hafrakletti þegar haustar. Ég óska ijölskyldunni til hamingju! En þetta eru aðeins útverðir byggðarinnar, þeir færustu. Þegar við komum að tanganum liggja þar margir selir og baka sig í sólarhitanum. Þeir eru ósköp letilegir. Dýfa kömpunum hvað eftir annað í sjóinn, og er auðsjáanlega meinilla við að væta sig. Þó drattast þeir ofan um síðir, blásandi og rymjandi. Nokkrir reka í fyrstu upp hausinn skammt frá tanganum og blása mæðulega yfír ónæðinu, sem þeir verða fyrir, aðrir setja kryppu upp úr hryggnum og láta sig fljóta í sjólokunum. Síðan lóna þeir í burt og við sjáum þá ekki meir. Sendlingar vappa tístandi um tangann, því nú er ijara og þeir í ætisleit. Sennilega eru þetta geldfuglar, sem ekki hugsa til varpstöðva í sumar. Næst mætum við skarfmum, við flæðarmál á tanganum. Honum er erfítt um gang og þungt um flug. Sjórinn er hans eina athvarf. Oskapleg kös er þar af ungum í hreiðrum, sem raunar eru nú ekki hreiður lengur, heldur samfelld þarahrönn, troðin og bæld, þar sem ekki mótar fyrir nokkurri hreiðurgerð. Sumir engjast sundur og saman berir og blindir, og eiga sýnilega bágt með að þola birtuna. Aðrir em á „besta búnaði“, en nokkuð alfíðraðir og komnir að því að yfírgefa bælið. En þeir eru þungir á sér og feitir, og vilja sitja meðan sætt er. Þegar þeir teygja úr hálsinum og hrista að okkur gráan kollinn, vellur upp úr þeim fískurinn, lítt eða ekki meltur. Unginn er ákaflega gráðugur, og foreldramir spara ekki við hann fæðuna. Marhnútur og þaraþyrsklingur em hans uppáhalds réttir. Skarfurinn er sá kyndugasti varpfugl sem ég þekki. Hann getur verið að verpa frá því snemma í mars og þangað til í fardögum. Því er unginn svo misjafn. Teistan - þessi þýð lynda prúða „systir“ í ríki fuglanna - flýtur við klappimar. Hún er ákaflega spök og gæf þarna eins og annars staðar. Sjálfsagt á hún tvo unga einhvers staðar í glufu milli steina uppi á hólmanum. Það fer hvergi mikið fyrir henni. Hógværð og háttprýði em hennar dyggðir. Svo göngum við upp á hólmann. Hann er algróinn þróttmikilli töðu og mel. Skarfakálstoppar á stöku stað. Og svo er mjúkt við fótinn í töðufeldinum, að það er eins og gengið sé eftir vel stoppaðri dýnu. Hér hefur ekki verið borinn ljár í gras um tugi ára. En grasið nært af fugladriti, hávaxið og kjammikið, lagst út af og dáið í lok hvers vaxtartímabils og myndar þykkan og frjóan jarðveg ofan á þessum afskekkta kletti. - Moldin hverfur til jarðarinnar þar sem hún áður var, en andinn til guðs, sem gaf hann. I grasinu er krökkt af svartbaksungum. Þeir stærstu fara á kreik og hypja sig til sjávar, en þeir minni bæla sig niður og fara hvergi. Við megum gæta okkar að stíga ekki ofan á þá. Kríuungunum er þó hættara. Þeir em nýskriðnir úr eggjunum, og sumir ófæddir. En við reynum að valda ekki slysum. Raunar er hætt við, að eitthvað af þeim verði hinum gráðugu 226 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.