Heima er bezt - 02.11.1963, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 02.11.1963, Blaðsíða 2
BLINDUR ER BÓKLAUS MAÐUR Vel valið heimilisbókasafn, þótt lítið sé að vöxt- um, er ein bezta eign hvers heimilis. Það er menn- ingarauki, híbýlaprýði, gleðigjafi og fróðleiks- brunnur allt í senn. Erfitt er að gefa algildar regl- ur um val í slík söfn. Þar verður smekkur og áhuga- mál hvers og eins að ráða, því að þau bókasöfn eru til notkunar en ekki til þess að standa í skáp fyrir fordildar sakir. Mikils væri um það vert, ef unnt væri að kenna börnum og unglingum almennt að njóta samfélagsins við bækurnar, þegar á ungurn aldri. Er ekki að efa, að þau kynni myndu draga nokkuð úr því eirðarleysi og óróa, sem svo mjög gætir meðal æskufólks. Þannig getur heimilisbóka- safnið orðið mikilvægur þáttur í uppeldi þjóðar- innar. Áskrifendur „Heima er bezt“ eru betur settir en margir aðrir með það að afla sér góðra bóka og koma sér upp heimilisbókasafni, því þeir geta val- ið úr miklum fjölda bóka, sem þeir eiga kost á að eignast við miklu lægra verði en allur almenningur. Fjöldamargir áskrifendur hafa látið í ljós ánægju sína með þetta fyrirkomulag og notfært sér það til bókakaupa. Hér fer á eftir skrá yfir allar þær bækur, eldri og yngri, sem áskrifendur „Heima er bezt“ eiga kost á að panta. Eins og sjá má, þegar blaðað er í skránni, þá kennir hér margra grasa, og er þar eitt- hvað við flestra hæfi. í lok bókaskrárinnar er handhægur pöntunarseð- ill fyrir þá, sem vilja notfæra sér þessa þjónustu. 388 a. Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.