Hljóðabunga - 01.03.1975, Qupperneq 48
Dæmi um ísfirskan samvinnurekstur — Samvinn ufélag ísfirðinga var fyrsta útgerðarsamvinnufélag
á íslandi, stofnað vegna yfirvofandi atvinnuleysis í bænum árið 1927. Myndin sýnir „Birnina” sjö
við bryggju á Siglufirði árið 1932.
árið 1882. Þar voru fundnar reglur sem
mjög líktust reglum Rochdaje-manna,
þrátt fyrir að ekkert vitneskj usamband
væri þar á milli. Einn var þó sá höfuð-
munur að ákvæðið i Rochdale-reglunum
um sjóðmyndun var ekki í þeim þingeysku,
og raunar ekki tekið upp lijá neinu ís-
lensku samvinnufélagi fyrr en eftir alda-
mót.
Aðdragandinn að stofnun fyrsta íslenska
samvinnufélagsins lýsir af þörf til að bæta
úr augljósu óréttlæti. Samvinnufélagsform-
ið hefur löngum verið svar kúgaðra gegn
kúguninni, — og jafnframt það svar sem
hest dugar. Með því að taka verslunina i
eigin hendur voru hinir þingeysku bændur
að losa sig við milliliðina svonefndu, sem
höfðu einblínt á eigin gróða, lagt óhemju
á aðkeyptar vörur en haldið niðri því verði
sem bændurnir fengu fyrir afurðir sínar.
Árangurinn lét ekki á sér standa, því á
fyrstu 5 árum K.Þ. töldu félagsmenn hag
sinn hafa batnað um 40-50%, þar af hafði
verð á aðkeyptum vörum lækkað um þriðj-
ung-
Fljótlega eftir stofnun Kaupfélags Þing-
eyinga voru stofnuð ný, sem tóku sér regl-
ur þess til fyrirmyndar. Fram að aldamót-
um voru þessi samvinnufélög aðeins á
Norðurlandi en síðar urðu til fleiri á víð
og dreif um landið.
Fyrsta kaupfélagið var stofnað af bænd-
um, og þannig hefur það ætíð verið að
samvinnuhreyfingin hefur verið sterkust i
sveitum landsins enda afurðasala bænda
lengstum að mestu leyti í höndum hennar.
Um og eftir aldamótin var uppgangs-
tími fyrir hina íslensku samvinnuhreyf-
ingu. Skýring á því er meðal annars tengd
harðnandi sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Það mátti öllum vera ljóst að til að eygja
möguleika á að lifa sjálfstæðir í landi
sínu urðu Islendingar að öðlast efnahags-
legt sjálfstæði. Grundvöllur þess var að
framleiðslutækin i landinu kæmust
öll undir yfirráð landsmanna
sjálfra. Upp úr aldamótum, þegar sjálf-
48
HLJÓÐABUNGA