Heima er bezt - 02.11.1963, Page 34
903. SIGLINGIN TIL SEGULSKAUTSINS
NORÐVESTURLEIÐIN ejtir Roald Amundsen.
Bók þessi er í senn ævintýraleg og fróðleg. Hún seg-
ir frá einstæðu afreki í sjóferðasogu heimsins er Roald
Amundsen sigldi fyrstur manna vestur fyrir meginland
Ameríku norðanvert og allt til Kyrrahafs. Jafnframt
er sagt frá viðburðaríkum ferðalögum um heimskauta-
löndin og dvöl Amundsens og félaga hans á ísauðnum
norðurhjarans. Þar komst hann í náin kynni við Eski-
móa og nam mál þeirra. Eru lýsingar hans á lífi, sið-
um og sérkennilegum heimilisháttum þeitTa einstæðar
í sinni röð.
Siglingin til segulskautsins er eftirlætis bók sjó-
manna, ferðalanga og allra vaskra drengja.
í lausas. kr. 175.00. Til áskrif. HEB aðeins kr. 125.00.
904. í LANDVARI
eftir Gisla Olafsson frá Eiriksstöðum.
Höfundur er löngu landskunnur fyrir ljóð og lausa-
vísur. Hann er tvímælalaust einn af snjöllustu vísna-
smiðum þjóðarinnar, enda sumar vísur hans á hvers
manns vörum.
í landvari er bók sem gleður hvern ljóðavin og
vísnaunnanda.
í lausas. kr. 95.00. Til áskrif. HEB aðeins kr. 70.00.
905. HETJA TIL HINZTU STUNDAR
Sannar frásagnir af Onnu Frank eftir Ernst Schnabel.
í bók þessari er rakin eftir traustum og sönnum
heimildum ferill Gyðingastúlkunnar frægu, Önnu
Frank. Höfundur er þýzki blaðamaðurinn Ernst
Schnabel, sem hlotið hefur mikið lof fyrir verk sitt.
Bókin hefur náð mikilli útbreiðslu og verið þýdd á
fjölda tungumála. Ætti bókin að vera mikill fengur
islenzkum lesendum, ekki hvað sízt þeim, sem lesið
hafa Dagbók Önnu Frank eða séð leikritið (eða kvik-
myndina), sem upp úr henni var spunnið.
Bók þessi lýsir ljóslega hinum átakanlegu hörmung-
um Gyðinga og annarra fórnardýra þýzku nazistanna
í heimsstyrjöldinni síðari og er trúlega einhver gleggsta
lýsing, sem til er, á hinum Itryllilegu stríðsfangabúð-
um nazista.
Hin hiirmulegu örlög Gyðingastúlkunnar ungu
verða öllum, sem um þau lesa, ógleymanleg, og öll er
bókin hin áhrifamesta hugvekja gegn ógnum einræð-
isins um miðja 20. öld.
í lausas. kr. 95.00. Til áskrif. HEB aðeins kr. 70.00.
420 a. Heima er bezt