Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1959, Blaðsíða 15
- 15 -
NOKKRAR F
til þeirra, er fara
Til hvers var íþróttanefnd G. A. stofn-
uð? Á þessi nefnd bara að sjá um, að
fámenn klíka geti komið saman á kostn-
að skólans að Hálogalandi og æft þar
körfu- og handknattleik og panta tíma
niðri í sundhöll, sem enginn áhugi er
fyrir, meðal nemenda, að nota ?
Ég hef ekki verið boðaður á neinn fund
í þessari nefnd. Ég þekki ekki einu
sinni alla meðlimi hennar, hvað þá
meira, en mér var, til mikillar ógæfu,
troðið í þessa ólánssömu "nefnd".
Það er auðvitað ekki nema sjálfsagt að
starfa í þessari nefnd, ef það gæti orð-
ið einhver lyftistöng undir íþróttalíf skól-
ans, en með þessum starfsháttum "nefnd-
arinnar" fæ óg ómögulega séð, að svo
verði. Ef "nefndin" á að "starfa" svona,
eins og hún hefur gert, þá fæ ég ekki
séð, hvað ég á að þvælast í henni, held
ég að það væri öllum hlutaðeigendum
fyrir beztu, að ég segði mig úr henni.
Ég veit ekki betur, en að félagsskapur
sá, sem stendur fyrir "skólamótunum"
( í sundi ) ætlist til þess, að leikfimi-
eða íþróttakennarar viðkomandi skóla
sjái um undirbúning nemenda fyrir mót-
in, til þess m. a. að sjá svo um, að
nemendur, sem ekki eru mjög heilsu-
hraustir, tefli heilsu sinni í hættu með
því að keppa o. fl. , enda sé ég, að svo
er með alla aðra skóla nema G. A.
Leikfimikennari stúlkna hefur að vísu
komið á nokkrar æfingar, en mér finnst
það ekki nóg, við strakarnir höfum líka
2 leikfimikennara og hefur annar þeirra
staðið í eldlínunni undanfarin 30 ár og
hefur því skilað góðu dagsverki á þessu
sviði. Mér finnst, að ef leikfimikennar-
ar okkar hafi nokkurn áhuga fyrir því,
að nemendur taki þátt í þessu móti,
sem þeir hafa vissulega gott af, ef þeir
eru eitthvað undirbúnir, þá gætu þeir
aðstoðað "nefndina" miklu betur en þeir
hafa gert við t. d. "smölun" þeirra 40-
50 stráka, sem skólinn þarf að senda til
keppni, ef hann á ekki að verða sér til
minnkunar, og undirbúning undir mótið
YRIRSPURNIR
með íþróttamál G. A.
að öðru leyti, annars verður G. A. að
draga sig til baka á þessu sviði, því
miður, og væri það mikil afturför í
"íþróttalífi" skólans.
Hvers vegna stuðlar "nefndin" ekki að
því, að nemendur skólans geti fengið leik-
fimisal og áhöld skólans til afnota fyrir
utan hina lögskipuðu leikfimitíma ?
Ég skyldi ábyrgjast meðferð nemenda á
áhöldum og umgengni x leikfimisal, ef
enginn kennari gæti verið viðstaddur.
Eða er það rétt, sem ég hef heyrt, að
þeir, sem ráða þessum málum hér í skól-
anum, vilji heldur lána salinn til ein-
hverra stofnana úti í bæ, heldur en til
nemenda sjálfra? Þetta finnst mér svo
lygilegt, að ég trúi þessu ekki að óreyndu.
Ég þykist alveg viss um, að Vilhjálmur
Einarsson myndi leiðbeina okkur, ef við
bæðum hann þess í þessum tímum okkar,
þarna í salnum í stökkum ýmsum. Svo
gætum við stundað tennis, badminton og
körfubolta o.m.fl. Ef rétt væri á málum
haldið, er ég viss um að þetta yrði mjög
vinsælt meðal nemenda.
Hvers vegna kom ekki öll íþróttanefndin,
en ekki einn meðlimur hennar, á síðasta
málfund , en þar var rætt, eins og "nefnd-
in" vissi,um : aukningu lista og íþrótta
meðal íslendinga ? Ég vona, að það hafi
ekki verið vegna áhugaleysis á umræðu-
efninu, að nefndin mætti ekki !
Til þess að koma í veg fyrir hugsan-
legan misskilning vil ég taka fram eftir-
farandi : Formaður xþróttanefndar fór
þess á leit við mig í haust, að ég tæki
að mér málefni sundsins innan íþrotta-
nefndarinnar, hvað ég og gerði.