Hljóðabunga - 01.03.1975, Blaðsíða 38

Hljóðabunga - 01.03.1975, Blaðsíða 38
okkur. Sú hugmynd er runnin frá okkur, inni- falin í vestrænu þjóðfélagi sem hefur risið upp síðan um 1500 og þróast síoan. Hjá spánverjum og líka hjá rómverjum var ekkert álitið athuga- vert við að hernema aðrar þjóðir. Vestræn vísindi hafa nú líka sína ókosti. — Já, þau hafa sína ókosti. Spursmálið er bara þetta. Eigum við að vera eins og Laxness segir í Brekkukotsannál? — Eigum við að vera eins og örninn sem flýgur uppi í skýjunum eða eigum við að vera maðkar í kálgarðinum eða lýs eða einhver fjandinn? Álítur þú ekki að austrið hafi ekki svolítið að gefa vestrinu á andlega sviðinu? — í>að getur vel verið. Við ættum allir að hafa eitthvað til að gefa hver öðrum, en austrið t.d. Kína og Indland og þær þjóðir eru löngu útdauðar menningarþjóðir, sem ég efast um að geti haft mikið nýtt fram að bjóða. Þær höfðu margt merkilegt fyrir þúsund árum síðan. Það lifir eins og steingervingur. Kínverska þjóð- félagið er algjörlega steingelt þjóðfélag. Það sem hefur gerst í Kína núna er ill nauðsyn, að skipuleggja fátæktina, ekki veknegunina. Þeir eru of margir til að geta haft velmegun. Þú meinar að þjóðfélag þeirra sé eftiröpun af vestrænum hugmyndum? — Mér finnst það vera. Það er undarlegt að gamall gyðingur hér á Vesturlöndum, menntaður maður, skuli hafa getað fyrir hundrað árum uppfundið kerfi, sem kínverjar taka eftir okkur en við höfum afneitað yfirleitt í þeim löndum sem þessi maður bjó og starfaði. Fréttaritari við New York Tribune. Das Kapital er að einhverju leyti úr fréttagreinum sem Marx skrifaði fyrir New York Tribune. BJÁNAÞORPIÐ Telur þú æskilegt að heimurinn verði ein stór menningarheild? — Hvernig mundi vera umhorfs á íslandi ef allt gróðurlendi íslands væri vaxið háliðagrasi sem er mjög töðugætt og ágætt hey. Sumir vilja gera heiminn eins, en hvernig væri heimurinn útlits ef hann væri í andlegum efnum líka orðinn að eintómu háliðagrasi? Ef öll tungumál væru lögð niður og allir hugsuðu eins og gerðu eins. Kanadíski heimspekingurinn McLúhan heldur að við séum á leiðinni með samgöngu- tækjum okkar og fjölmiðlum að verða að einu stóru þorpi, bjánaþorpi. Nytsemdarsjónarmiðið má ekki ráða öllu. Það er hægt að kaupa lífið of dýru verði. Við sjáum það daglega að menn- irnir kaupa velmegunina of dýru verði. Ef við vildum umfram allt frelsa lífið yrðum við að möðkum í kálgarði. Sá sem vill frelsa sjálfan sig mun tapa lífinu. Við sjáum það greinilega núna að íslenska þjóðin stendur á þrepskildi þess að tapa tungunni, sögunni, manndóminum og öillu af því að við erum að reyna að frelsa sjálfa okkur frá fátækt. Álítur þú ástandið svo alvarlegt? — Ég vona að svo verði ekki, en það er meir en hugsanlegur möguleiki. Það eru til menn í þjóðfélaginu sem vilja fórna hverju sem er fyrir velmegunina, jafnvel tungunni, forfeðrum sínum og systrum sínum og bræðrum. Einhver lokaorð? — Ég vil að lokum taka undir orð Tolstoys, að ekkert hafi stuðlað eins mikið að útbreiðslu heimskunnar og vanþekkingarinnar og uppfinn- ing prentlistarinnar. 38 HLJÓÐABUNGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hljóðabunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.