Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 8

Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 8
veiðastöðinni. Ymsir staðir voru svo megnir af þessari lykt, að ég gat aldrei komið á þá. Þegar Fjandinn var að koma i draumum til þess að ónáða mig var það yfirleitt með því að vera með þrátt flesk og vilja nugga framan í mig. Ég held, að þetta hafi verið flökurleiki sem var orsökin, truflun í mag- anum, því að alltaf seldi maður upp þegar maður vaknaði. Jónsbók var alltaf lesin heima, og maður varð snemma að þegja og hlusta, meðan verið var að lesa þennan langa lestur, en leiðinlegt var það. Til þess að maður væri rólegur, var maður að skoða myndirnar í þjóðvinafélagsalmanökum, nema það vildu losna blöðin. Maður tók heldur stíft í þau, þangað til þau hrukku upp úr og þá hrökk maður við sjálfur. Það var sjaldan gert mikið úr því, þó að leitt þætti að missa þau. Það var engin önnur lestrarbók potuð en Jónsbók. Svo voru einhverjar hugvekjur á föstunni. Það vantaði ekki trúræknina, en hvort lífernið var alltaf samkvæmt, það er annað mál. Túlkanirnar voru meira líkar Grýlu en að það væri Guð, sem verið var að túlka, þetta var gamalt kirkjuortodox. Hallgrímur Pétursson var mjög mikið uppáhald, og maður veit nú hvernig guð- fræðin hans hefur verið. Satan bjó boðinn og búinn að draga sálirnar í vítiseld. Ég held það hafi verið kenningin. Þó voru trúarbrögðin kölluð fagnaðarboðskapur. Ég held, að hann hafi j)ó oft fengið að lúta í lægra haldi hjá kirkjunni, hafi frekar verið notaður til að halda mönnum í skef j- um og gera þá auðsveinari því valdi, sem er. Það er Páll postuli víst sem segir: „Verið yfirboðnum valdstéttum hlýðin, því að enginn valdstétt er til nema frá Guði”. Meginþunginn hefur verið lagður á j)essa skoðun fremur en hina kærleiksríku skoðun, sem Kristur var að kenna, ])ví að hans kenning felur ekl<i annað í sér en að leita að því týnda og biarga því. M.a.s. djöflarnir, sem hann rak út. beir biðia að hann vægi sér og lofi sér að fara í svínin, og liann gerir það. Við vitum, hvernig sagan er vim vændis- konuna. sem átti að devða. Kristur sagði: „Hvar eru þeir sem ákæra þig?” „Farnir”, segir hún. „Ákærir þig enginn?”. „Nei”, segir hún, „enginn”. „Það geri ég ekki heldur”, segir hann. Þetta er samræmi í hans kenningu. BAKKAÞORP OG JÓN 1 GLÓRU Við kölluðum Bakkaþorp, sem nú er yfirleitt skilgreint á pappírnum sem Neðri Hjarðardalur. Það var hinum megin við ána, næsti l)ær við Htifða. Þar voru 4 býli. Þar var Glóra, Skemmuhús og Fremsthús og þar var Bakki. Þetta var heilt þorp. Um Glóru og Glórugil voru þjóðsögur. Kona nokkur bjó á Hrafnabjörgum, sem er hjáleiga frá Höfða og löngu komin í eyði. Bærinn dró nafn sitt af klettum, sem eru þar fyrir ofan, og fellur stundum grjót úr, í grjótsax sem er þar fyrir neðan í gras- flóka, og kallað er Stórgrjót. Svo er sagt, að karlinn, sem átti heima í Glóru, stælist þarna inn eftir til að rífa hrís og mættust þau konan á Stóragili, sem svo er kallað. Ekki er sagt, að þeim hafi farið mikið á milli, en þegar hún kemur heim til sín inn eftir, þá fellur Glórugil. En karl var fjöl- kunnugur líka og gat beint gilinu lit á. Þess vegna er þessi bevgja fyrir neðan gilið lit ó við. Hann beindi straumnum þangað. En til að hefna sín á henni, þá lét hann Stór- grjót falla og ætlaði þeim að fara alla leið niður. en hún sá við lekanum sú gamla. Hún bjóst við þessu og gat með krafti sínum stöðvað grjótið svo að það þorði ekki lengra. Jón hét náaranni okkar í G’óru. Hann var vinur okkar strákanna. Við vorum fjórir. en af því að einn okkar hét Jón, kallaði hann okkur aRa nafna. „Nafni. viltu graut”. Já, liann var sestrisinn og vildi gefa okkur eitthvað að éta. Jóni var iRa við nafnið Glóru, færði bæinn sinn út að Gili og lét hann heita Gil, fékk frænda minn til að mála ski'ti með nafninu. Hann sa^ði að nafnið væri þinplesið og það væri 10 kr. múlt ef fólk knl'aði bæinn ekki Gil. Svo kom 1 markatöflunni næst á eftir: Jón 8 HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.