Hljóðabunga - 01.03.1975, Side 22

Hljóðabunga - 01.03.1975, Side 22
eins fáeinir gagfræðaskólar og Menntaskól- inn sem var forpokaður embættismanna- skóli. En eins og í Noregi eru það skólarnir sem fyrstir gróðursetja hér hugsjónina, en frá þeim breiðist hún síðan út um sveit- irnar. Ungmennafélög voru stofnuð í Gagn- fræðaskólanum á Akureyri, Kennaraskól- anum og Flensborg í Hafnarfirði. — Mennt- skælingar komu hvergi nærri — þeir voru fínir menn og litu niður á þetta brölt í sveitalýðnum. UPPHAF UNGMENNAFÉLAGA Fyrsta ungmennafélagið, UMF Akureyrar var formlega stofnað á fundi hinn 7. janúar 1906. Stofnendur voru tólf og höfðu tveir þeirra dvalist í Noregi og kynnst þar norsk- um æskuK'ðssamtökum. Yfirlýstur tilgangur félagsins var í fyrsta lagi: „Að reyna að safna æskulj'ð landsins undir eitt merki þar sem þeir geti barist sem einn maður með einkunnarorðunum: „1 sameiningu getum vér aflað oss líkam- legs og andlegs þroska. — Vér viljum reyna að vekja æskulýðinn af hinum þunga svefni hugsunarleysis og sljóleika fyrir sjálfum sér til einingar og fram- sóknar,vekja lifandi ættjarðarást í brjóst- um íslenskra ungmenna, en eyða flokka- batri og pólitískum flokkadrætti. 1 öðru lagi: 1. Að reyna af alefli að vekja löngun hjá æskulýðnum á aldrinum 15 til 30 ára til starfa fyrir sjálfa sig land sitt og þjóð. 2. Að temja sér að beita starfskröftum sínum í félagi og utan félags. 3. Að reyna af fremsta megni að styðja, viðhalda og efla allt sem er þjóðlegt og rammíslenskt og horfir til gagns og sóma fyrir hina íslensku þjóð. Sérstaklega skal leggja stund á að fegra og hreinsa móður- málið”. — Auk þess voru í inntökuskilyrðum ákvæði um vínbindindi og „að þeir einir gætu orðið félagar sem treystu á hand- leiðslu og almætti guðlegs afls”. Hér standa arftakar Gunnars og Njáls í trjálundi úti í Lundúnaborg, þar staddir til að auka hróður íslands á hinum ólympsku leikum 1908. — Lengst til vinstri er Jóhannes Jósepsson frá Akureyri (í litklæðum) þá Hallgrímur Benediktsson Reykjavík (faðir Geirs Hallgrímssonar) þá Guðmundur Sigurjónsson Rvk., Sigurjón (á Álafossi) Pétursson, Páll Guttormsson Seyðisfirði, Jón Pálsson Akureyri og Pétur Sigfússon þingeyingur. 22 HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.