Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 39

Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 39
■u5 Cuðmundur Sæmundsson minning Genginn er á vit feðra sinna, einn besti góðvinur okkar hjá tímaritinu Heima er bezt, Guðmundur Sæmundsson. Guðmundur var mikilhæfur greinahöfundur og liggur eftir hann talsvert greinasafn, sem birst hefur í ýmsum tímaritum, en þó hygg ég að ætla megi að einna mest og lengst hafi hann skrifað í tímaritið Heima er bezt. Greinar Guðmundar voru vinsælar hjá lesendum ritsins og mikið lesnar. Hann var sérstakur áhugamaður um sögu skipa og samgangna á sjó, einnig ferðalög á láði jafnt sem legi, og ijölluðu greinar hans gjarnan um þessi efni. Einnig ritaði hann talsvert um heimabyggð sína og æskuslóðir, Fljót í Skagafírði, en þaðan átti hann margar og góðar minningar. Mikill fróðleikur og heimildir búa í þessum greinum Guðmundar, bæði um lifnaðarhætti, sögu staða og búenda, og afar margar greina hans eru ritaðar samkvæmt eigin reynslu af því sem fjallað var um. Ekki hef ég tekið saman fjölda þeirra greina sem Guðmundur ritaði fyrir okkur hjá Heima er bezt, en tel ekki fráleitt að ætla að þær séu a.m.k. rúmlega hundrað talsins. Fyrsta grein hans birtist í blaðinu í september 1972, og sló hann þar nokkuð tóninn hvað varðar það sem síðar kom, en í þeirri grein ritar hann um seglskipið Gránu, er hóf siglingar fyrir Gránufélagið á Akureyri árið 1869. Síðan verður nokkurt hlé á samskiptum Guðmundar og blaðsins, eða allt til ársins 1996, er þar birtist hans næsta grein, sem ljallaði um fyrstu hópferð íslendinga til Kanaríeyja árið 1962. Og upp frá því má heita að Guðmundur hafi átt grein í hverju einasta hefti blaðsins, um nær 10 ára skeið, eða allt til þess að veikindi hans fóru að gera honum erfitt um skrif. Lengst af þessa tíma ræddum við Guðmundur saman á hverjum degi, um hin aðskiljanlegustu efni, og var það nokkuð föst regla, að dagurinn hófst á því að Guðmundur sló á þráðinn til að spjalla. Var nokkuð misjafnt hvað lengi var rabbað, en algengt var að við spjölluðum í hálftíma, og stundum allt að klukkustund, þegar vel lá á okkur. Guðmundur var einstakur hætlleikamaður í samræðulistinni, hafði gaman af og átti gott með að segja frá, bæði mönnum og málefnum. Eg naut þessara spjalltíma okkar Guðmundar með miklum ágætum, og á eftir að sakna þeirra um langa hríð. Og vissulega er orðið skarð fyrir skildi í höfundahópi Heima er bezt, og ekki vafi á að margir eiga eftir að sakna fróðleiksgreina Guðmundar. Nokkru áður en hann lést, höfðum við reifað þann möguleika, að gefa út sérstaklega, greinasafn hans, sem birst hafði í blaðinu, a.m.k. úrval úr því, og var fyrirkomulag þess með því síðasta sem við Guðmundur ræddum héma megin heims. Hann var byrjaður að flokka það niður til þeirrar birtingar, með aðstoð Lindu dóttur sinnar, þegar kallið kom. Þessi samantekt greina hans var honum talsvert áhugamál, og er það von okkar að geta haldið því verki áfram og koma á prent, því það yrði verðugur minnisvarði um góðan dreng og listhagan miðlara fróðleiks. Eftirlifandi eiginkonu og börnum þeirra, votta ég mína dýpstu samúð. Guðjón Baldvinsson. Heima er bezt 231

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.