Hljóðabunga - 01.03.1975, Side 3

Hljóðabunga - 01.03.1975, Side 3
Ávarp fil lesenda efni frá góðviljuðum mönnum. Nú von- umst við einnig til að þessi fátæklegu skrif geti veitt lesendum nokkra ánægju og fróðleik. Ef undirtektir verða sæmilegar á blaðið að koma út tvisvar á ári og kemur þá annað tolu- blað að hausti. Með hækkandi sól gerast ævintýr bræður og systur. Blaðið Hljóðabunga er eitt af þessum ævintýrum, gefið út af hópi manna sem langar til að lífga upp á mannlíf á Yestfjörðum. Þeir hafa unnið að því að koma á pappír hugs- unum sínum, barið að dyrum hjá tveim- ur heiðursmönnum og fengið aðsent Kögur og Horn og Heljarvík huga minn seiða löngun, tætist hið salta sjávarbrim sundur á grgttum töngum. Hljóðabunga við Hrollaugsborg herðir á stríðum söngum, meðan sinn ólma organleik ofviðrið hegr á Dröngum. (Úr Áföngum eftir Jón Helgason) í tilefni forsíðu íslendingar eru skrýtnir. Það góða, sem þeir vilja, gera þeir ekki, en hið illa, sem þeir vilja ekki, gera þeir. Vegna fátæktar og einangrunar losnuðu þeir við böl stóriðjunnar. Nú þegar aðrar þjóðir hafa stórskaðað náttúru með risaverksmiðjum og eitri, eykst þrýstingur á smærri þjóðir að V l •) taka við ófögnuðinum. Stórþjóðirnar hafa lært af reynslunni. Þó að við íslendingar höfum augu og hlustir í kollinum, hneigjum við okkur og beygjum og bjóðum illræmdum auðhringum á borð við Union Carbide að nauðga landinu. Einu sinni áttum við stað, sem kallaður var perla íslenskrar náttúru. Nú er þar eimspúandi og hvæsandi ófreskja. Þó að íslendingar viðurkenni í orði fegurð og sérstöðu íslenskrar náttúru eru þeir dæmalausir trassar í umgengni við hana og fórna hverju sem er fyrir bjánalegustu stundarhagsmuni. Forsíðumynd Hljóðabungu ætti að minna á að ísfirðingar gefa þar ekki öðrum eftir. Meðferð lands þeirra t.d. inn í Skutulsfjarðarbotni er ekki til fyrirmyndar. Þá áætla þeir að eyðileggja þær fáu óspilltu fjörur sem enn eru innan bæjar- takmarka. Brotajárn og rusl er áberandi og er Þar Suðurtanginn lýsandi dæmi. Svo mætti lengi þylja. Tökum höndum saman um að gæta íslenskrar náttúru. Gerum ísland ekki að iðnvíti eða ösku- haugum! ^vXDS HLJÓÐABUNGA 3

x

Hljóðabunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.