Hljóðabunga - 01.03.1975, Page 51
þessu sambandi ber að hafa í huga hversu
mikið vald fylgir samþjöppun fjármagns-
ins.
Afstaða einstaklinganna til jafnsskipt-
ingar og misskiptingar fjármagnsins birtist
í því hvert þeir beina viðskiptum sínum,
— eigi þeir á annað borð kost á slíku vali.
Séu þeir hlynntir jafnskiptingu má telja
eðlilegt að þeir snúi sér til samvinnufélags,
en þeir sem hlynntir eru einkagróða leita
annað.
Á síðustu árum bendir margt til þess að
íslensk samvinnuhreyfing sé á hnignunar-
skeiði. Svo virðist sem virkum þátttakend-
um í henni fari sífellt fækkandi.
Það ber að undirstrika vel að samvinnu-
hreyfing er félagsleg samtök sem hlíta
lögmálum lýðræðislegra félagsstarfa um
allar meiriháttar stjórnarathafnir. Þetta er
það sem skilur samvinnufyrirtæki gleggst
frá öðrum fyrirtækjum. Það er því ein
alvarlegasta hætta sem hugsast getur fyrir
hreyfinguna ef hún tapar þessari sérstöðu.
Ástæðuna fyrir þessari þróun má vafa-
laust að einhverju leyti rekja til almennr-
ar ládeyðu í félagsstarfi landsmanna. Vel-
ferðarþjóðfélagið slævir ætið þá skyldu
manna að vera á verði. En forystu-
menn samvinnuhreyfingarinnar hafa hlotið
ámæli fyrir íhaldsemi og einangrunarstefnu
hvað viðkemur endurnýjun í trúnaðarstöð-
um hreyfingarinnar. Ef samvinnfélög fá
á sig svip forstjóranna, sem hinn almenni
félagsmaður forðast, og hefur engin áhrif
á, þá er grundvöllur þeirra brostinn.
GUNNLAUGUR FINNSSON
Cagnvegir
Ilefur þú strokið á húmdökku kvöldi
hönd þinni um byrðing og súð
og séð, hvernig maurildi í milljurðatali
merlast á kinnung og flúð?
Hefur þú hert þig í sjávarins seltu
eða sölin nært hungraðan kvið?
Hefur þú staðið í fjöru og fundið
foldar og öldunnar nið.
Hefur þú skynjað, að særinn og svörðurinn
sórust í fóstbræðralag?
Og þess vegna er eylendings eðli svo bundið
með órofa böndum í dag,
við sædjúpið kalda, við svarrandi brimið
við sveit og við glitrandi á.
Því öreindir djúpsins og dalanna bindast
duldar í mannanna þrá.
Veistu að sjómannsins sigggrónu hendur
sakna þín, frjóþunga afl?
Veistu að bændanna bundinn er hugur
við bárunnar örlagatafl?
Því eigindir landsins og ölduslag hafsins
eru íslendings lirynjandi óðs,
sem tvinnar og þrinnar þá þætti er standa
þjóð vorri og landi til góðs.
HLJÓÐABUNGA
(Ekki mun, svo vita<5 sé, hafa birst kvæði eftir
Gunnlaug bónda á Hvilft áóur)
51