Heima er bezt - 02.11.1963, Qupperneq 39
87. KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner í þýð. Huldu Valtýsdóttur.
Ljóðaþýðingar eftir Kristján frá Djúpalæk.
Það eru ekki margir krakkar á íslandi, sem ekki kannast
við Kardemommubæinn og þá kumpána Kasper, Jesper og
Jónatan. í þessari gullfallegu útgáfu, sem er með vatnslita-
myndum eftir höfundinn í öllum regnbogans litum, eru
auðvitað öll ljóðin sem voru í leikritinu og meira að segja
nóturnar líka. Þetta verður jólagjöf, sem börnin kunna að
mcta.
í lausasölu kr. 95.00. Til áskr. HEB aðeins kr. 70.00
HAGSTÆÐUSTU
BÓKAKAUPIN
Þegar þér hafið ákveðið hvaða bækur þér viljið fá
sendar, gerið þér hring um númerið á hverri bók
fyrir sig á pöntunarseðlinum hér til vinstri, leggið
saman HEB-VERÐ bókanna, og sendið greiðslu
ásamt pöntunarlistanum í sérstöku umslagi. Athug-
ið vel, að það er nauðsynlegt að setja pöntunarum-
slagið í ábyrgðarpóst ef greiðsla fylgir pöntun. Þeir,
sem þess óska geta fengið bækurnar sendar gegn
póstkröfu, en þá bætist póstkröfugjald við upphæð-
ina.
Þennan pöntunarseðil geta þeir einir notað, sem
eru áskrifendur að tímaritinu HEIMA ER BEZT.
(Þeir, sem vilja síður klippa pöntunarseðilinn út
úr blaðinu, geta sjálfir skrifað númer þeirra bóka,
sem þeir kjósa sér á sérstakt blað, ásamt nafni sínu
og heimilisfangi og sent það blað í stað pöntunar-
listans.)
Heima er bezl a. 425