Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 25

Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 25
Eftir að Jónas hættir ritstjórn setur Skin- faxa heldur ofan, enda fara í hönd erfið- leikatimar í félögunum. Á síðari hluta kreppuáranna fer hann þó að rétta við, þótt útgáfan hafi raunar dregist saman frá því að vera mánaðarrit, niður i tvö eintök á ári. Þá tekur liann aftur á skeleggan hátt þátt í þjóðmálaumræðunni, túlkar sjónar- mið alþýðuæskunnar sem lifir við atvinnu- leysi og erfið kjör. Hernáminu 1940 er einarðlega mótmælt í Skinfaxa, og 1949, þegar Keflavíkursamningurinn er gerður, skrifar Eiríkur J. Eiriksson: „Þjóðfrelsið er hjartans mál ungmenna- félaganna. Þau munu marka stefnuna skýrt sem fyrr og án þess að skoða hvað ílokkum og einstaklingum kemur best. Við ungmennafélagar viljum ekki selja landið okkar, hvorki fyrir vinfengi né fé, og ekki þótt stórveldi eigi i hlut og bjóði slikt. Og við munum þora að standa við þessa stefnu okkar, jafnvel þótt þjóðin vilji fara varlega og kaupa sér sátt við erlent ofríki”. Skinfaxi er nú, á sínu sextugasta og sjötta aldursári, hið vandaðasta rit og kemur út 6 sinnum á ári.Núverandi ritstjóri Skin- faxa er Eysteinn Þorvaldsson. HUGSJÓNIN OG FRAMKVÆMDIN Grunntónn ungmennaf élagshugs j ónar- innar er í rauninni draumurinn um að endurvekja forna gullöld í sögu þjóðar- innar; þjóðveldisöldina. Hún var hugsjón þeirra sem vildu ganga lengst í sjálfstæðisbaráttunni. Rétt er að hafa í huga að á árunum upp úr aldamótum er langt frá því að allir Islendingar séu tilbúnir að kveða upp úr um það að tsland geti staðið ú eigin fótum sem sjálfstætt ríki. Jafnvel trúmaðurinn Guðmundur Hjaltason er i vafa: „Enginn veit hvað fyrir þjóð vorri liggur. Getum við orðið og staðist sem einstætt, sjálfstætt ríki. Ekki er það ómögulegt, ef vér tökum oss duglega fram”. „Undir ykkur er það að miklu leyti komið hvort þjóðin lifir skammt eða lengi. Ekki má mikið út af bera til þess hún deyi út. — Bara að hún deyi þá með sóma. Ilún er svo fámenn. Verður því að nota þá fáu krafta sem til eru. Sameina þá vel”. (Skinfaxi, 1. árg.) Þessi orð Guðmundar skýra að nokkru hvaða afl það var sem þjappaði æsku íslands saman í ungmennafélög. Baráttan snerist í rauninni um líf eða dauða þjóðar. Unga kynslóðin vildi ala sjálfa sig upp, þannig að hún yrði fær um að taka við frjálsu Islandi þegar þar að kæmi. Hugsjónin var að ala upp hjartahreina íslendinga, vel menntaða, þrótttmikla og þjóðholla. Þetta kemur vel fram í skuld- bindingaskrá UMFl sem allir félagar urðu að skrifa undir. Skuldbindingin er á þá leið að sá sem skrifar undir lofar að drekka enga áfenga drykki, vinna af alhug að heill félagsins, framförum sjálfs sín, andlegum og líkamlegum, og velferð og sóma þjóðar- innar. Loks lofar hann að hlíta í öllu lögum og fyrirskipunum og leggja sér- plægnislaust fram krafta sína í þágu félags- ins. Þetta stóra loforð kann að hafa fælt suma frá því að ganga í félögin, en varð aftur til þess að þau áttu traustu og reglu- sömu úrvalsliði á að skipa. Ungmennafélagar störfuðu fyrst og fremst að því að þroska sjálfa sig til þess að verða færari um að vinna þjóðinni gagn. Tilgangi sínum reyndu þeir að ná með hvers konar andlegum og líkamlegum iþróttum, alhliða félagslífi, menningar- og fræðslustarfi. Auk þess hefur skógrækt og seinna landgræðsla, verið meðal þeirra stærstu áhugamála. Þetta starf umf. hefur verið áhrifameira en margan grunar, áhrif- in eru þó mest á þroska þeirra sem i þeim hafa starfað. Flest umf. áttu sín eigin málgögn, það voru handskrifuð blöð sem allir lögðu eitt- hvað af mörkum til og voru lesin upp á fundum. HLJÓÐABUNGA 25

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.