Hljóðabunga - 01.03.1975, Page 36

Hljóðabunga - 01.03.1975, Page 36
unarinnar og hnignunarinnar í öllum hlutum. Enskur heimspekingur á 18. öld sagði að algjört lýðræði mundi leiða til algjörrar upplausnar. Menn ættu auðvitað að vera einn fyrir alla og allir fyrir einn, en algjört og eftirlitslaust lýðræði mundi leiða til þess að allir yrðu á móti einum og einn á móti öllum. Við skulum bara líta í kringum okkur á íslandi. Þetta er að verða svo. Menn eru hættir að hjálpa hvorir öðrum. Vinnandi fólk á ekki lengur í neinni baráttu við vinnuveitendur, hins vepar níðir það skóinn hvert niður af öðru. Þar að auki hefur trúarbrögðunum hnignað. Ef dæma á af þeim menningarheildum sem verið hafa á jörð- inni á undan okkur, kinverjum. indverjum, babýloníumönnum, egyptum, grikkjum o.fl.,þá hefur upplausn trúarbragðanna ævinlega verið undanfari upplausnar menningarinnar. Listirnar sýna ótvíræð hnignunarmerki, við grípum tii alls konar örþrifaráða eins og á seinustu tímum grikkja t.d. Hafið þið kynnt ykkur hvernig það fór? Það er ósköp lík þróun og hjá okkur núna. Þetta sem við köllum raunsæi kom í listirnar og svo upplausn. Síðan dóu þær bara, alveg stein- drápust. Núna er bæði upplausn í tónlist og sinnuleysi um hana. Svo er það náttúrulega ekki góð þróun að allt vald hjá vestrænum þjóðum skuli færast á tvo staði, tvær höfuðborgir, Moskvu og Washington. En verst af öllu og sennilega langskuggalegust er sú þróun sem við höfum svo greinilega sagnir um áður, fólks- flutningana innan rómverska ríkisins. Sveitirnar lögðust í eyði og borgirnar stækkuðu von úr viti þangað til þú gast ferðast langa vegi á ítalíu og þar var enginn maður þar sem áður höfðu staðið blómlegir búgarðar. Til hvers erum við að hafa þjóðfélag og til hvers erum við að vinna fyrir peningum? Erum við að hugsa um hvort betra fólk búi í sveitum eða einni múgborg? Auðvitað á að hafa þegna þjóðfélagsins sem allra best upp- alda og heilbrigðasta og best hugsandi og færasta Við ættum frekar að hugsa um að framleiða gott mannfólk á íslandi heldur en orkuver og skuttogara. Því að til hvers verða álverin, kar- bítverin og togararnir þegar fólkið er orðið af- mannað? Til hvers er það? Ég sé núna í blöðum aftur og aftur, ég hef m.a. séð það í einu íslensku blaði í vor sem leið, hvernig ætti að full- nýta kvenfólk á íslandi. Ég vil ekki leggja neina illa meiningu í þetta, en við eigum ekki að nýta nokkurn mann þvi að maðurinn á að fá að lifa. Ég held að við hugsum alltof lítið um þetta, að það er miklu nauðsynlegra að hafa góða þegna heldur en mikla velmegun. Yfirleitt hafa allar stórborgir rotnað innan frá Rómaborg núna er ekki sú Rómaborg sem rómverjar byggðu upp. Á 6. og 7. öld voru ekki nema 30 þús. manns í Rómaborg. Það er eitthvað í stór- borgunum sem verður til þess að fólkið deyr. Það hættir að timgast, það deyr úr sóttum, það drepur hvort annað og illindast þangað til ekkert verður eftir. Ég sé ekki betur en að Reykjavík hjá okkur sé að komast á þetta stig af því að hún er svo alltof, alltof stór. Margir hafa spáð þessu með upplausn menningarinnar. Það er svo margt sem bendir á hana. Við látum ekki lengur að stjórn. í Bandaríkjunum virðist ekki lengur hægt að vera forseti og á íslandi virðist ekki lengur hægt að vera forsætisráð- herra. Enginn maður treystir öðrum. Það sem er meinlegast af öllu og mér finnst sárast af því að ég er kvenfrelsismaður, kvenfrelsið hefur verið hnignunarmerki líka. Það er svo undarlegt og það er ómótmælanlegt að kvenfólkið væri alls ekki með kröfur ef það væri ánægt. Það er óánægt, ekki út af því að það geti ekki att kappi við okkur við fiskverk og því um líkt. Það er bara óánægt, óhamingjusamt m.a. af því að það getur ekki átt nóg börn. Var kvenfrelsið eitthvað á döfinni t.d. á seinni tímum Rómaveldis? — Ég er nú hræddur um það. Þeir voru orðnir miklir kvenfrelsismenn. Konurnar skildu við mennina alveg eins og þær gera núna í Dan- mörku eða Bandaríkjunum eða íslandi. Áhrif kvenna jukust alltaf meira og meira. Kvenfrelsið er sem sagt vottur um hnignun? — Ég á við það. Nú er ég mikill aðdáandi kvenna. Ekkert er eins yndislegt í heiminum og yndislegur kvenmaður, það er ekkert til því líkt. Ég veit í hverju þetta liggur. Þær hafa miklu merkilegra hlutverki að gegna á jörðinni en við án þess að vera að vasast í pólitík. Auðvit- að á ekki að kúga þær. En ég spyr ykkur. Til hvers er lífið? Svörin eru mörg. En það er eitt svar sem hlýtur að vera öllu öðru merkara og þyngra: Við lifum til þess að sjá næstu kynslóð borgið. Og það hafa allar kynslóðir gert. Þegar við missum sjónar á því er glötunin vís. Þegar við vanrækjum uppeldi barna okkar og framtíð þeirra og næstu kynslóðar þá er auðvitað ekkert annað en eyðileggingin framundan. 3G HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.