Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 5

Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 5
i Ég hafði snemma opinn munninn. og ýmsu á spássíu sem hann náði í. Ég er búinn að gleyma hvaða bók þetta var, það var einhver forn ættartala. Efni voru léleg og ekki aðrar kröfur en að það væri til að éta og sæmilega hlýtt í baðstofunni. Hann hafði 30 línu olíulampa, sem kallaður var eða blússlampi, og hann hitaði mikið á kvöldin. KVENSEMI OG SKOTTULKÆKNINGAR Kona Sighvats, Ragnhildur Brynjólfsdótt- ir, sem var stjúpa mömmu, hafði mikið dálæti á honum, en var ákaflega hrædd um hann, hún gekk bara með dellu. Einu sinni þegar þau voru orðin gömul bæði tvö var hún að segja mér frá stelpu, sem væri þar í nágrenninu, og væri sífellt að fara í hlöð- una hans Sighvats. Og svo var hún að skæla og segja mér frá þessu. Ég var líklega um 15 ára og mig langaði nú til þess að hún væri ánægð og væri ekki með þessar raunir. Ekki datt mér í hug, að segja henni að þetta væri ekki satt, en ég sagði við hana: „Heyrðu, geturðu ekki látið þér standa á sama”. Það lengdist á henni andlitið og hún sagði: „Guð náði þig, Nonni minn, þetta getur maður ekki sagt um ektapar sinn. Það er ekki hægt”. HLJÓÐABUNGA 5

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.