Hljóðabunga

Ukioqatigiit

Hljóðabunga - 01.03.1975, Qupperneq 46

Hljóðabunga - 01.03.1975, Qupperneq 46
Jónas Guðmundsson: W I samvinnu INNGANGUR Fyrirbærið samvinnuhreyfingu ætti hver íslendingur að kannast við, þvi að fyrirtæki hennar á Islandi eru meðal þeirra stærstu í landinu. En þar sem samvinnuhreyfing er allt annað og meira en einstök stór- fyrirtæki, heldur hugsjónahreyfing fjölda fólks, sem l>yggir á sérstökum lýðræðis- reglum og á sér sögulegan bakgrunn, verður þess freistað að gera stuttlega grein fyrir sögu hennar, skipulagi og stöðu. UPPHAF Uppruna samvinnuhreyfingarinnar má rekja til Bretlands á fyrri hluta 19. aldar. Á þeim tíma var iðnbyltingin breska í al- gleymingi og reyndist mjög sársaukafull fyrir alþýðu landsins. I hinum nýju verk- smiðjuborgum bjó verkafólkið við mjög slæman aðbúnað og bág kjör. Fólk þetta á öllum aldri þrælaði í loftlausum og hávaða- sömum vinnusölum eða námagöngum 18 tíma á sólarhring og þáði sultarlaun fyrir. örkuml af völdum hinna nýju véla voru mjög tíð, því öryggiseftirlit var ekkert. Húsnæði þessa vesæla fólks var vægast sagt lélegt. Það var upp úr þessu hörmungarástandi i upphafi iðnbyltingar sem liugtökin verka- lýðsafl og stéttarsamstaða urðu til. Verka- fólkinu varð smám saman ljóst að einungis með samcinuðu átaki þess sjálfs var mögu- legt að ná fram betri kjörum. Ýmsir spá- menn komu fram á sjónarsviðið og lögðu kapp á að efla þessa sjálfsvitund verka- lýðsins jafnframt sem þeir boðuðu sérstakar aðferðir til leiðréttingar. Þessir menn sem nefndir hafa verið „draumórasósíalistar”, verkuðu hvetjandi á samfylkingu alþýð- unnar og árangurinn sýndi sig í stofnun fyrstu verkalýðsfélaganna og mörgum þeim umbótum sem þau komu til leiðar. Samt sem áður var löng leið og ströng til þess takmarks að verkalýðsfélögin fengju laga- lega viðurkenningu sem réttir samnings- aðilar um kaup og kjör félaga sinna. Því er minnst hér á tilurð verkalýðs- hreyfingarinnar, að samvinnuhreyfing og verkalýðshreyfing eru tvær systurhreyfing- ar sem sprottnar eru af sama grunni. Þær voru báðar tæki alþýðunnar til að bæta kjör sín. Skyldleikann má rekja til þeirrar einföldu staðreyndar að þegar athugað er hvort verkamaður geti lifað á launum sín- um, verður hæði að miða við upphæð laun- anna og almennt verð á nauðsynj avörum. Sá þáttur sem snéri að vöruverðinu var í augum hinna bresku verkamanna engu léttvægari en hinn. Þess vegna hófust um 1830 tilraunir með stofnun félagsverslana, því með því að taka sjálfir beinan þátt í versluninni voru verkamennirnir öruggir um að fá nauðsynjavörur á lægsta mögu- lega verði. Þessar tilraunir með verslunar- félög höfðu á sér mismunandi yfirbragð og hlýddu ólíkum reglum. Þær voru fyrst og fremst leit sem beindist að því að finna heppilegt form fyrir verslunarrekstur al- þýðunnar. Árið 1844 er talið að þessum 46 HLJÓÐABUNGA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Hljóðabunga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.