Hljóðabunga

Ukioqatigiit

Hljóðabunga - 01.03.1975, Qupperneq 21

Hljóðabunga - 01.03.1975, Qupperneq 21
Einnr Eyþórsson: Vormenn íslnnds Að hugsa hátt, og djarft vera ofar dægurþrasi samtímans og horfa fram á við. Þetta er hlutverk hugsjónamanna. Á öllum tímum hafa hugsjónamenn flutt hoðskap sinn en haft misjafnan árangur. Stundum hafa orð þeirra fallið dauð niður, en á öðrum tímum valdið byltingum eða stórfelldum andlegum vakningum. Ein slík vakning varð á Islandi uj)p úr siðustu aldamótum. Þá voru mikil umbrot í þjóðlífinu. Andi sjálfstæðisbaráttunnar mcð glæsileg fyrirhcit um frelsi og bjarta framtlð eftir langt og erfitt niðurlægingar- tímabil kom eins og gróðrarskúr á hálf- skrælnaðan mannlifsgróður. fs^and var þá enn bændaþjóðfélag, yfir 80% þjóðarinnar búsett í sveitum og því voru það bændurnir með sína samvinnu- hugsjón, og bændasynirnir með sína ung- mennafélagshugsjón sem bundust hvorir sínum samtökum í því skyni að hjálpa sjálfum sér, - skapa nvtt og hetra ])jóð- félag. Samvinnuhreyfingin sem byrjaði göngu sína meðal framfarasinnaðra bænda í Þingeyj arsýslu átti stóran hlut í að gera fslendinga sjálfum sér ráðandi - með því að tryggja bændum sannvirði fyrir vöru sína. Hreyfing bændasonanna, ungmennafél- agshreyfingin, var þó engu ómerkari. Um hana mun grein þessi fjalla. ANDI AÐ AUSTAN Norska ungmennahreyfingin, Norges Ungdomslag, óx upp á síðasta áratug nítj- ándu aldar, um sama leyti og Norðmenn voru að endurheimta sjálfstæði sitt. f norsku lýðháskólunum sveif andi hreyf- ingarinnar yfir vötnunum og snart þá ís- lendingana sem þar stunduðu nám. — Einn þeirra var Guðmundur Hjaftason. I Skin- faxa 1909 lýsir hann svo upphafi þessa félagsskapar: „Þá (um 1890) var svo mikið trúleysi, deyfð og kæruleysi í andlegum efnum i Noregi að fjöri og framsóknarhug unga fólksins var hætta búin. — Fófkinu var kennt að vita mikið en vilja lítið”.— „En æskulýðsfélögin vöktu von og viljaþrek hjá þeim ungu. -- Það var eins og þau mynduðust af sjálfu sér: Fleiri eða færri af efnilegustu og mennt- uðustu unglingum sveitarinnar, einkum þeir sem gengið höfðu í lýðháskóta, fóru að safna saman ungu fólki á sunnudags- kvöhiin. Stundum var kennari fenginn til að lesa eitthvað upphátt. —Síðan var talað um eitt eða annað málefni sem fólkið hefði lesið um. Svo var skemmt sér með leik og dansi.--- Samkomur þessar urðu smátt og smátt að reglulegu félagi, - lög voru samin og fétagsstjórn sett. Vanalega var tesið um hið besta og göfugasta í hókmenntum þjóðarinnar. Og svo var ráðgast um hvað best væri að gera til að vekia og bæta ])jóðMfið. Og meira og minna hafa þessi félög gert ti' þess”. — Á fslandi voru engir lýðháskólar, að- HLJÓÐABUNGA 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Hljóðabunga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.