Hljóðabunga - 01.03.1975, Page 3
Ávarp
fil lesenda
efni frá góðviljuðum mönnum. Nú von-
umst við einnig til að þessi fátæklegu
skrif geti veitt lesendum nokkra
ánægju og fróðleik. Ef undirtektir
verða sæmilegar á blaðið að koma út
tvisvar á ári og kemur þá annað tolu-
blað að hausti.
Með hækkandi sól gerast ævintýr
bræður og systur. Blaðið Hljóðabunga
er eitt af þessum ævintýrum, gefið út
af hópi manna sem langar til að lífga
upp á mannlíf á Yestfjörðum. Þeir hafa
unnið að því að koma á pappír hugs-
unum sínum, barið að dyrum hjá tveim-
ur heiðursmönnum og fengið aðsent
Kögur og Horn og Heljarvík
huga minn seiða löngun,
tætist hið salta sjávarbrim
sundur á grgttum töngum.
Hljóðabunga við Hrollaugsborg
herðir á stríðum söngum,
meðan sinn ólma organleik
ofviðrið hegr á Dröngum.
(Úr Áföngum eftir Jón Helgason)
í tilefni
forsíðu
íslendingar eru skrýtnir. Það góða, sem þeir
vilja, gera þeir ekki, en hið illa, sem þeir vilja
ekki, gera þeir.
Vegna fátæktar og einangrunar losnuðu þeir
við böl stóriðjunnar. Nú þegar aðrar þjóðir
hafa stórskaðað náttúru með risaverksmiðjum
og eitri, eykst þrýstingur á smærri þjóðir að
V l •)
taka við ófögnuðinum. Stórþjóðirnar hafa lært
af reynslunni. Þó að við íslendingar höfum augu
og hlustir í kollinum, hneigjum við okkur og
beygjum og bjóðum illræmdum auðhringum á
borð við Union Carbide að nauðga landinu.
Einu sinni áttum við stað, sem kallaður var
perla íslenskrar náttúru. Nú er þar eimspúandi
og hvæsandi ófreskja.
Þó að íslendingar viðurkenni í orði fegurð og
sérstöðu íslenskrar náttúru eru þeir dæmalausir
trassar í umgengni við hana og fórna hverju
sem er fyrir bjánalegustu stundarhagsmuni.
Forsíðumynd Hljóðabungu ætti að minna á að
ísfirðingar gefa þar ekki öðrum eftir. Meðferð
lands þeirra t.d. inn í Skutulsfjarðarbotni er
ekki til fyrirmyndar. Þá áætla þeir að eyðileggja
þær fáu óspilltu fjörur sem enn eru innan bæjar-
takmarka. Brotajárn og rusl er áberandi og er
Þar Suðurtanginn lýsandi dæmi. Svo mætti lengi
þylja.
Tökum höndum saman um að gæta íslenskrar
náttúru. Gerum ísland ekki að iðnvíti eða ösku-
haugum!
^vXDS
HLJÓÐABUNGA
3