Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 35
En telur þú þá skerðingu á fullveldi okkar
að hafa erlendan her?
— Ég tel það í alla staði ákaflega óæskilegt,
jafnvel þótt þeir séu eins ágætir menn og banda-
ríkjamenn. En það er okkur sjálfum að kenna.
Við tímum ekki að hafa her. Ástæðan er sú.
Bandaríkjamenn væru fegnir að fara héðan burt
og hafa hér vinveittan her sem væri frjáls af
sínum gerðum og gæti kosið sér bandamenn.
Björn Þórðarson áleit að 2400 manns væri nóg
þá. Nú hefur okkur fjölgað dálítið síðan en
þetta er sennilega alveg rétt hjá honum. Jón
Sigurðsson vildi að hver maður ætti vopn heima
hjá sér og æfði hermennsku eins og svisslend-
ingar. Jón Sigurðsson var vitur maður og það
var Björn Þórðarson líka. Þið megið ekki halda
að ég hafi fundið þetta upp. Það hefur bara
aldrei verið nein frjáls þjóð til sem ekki hefur
haft her og verður aldrei.
Nú er herinn víða notaður til að kúga fólkið?
— Það er hjá þessum elskulegu vanþróuðu
þjóðum sem allir bera svo mikið fyrir brjóstinu.
Það er í S-Ameríku og negraríkjunum í Afríku
og Kína, þar sem herinn hefur öll völdin, en
hann hefur ekki völdin hjá frændum okkar nein-
um, hjá siðuðum mönnum í Evrópu, hann hefur
það ekki heldur ennþá í N-Ameríku. En ég vil
nefna það að vinir mínir bandaríkjamenn, eins
og Eisenhower sagði í einni sinni seinustu ræðu,
mega vara sig á því að svona stór her geti ekki
orðið hættulegur, að hann fái ekki völdin. Ég
varð aldrei var við herinn í Kanada og aldrei
heldur 1 Bandaríkjunum, síðan var ég í her-
þjónustu þar í 3 ár og tel að það hafi verið
mesta sómastrik, sem ég hef gert, og ekkert
gert á ævinni sem ég er eins stoltur af.
Heyrir ekki hernaður fortíðinni til?
— Sýnist þér það? Líttu í kringum þig. Hver
einasta afríkuþjóð, sem fengið hefur frelsi,
hugsar ekkert um að bæta hag þegna sinna
heldur að kaupa morðvopn. Og hvað hafa ekki
indverjar gert? Þeir gengu með þá mestu helvít-
is hræsni, sem ég hef heyrt getið um, með
eilífan frið á vörunum og afvopnun. Og hvað gera
þeir? Þeir standa fyrir borgarastyrjöld í Pakist-
an til að liða sundur ríkið og svo búa þeir til
atómvopn. Hvar eru þessar friðelskandi þjóðir?
Ef þér fyndist það friðvænlegt í heiminum að
menn þyrftu ekki að verja sig eða búast við
árásum nokkurs staðar frá, þá væri kannski
hægt að tala um að leggja niður herinn, en ég
get ekki séð nokkur merki þess. Ég hef aldrei
séð heiminn eins vígbúinn og núna.
Hvaða skoðun hefur þú á félagsskap fyrir
sunnan sem kennir sig við frjálsa menningu?
— Það aninnir mig á það sem ágætur blaða-
maður sagði: „Það eru engir eins herskáir og
friðarsinnar”. Þar á meðal eru þessi félagssam-
tök og Hitler besta dæmið. Enginn hefur verið
meiri friðarsinni nú á tímum heldur en Hitler.
Hann sagði við belga og hollendinga áður en
hann réðist inn í land þeirra: „Ef það verða
blóðsúthellingar, þegar ég kem inn í landið, þá
er það allt ykkur að kenna því að þið veitið mér
mótþróa”.
HNIGNUN MENNINGARINNAR
Telur þú vera upplausnarmerkí á Vesturlönd-
um, menningin sé jafnvel að hrynja?
— Mér finnst að ég geti haldið ofurlítinn
fyrirlestur um það og bent á ótal merki hrörn-
HLJÓÐAI3UNGA
35