Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1959, Blaðsíða 8
- 8 -
SAMTALSBROT VIÐ FORMANN SKÓLAFÉLAGSINS
GUÐMUND AXELSSON 4. -A
BLAÐAMAÐUR BLYSSINS hafíSi lengi
veitt eftirtekt pilti nokkrum úr 4.bekk
hér í skola sökum hins aðsópsmikla í
fari hans, án þess þó aS vita á honum
nokkur deili. En er því var stun<gið aS
blaðamanninum, aS þetta væri formaSur
skólafélagsins, datt honum í hug aS
leita hófanna hjá þeim mikla manni og
biSja um örlítiS samtal.
Þar sem viSkomandi blaSamaSur er
fremur óreyndur í starfinu, og er ekki
buinn aS öSlast þann djarfleik, er flesta
blaSamenn einkennir í starfi þeirra, var
hann fremur óstyrkur, er hann nálgaSist
þennan þéttvaxna pilt í einu stundarhlé-
inu. Loks áræddi blaðamaSurinn aS
banka í hina "svakalegu" flugvélaúlpu
kappans og spyrja "hvort það væri nokk-
ur leið að fá agnar, ósköp lítið samtal"
( því ekki var árennilegt að fara fram á
mikið ).
"Samtal við mig?" Roknalegur hlátur
fylgir, sem sízt er til að auka á djarf-
leik blaðamannsins. "Ja. . . já, ba. . .
ba. . . bara örlítið. " "Ja, blessaður
vertu þá ekki að þessu hangsi, gusaSu
þessu út úr þér."
Til þess að vera nú viss um, að þetta
sé rétti maðurinn, hljóðar fyrsta spurn-
ingin þannig :
"Ert það ekki þú, sem ert formaður
skólafélagsins ? " "Jú, svo er sagt. "
"Kom þér það ekkert á óvart, að þú
skyldir vera kosinn?" "O, nei, það var
nú ekkert meira en ég bjóst við. "
"Hvort heldur þú, að það hafi verið
vegna vinsælda þinna eða speki, sem þú
varst kosinn? " "Ja, það má nú deila
um það, því hvort tveggja hef ég til að
bera í ríkum mæli. Þó hugsa ég, að
það hafi einkum stafað af hinum miklu
vinsældum, er ég nýt meðal kvenþjóðar-
innar í 4. bekk, og vel má marka af
því, hve húsmæðralærlingarnir í skólan-
um spyrntu fótum sínum ákveðið mót
höfuðandstæðingi mínum í kosningunum."
"í hverju er nú starf formanns skóla-
félagsins aðallega fólgið?"
"Maður þarf náttúrlega í "praksis"
( það er út í lífinu ), að "arrangere"
þessu öllu saman. "
"Hverjir eru það, sem aðallega klóra
þér bak við eyrun og gefa þér góð
ráð ? "
"Heyrðu góði, heldur þú að ég sé
með einhvern kláða ? Nei, það er nú
öðru nær, því ég þvæ af mér allan ó-
þverra á mánaða fresti. En hins má
geta, að ýmsir sveinstaular eru á skipi
stjórnarinnar, sem hanga í pilsfaldi
mínum, en eftir ráðum þeirra fer ég
lítið, því ég er fæddur til að stjórna og
það einn. Tel ég því ekki ómaksins
vert að vera að birta nöfn léttadrengja
minna. "
"Hvernig er það, leyfist mér að
spyrja,hvort þú reykir eða drekkir? "
"Heyrðu Ijúflingur. Nú er ég orðinn
leiður á þessu pípi í þér. En ég get
svo sem sagt þér, að ég hef drukkið
mjólk síðan ég man eftir mér.
En nú kæri ég mig ekki um þetta rugl
lengur og reyndu að snáfa í burtu. "
P. B.
ENSKA í 3.-X
Halldór les og þýðir :
. . . and when mother came home, she
would say the baby was spoiled -
... og þegar mamma kæmi heim,
mundi hún að segja að krakkinn væri
ó n y t u r ! ! !