Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Qupperneq 8

Heimili og skóli - 01.08.1954, Qupperneq 8
52 HEIMILI ()(; SKÓLI ekki kunna það. Sumir svara alltaf þannig í síma, eins og þeir væru stór- reiðir og í vondu skapi. Þetta er þó ekki svo. Þetta er illur vani. Maður hrekkur stundum við, þegar þannig er svarað, óþægilega og hranalega. Þetta, jafnvel þótt smáærði sé, á sinn þátt í að setja leiðinlegri blæ á samskipti manna en þörf er á. Eg hringi ekki í sum símanúmer nema ég megi til. Afgreiðslufólk nú á tímum er vfir- leitt lipurt og kurteist, þótt út af því geti brugðið, en ekki nógu frjálsmann- legt og glaðlegt. Þetta ættu \ innuveit- endur að atliuga, þegar þeir ráða sér slíkt fólk. Með því að gera kröfur í þessum efnum, má bókstaflega ala upp ungt fólk. En mér er nær að halda, að á þetta sé sjaldan litið, og þarna séu yfirleitt litlar kröfur gerðar. Það eru vafalaust gerðar kröfur um stundvísi og reglusemi, en þetta ætti að fylgja með: Vertu glaðlegur! Vertu vingjarn- legur! Við þá starfsmenn vilja allir skipta. En hjá hinum er aftur sneitt, sem eru þumbaralegir og tómlátir, eins og þeim standi á sama um allt og alla. Háttvísi í hinu daglega hvers- dagslífi fegrar sambúð mannanna og gjörir Iiana ánægjulegri. Þetta kostar kannske nokkra þjálfun, en sú þjálf- un er óhjákvæmileg. Það er fátt nauð- synlegra en að þjálfa sig í rósemi, skapstillingu og eðlilegri og fágaðri framkomu. Ef kennari t. d. kann ekki að stilla skip sitt, þjálfar ekki skapgerð sína og framkomu, kallar hann yfir sig alls konar vandræði, sem gjörir honum lífið sem kennara óbærilegt. Þetta verða margir aðrir að gera stöðii sinn- ar \egna, svo sem læknar, dómarar og raunar allir menn að einhverju leyti, og þó ekki sízt foreldramir. í heimil unum er lagður grundvöllurinn að sambúðaruppeldinu. Sum börn eru alltaf í æstu skapi,' yfir öðrum hvílir jafnan geðró og jafnvægi. Að ein- hverju leyti eru þetta erfðir eiginleik- ar, en þarna skiptir heimilislífið einn- ig miklu máli. Ef þar ríkir alltaf frið- ur, góðvikl, hjálpsemi og réttlæti, seytlar þetta inn í börnin smátt og smátt, unz það verður hluti af þeim sjálfum. Góðvildin og góðgirnin er lyklarnir að hjörtum mannnana. Það er sólskinið í lífi þjóða og einstaklinga, og það sólskin er öllu öðru sólskini bjartara og hlýrra. Þetta sambúðarlögmál hefur aldrei verið, óg mun aldrei verða, betur orð- að en hjá Jesú frá Nazaret, er hann segir: Allt þetta, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þarna höfum við í raun og veru allt, sem um þetta þarf að segja. A þessum grundvelli þarf að byggja upp sambúð þjóða og einstaklinga. H. J. M. Það kom nýlega fyrir í skólahéraði einu á Fjóni, að skólanefndin lét fara fram atkvæðagreiðslu nteð eða móti skólastjóranum, sem hafði skilið við konu sína og kvænst á ný. Blaðið, sem frá þessu segir, lætur þess getið, að jafnvel þótt skólastjórinn hafi gengið sigrandi af hólmi í þessari atkvæða- - greiðslu, eða með 53,2% atkvæða, þurfi í framtíðinni að stemma stigu fyrir slíkri atkvæðagreiðslu, sem ekki eigi neina stoð í lögum.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.