Hljóðabunga

Ukioqatigiit

Hljóðabunga - 01.03.1975, Qupperneq 42

Hljóðabunga - 01.03.1975, Qupperneq 42
Ég ber vitni, ó vinir! að gæskan er full- gerð, málefnið útkljáð, sönnun opinberuð og vitnisburðurinn staðfestur. Látið nú sjá hvað viðleitni ykkar á vegi lausnar- innar leiðir í ljós. Á þennan hátt hefur hin himneska gæska verið fullkomlega tryggð ykkur og þeim, sem eru á himni og á jörðu. Allt lof Guðs, lávarðar allrar veraldarinnar”. TRDARBRÖGÐIN OG SPAMENNIRNIR Við skulum staldra við hér og athuga okkar gang, við þurfum þegar hér er komið sögu að spyrja nokkurra spurninga. T.d. 1. Hvað er spámaður? Guð hefur með vissu millibili gætt menn spámannsanda og gefið þeim orku, nauð- synlega mannkyninu til þroska. Spámenn- irnir hafa byggt upp siðferðislegan þroska inannsins, um leið og þeir hafa kennt hon- um að skipuleggja samfélag sitt. Frá spá- mönnunum eru til dæmis komin fjölskyld- an, ættin, þjóðfélagið og alheimssamfélagið. Einnig kenndu þeir okkur að nota eldinn og að búa til hjól. Kring um helstu spámennina hafa mynd- ast svokölluð trúarbrögð, það eru skipulögð samtök átrúenda. Þessi samtök eru geysi- öflug og áhrifamikil. Trúarbrögðin eru þessi: Hindúatrú, spámaður Krishna (2000 f. Kr.) Gyðingadómur, spámaður Móse (1330 f. Kr.) Parsatrú, spámaður Zaraþústra (1000 f. Kr.) Búddadómur, spámaður Buddha (560 f. Kr.) Kristindóinur, spámaður Kristur (1 e. Kr.) Islam, spámaður Muhamed (662) Báhitrú, spámaður Báb (1844) Bahá’ítrú, spámaður Bahá’u’lláh (1863) Það skal tekið fram í þessu sambandi að hætta er á ruglingi milli trúarbragðanna og kenninga spámannanna, það er ekki það sama. Trúarbrögðin eru sköpuð af mönnum og hafa mótast af venjum og menningu samtíma síns. Það vill oft verða svo að trúarbrögðin gefa ranga mynd af spámanni sínum. Þau hafa oft fjarlægst hann svo mikið að þau hafa afneitað einstökum kenningum, og jafnvel bætt við nýjum. Sem dæmi má nefna heilaga þrenningu kristinna manna og eldskírn Parsatrúar- manna, báðar tilbúnar mannanna hug- myndir. Prestarnir eru til dæmis leifar þeirrar menningar sem ríkti þegar kirkjan var mótuð, þeir voru nauðsynlegir þegar almenningur gat ekki lesið og þörf var því á menntuðum leiðbeinendum. I dag er þessi þörf ekki lengur fyrir hendi og þvi ærin ástæða til breytinga. 2. Hvernig getum við þekkt raunverulegan spámann frá falsspámönnum? Kristur varaði okkur við falsspámönnum, og hann kenndi okkur að þekkja þá. Hann sagði: „Á ávöxtunum skuluð ])ið þekkja þá”. Þetta kemur okkur mjög að notum sem lifum í heiminum í dag, því með þessu getum við afhjúpað langöflugasta falsspá- mann allra tíma. Sá heitir Mammon og er guð auðsins og þess er honum fylgir. Mammon er tillieðinn vítt um heimsbyggð- ina og honum reist hof í hverri krummavík. En ávextir hans ern ógeðslegir, fégræðgi, efnishyggja, hatur, baktal, morð, styrjaldir, firring, trúleysi, nýlendukúgun, nautna- sýki og slikt og því um líkt. Ef við lítum hins vegar á spámenn Guðs þá eru þeir mun auðþekktari. T.d. hafa allir spámenn sagt fyrir komu eftirmanns síns, þ.e. næsta spámanns. Þessir spádómar eru mismunandi skýrir, þó eru þeir yngri áberandi nákvæmastir. Við munum að Móse spáði fyrir komu Krists, og Kristur fyrir komu Muhameðs. Fyrir komu Bahá’u’lláh er spáð bæði í Kóraninum (helgiriti Muslima) og Biblíunni. Ekki er tími til að rekja spádómana hér, en bent skal á að til er bók á íslensku „Þjófur að nóttu” eftir William Sears, um spádóma Biblíunnar. 3. Hvað kennir Bahá’u’lláh? Þessari spurningu verður ekki fyllilega svarað með máttlitlum og fátæklegum orð- um mínum. Hinn mikli hafsjór þekkingar sem Bahá’u’lláh opinberar mannkyninu verður ekki túlkaður svo fullnægjandi sé, 42 HLJÓÐABUNGA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Hljóðabunga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.