Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 44
Bahá’í trúin hefur fest rætur hér á Is-
landi, átrúendur eru nú fjögur liundruð
vítt um landið og fer fjölgandi. Mikið hefur
verið gert til þess að útbreiða trúna, mest
með persónulegum samböndum, en einnig
opinberum kynningum. 1 sumar var til
dæmis farið í kynningarferðalag um Vest-
og Austfirði.
Hér á ísafirði var fyrst minnst á
Bahá’u’lláh 1971 þegar haldin var viku-
kynning í Sjálfstæðishúsinu. Isfirskir
Bahá’íar eru nú 11. Hver einasti einstakl-
ingur getur hvenær sem er gerst Bahá’íi án
annarra skilyrða en að hann trúi á
Bahá’u’lláh og viðurkenni kenningar hans.
NIÐUBLAG
Að lokum skulum við lesa stuttan kafla
frá Bahá’u’lláh, l)irt á íslensku 1 bókinni
„tírval úr ritum Bahá’u’lláh”:
GUÐ OG BIBTENDUB HANS,
„Eftir að hafa skapað veröldina og allt
það sem lifir og hrærist í henni, kaus Hann,
fyrir atbeina beinnar verkunar síns ótak-
markaða og allsráðandi vilja, að sæma
manninn hinni einstæðu aðgreiningu og
gáfu að þekkja Hann og elska Hann
— gáfu, sem verður að álítast hin fram-
knjrjandi hvöt og frumtilgangurinn sem
liggur að baki allrar sköpunar.
Yfir innstu raunveru hvers einstaks skap-
aðs hlutar dreifði Hann ljósi frá einum af
eiginleikum sínum. Yfir raunveru manns-
ins hefir hann samt beint samsafni geisl-
unar allra nafna sinna og eiginleika, og
gert hana að spegli síns eigin sjálfs. Aleinn,
af öllu hinu skapaða, hefir maðurinn verið
útvalinn fyrir svo mikla hylli, slíkt varan-
legt örlæti.
Þessar orkulindir, sem dagstjarna guð-
dómlegrar gjafmildi og uppspretta himn-
eskrar lciðsagnar hefir klætt raunveru
mannsins með, liggja þó samt sem áður
blundandi með honum, rétt eins og loginn
er hulinn í kertinu og ljósgeislar eru
44
HLJÓÐABUNGA