Heima er bezt - 02.11.1963, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 02.11.1963, Blaðsíða 22
909. BYGGÐIR OG BÚ Aldarminning búnaðarsamtaka Suður-Þingeyinga Þetta er stórkostlega fróðleg og glæsileg bók, sem á sér ekki sína líka í íslenzkri bókaútgáfu. Bókin er 700 blaðsíður í stóru broti og í henni eru á annað þúsund ljósmynda af bæjarhúsum og ábúendum jarðanna auk mynda af helztu félagsmálafrömuðum héraðsins frá því tíma- bili, sem bókin fjallar um. í fyrri hluta bókarinnar greinir frá sögu fé- lagshreyfinga í Suður-Þingeyjarsýslu, einkum að því er varðar framfarir í búnaði. í síðari hlutanum er lýsing á öllum bújörð- um, landkostum þeirra, ræktun og byggingum og ágrip af sögu þeirra. Þá er skrá um öll eyði- býli í sýslunni auk ýtarlegrar nafnaskrár. Þetta er ein af þeim bókum sem verður því verðmætari sem tímar líða fram. Þarf ekki annað en gera sér í hugarlund hvílíkur feng- ur væri að því að eiga nú í dag slíka bók sem prentuð hefði verið fyrir 100 árum. í lausasölu kr. 725.00. Til áskrifenda HEB aðeins kr. 510.00. 408 a. Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.